Fréttablaðið - 09.10.2014, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 09.10.2014, Blaðsíða 10
9. október 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 10 SAMFÉLAG Friðarsúlan verður tendruð á fæðingardegi tónlist- armannsins Johns Lennon í dag og er þetta í sjöunda sinn sem viðburðurinn er haldinn í Viðey. Yoko Ono, ekkja Lennons, kom hingað til lands á sunnudaginn. Hún er að sjálfsögðu ánægð með veðrið sem hún fær. „Það er virkilega fallegt. Flestir halda að veðrið á Íslandi sé aldrei gott en það hefur alltaf verið svona þegar ég hef komið. Nema í nokkur skipti var það ekki gott. Þetta er afmælisdagur Johns og ég held að margir eigi eftir að mæta,“ segir Yoko, sem gistir á Hótel Nordica á meðan á dvöl hennar stendur. Áður en friðarsúlan verður tendruð mun Ono afhenda friðar- verðlaun sín sem hún gerir annað hvert ár en margir muna þegar poppsöngkonan Lady Gaga hlaut verðlaunin fyrir tveimur árum. Í þetta sinn hljóta fimm mann- eskjur verðlaunin. Jann Wenner, útgefandi tímaritsins Rolling Stone, Jeremy Gilley, stofnandi Peace One Day, sem er alþjóðleg- ur friðardagur haldinn 21. sept- ember ár hvert, Dorren Remen og Yvonne Force Villareal, stofn- endur sjóðsins Art Production Fund, og síðast en ekki síst Jón Gnarr, fyrrverandi borgarstjóri Reykjavíkur. „Það sem hann gerði er mjög mikilvægt,“ segir Ono um Jón. „Hann var grínisti sem ákvað að gerast stjórnmálamaður. Það þarf mjög mikið hugrekki til þess og margir tóku hann ekki alvarlega í byrjun. Síðan fór allur heimurinn að gera það og jafnvel í Bandaríkjunum eru sumir grínistar byrjaðir að hugsa með sér: „Ég gæti alveg orðið borgarstjóri eða þingmað- ur,“ segir hún. „Ég ber mikla virðingu fyrir honum. Meira að segja hvernig hann klæðist. Það er svo allt öðru vísi. Mjög list- rænt og skapandi.“ Styrjaldir eru háðar víða í heiminum og þær valda Ono að sjálfsögðu miklum áhyggjum. „Allir segja við mig: „Þú ert að vinna að friði en samt er eng- inn árangur“. „Ég veit að þetta er mjög ofbeldisfullur heimur en ímyndaðu þér ef við hefðum ekki gert neitt í friðarbarátt- unni. Kannski væri allur heim- urinn horfinn núna.“ Spurð hversu langt sé í að frið- ur í heiminum náist, segir hún: „Það fer eftir því hvað við viljum. Við verðum að ákveða það sjálf. Ég held að við munum ákveða okkur mjög fljótlega því þetta er orðin mjög óþægileg staða, eins og fólk veit.“ freyr@frettabladid.is Ber mikla virðingu fyrir Jóni Gnarr Kveikt verður á friðarsúlunni á fæðingardegi Johns Lennon í sjöunda sinn í Viðey í kvöld. Yoko Ono, ekkja hans, mun einnig afhenda friðarverðlaun sín í dag. SPÁNN, AP Spænska aðstoðar- hjúkrunarkonan, sem smitaðist af ebóluveirunni, virðist hafa gert þau mistök að snerta andlitið á sér með hanska sem hún hafði notað við umönnun ebólusmitaðs prests. Í viðtali við spænska dagblaðið El Mundo segist aðstoðarhjúkrun- arkonan, sem heitir Teresa Romero, halda að þetta hafi gerst þegar hún var að fara úr hlífðarbúningi, þegar hún var komin út úr sjúkrastofunni á sjúkrahúsi í Madrid þar sem prest- urinn var í einangrun: „Þarna var, sýnist mér, hættulegasta augnablik- ið þar sem þetta hefði getað gerst. En ég er ekki viss.“ Javier Limon, eiginmaður henn- ar, segir í viðtali við sama blað að eiginkona hans hafi farið í frí eftir að presturinn, Garcia Viejo, lést þann 25. ágúst. Fimm dögum síðar veiktist hún og fékk vægan hita, en fór þó í starfstengt próf ásamt fleiri nemendum. Hún leitaði lækn- is á heilsugæslustöð, en tók þar ekki fram að hún hefði tekið þátt í umönnun ebólusjúklings. Yfirvöld fullyrða að hún hafi aldrei yfirgefið Madrid á þessu tímabili. Ebólufaraldurinn, sem hófst í vestanverðri Afríku fyrr á árinu, hefur nú kostað um 3.500 manns lífið. Sjúklingar hafa verið fluttir frá ríkjum Afríku til Bandaríkj- anna, Spánar og Noregs. Í gær skýrðu bandarísk stjórn- völd frá því að á flugvöllum þar í landi yrði nú kannað hvort farþeg- ar frá vestanverðri Afríku væru með hita. - gb Spænska aðstoðarhjúkrunarkonan virðist hafa gert afdrifarík mistök eftir að hafa sinnt ebólusjúklingi: Talin hafa snert andlit sitt með hanska SJÚKRASTOFAN Á SPÁNI Starfsfólk á sjúkrahúsinu í Madrid þrífur sjúkrastof- una þar sem ebólusmitaður prestur lést í ágúst. FRÉTTABLAÐIÐ/AP „Það er unnið hörðum höndum að endurskoðaðri viðbragðs- áætlun hér heima, ef upp kæmi tilfelli af ebólu eða grunur um smit,“ segir Guðrún Sigmunds- dóttir, staðgengill sóttvarnalæknis, og bætir við að áætlunin sé í stöðugri endurskoðun. Hún segir að Landspítalinn, Keflavíkurflug- völlur, heilsugæslustöðvar ásamt lögreglu og fleirum taki þátt í að vinna viðbragðsáætlunina. Að sögn Guðrúnar er enginn íslenskur hjálparstarfsmaður við störf á þeim svæðum þar sem faraldurinn geisar. Hún segir emb- ættið hvetja fólk til að ferðast ekki til Vestur-Afríku að óþörfu. ENDURSKOÐA VIÐBRAGÐSÁÆTLUN KJARAMÁL Skilaboð Viðskiptaráðs um að fjölgun starfa hjá hinu opinbera hafi verið verulega umfram fjölgun starfa á almennum vinnumarkaði standa óhögguð. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ráðinu. Tilefnið er til- kynning BSRB sem birtist í Fréttablaðinu. „Stærsta misræmið í tölum Viðskiptaráðs og BSRB má finna í fjölda ríkisstarfsmanna um síðustu alda- mót. Í tölum BSRB er fullyrt að stöðugildi hjá ríkinu hafi verið 15.700 árið 2000 og vísað er til upplýsinga frá fjármálaráðuneytinu án þess að beinnar heimildar sé getið,“ segir Viðskiptaráð. „Í svari fjármálaráðherra við fyrirspurn á Alþingi 19. nóvember 2009 kemur fram að fjöldi stöðugilda hjá ríkinu hafi verið 14.000 árið 2000. Viðskiptaráð notaðist við hinar opinberu tölur, en ekki kemur fram í tilkynningu BSRB hvers vegna litið var fram hjá þeim.“ BSRB sagði í sinni tilkynningu að störfum hjá ríkinu hefði fækkað um 10,6 prósent frá 2008 og vildi meina að fullyrðingar Viðskiptaráðs um þriggja prósenta fækkun ríkisstarfsmanna væru rangar. Viðskiptaráð segir að stór málaflokkur, málefni fatlaðra, hafi verið fluttur frá ríkinu yfir til sveitarfélaga 2011 og þá hafi 905 stöðu- gildi færst á milli. „Ef bera á saman tölur fyrir og eftir þessa tilfærslu ber að leiðrétta fyrir henni. Sé það gert hverfur um helmingur þeirrar fækkunar stöðugilda sem BSRB fullyrðir að átt sér hafi stað hjá ríkinu.“ - fb Misræmi í tölum Viðskiptaráðs og BSRB varðandi fjölda ríkisstarfsmanna: Óbreytt skilaboð Viðskiptaráðs FRAMKVÆMDASTJÓRI Frosti Ólafsson er framkvæmda- stjóri Viðskiptaráðs. Í tilkynningu frá ráðinu segist það standa við fyrri skilaboð sín. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI YOKO ONO Ekkja Johns Lennon tendrar friðarsúl- una í Viðey í kvöld. Hún mun einnig afhenda fimm ein- staklingum sérstök friðarverðlaun. FRÉTTABLAÐ IÐ /AN D RI Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is Amerískir með klakavél Kynningarverð frá kr. 199.900 innbyggð klakavél Hann var grínisti sem ákvað að gerast stjórnmálamaður. Það þarf mjög mikið hugrekki til þess.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.