Fréttablaðið - 09.10.2014, Blaðsíða 74

Fréttablaðið - 09.10.2014, Blaðsíða 74
9. október 2014 FIMMTUDAGUR| SPORT | 54 FINNUR ORRI MARGEIRSSON 23 ÁRA MIÐJUMAÐUR LÍKLEGAST KR BESTI KOSTURINN FH Finnur Orri Margeirsson er á tíma- mótum samkvæmt orðinu á götunni og líklega á leiðinni frá Blikum þrátt fyrir að vanta aðeins þrjá leiki til að jafna félagsmet Arnars Grétarssonar. Finnur Orri er enn ungur þrátt fyrir að vera kominn með mikla reynslu og því góður kostur fyrir lið sem þurfa að styrkja miðjuna. Líklegast er að KR-ingar kræki í kappann en besti kosturinn fyrir hann væri þó að fara í FH. Hann fer væntanlega aldrei í minna félag en KR eða FH. DANÍEL LAXDAL 28 ÁRA MIÐVÖRÐUR LÍKLEGAST STJARNAN BESTI KOSTURINN STJARNAN Daníel Laxdal missti fyrir- liðabandið fyrir tímabilið en upplifði á móti sína stærstu stund þegar hann varð Íslands- meistari með uppeldisfélaginu sínu. Það er erfitt að sjá leikjahæsta Stjörnumanninn í efstu deild spila fyrir nokkurt annað félag en Stjörnuna og Garðbæingar eru örugglega til- búnir með nýjan ásættanlegan samning fyrir hann. Bestu liðin í deildinni myndu þó örugglega taka honum opnum örmum. FÓTBOLTI Leikmannamarkaðurinn á Íslandi opnast aftur 15. október næstkomandi og það má búast við að flest ef ekki öll liðin í Pepsi-deildinni ætli sér að styrkja hópinn. Tími nokkurra leikmanna er liðinn á sumum stöðum og sumir leikmenn hafa komið sér í betri samningsstöðu með flottri frammistöðu í sumar. Hjá sumum snýst dæmið líka um að finna sér rétta staðinn og réttu aðstæðurnar til þess að blómstra. Fréttablaðið hefur litið yfir hóp leik- manna með lausan samning og fundið út hverjir séu feitustu bitarnir á markaðnum í vetur. Við skiptum hópnum í þrjá flokka en þá er ekki hægt að útiloka að samnings- bundnir leikmenn gangi á kaupum á sölum á milli félaga. Stjarnan, FH, KR og Víkingur búa að því að geta reiknað með Evrópu-peningum og Íslandsmeistarar Stjörnunnar eru enn frem- ur í frábærum málum fjárhagslega eftir magnað Evrópusumar. ÍA og Leiknir eru bæði að koma upp í Pepsi-deildina og það má búast við að menn þar á bæ ætli sér að styrkja leikmannahóp- inn fyrir átökin í efstu deild. Bestu leikmennirnir með lausa samninga fá því örugglega mörg símtöl á næstu vikum og margir þeirra geta eflaust valið úr til- boðum. ooj@frettabladid.is, tomas@365.is Feitustu bitarnir á markaðnum Pepsi-deildinni lauk á laugardaginn og það eru sjö mánuðir í næsta leik. Þangað til gætu margir leikmenn fundið sér nýtt heimili. Fréttablaðið skoðar í dag eft irsóttustu leikmennina á markaðnum. Feitustu bitarnir á leikmannamarkaði Pepsi-deildar karla IGOR TASKOVIC 32 ÁRA MIÐJUMAÐUR LÍKLEGAST VÍKINGUR BESTI KOSTURINN VÍKINGUR Igor Taskovic var magnaður í sumar og fór öðrum fremur fyrir sókn nýliðanna úr Víkinni sem tryggðu sér sæti í Evr- ópukeppninni. Igor er án vafa mikilvægasti leikmaður Vík- ingsliðsins og því væri stórslys ef menn þar á bæ missa hann yfir í annað lið. Það er því lang- líklegast að hann verði áfram með fyrirliðaband Víkings næsta sumar en væntanlega á mun betri samningi. Aðrir fínir bitar ATLI VIÐAR BJÖRNSSON 34 ÁRA FRAMHERJI LÍKLEGAST: FH BESTI KOSTURINN: BREIÐABLIK Vantar aðeins tvö mörk í 100 mörkin en hann skorar ekki mörg mörg sitjandi á bekknum. Gæti orðið fyrstur til að spila 200 leiki og skora 100 mörk fyrir sama félagið og því gæti verið erfitt að fara frá FH. HÓLMAR ÖRN RÚNARSSON 33 ÁRA MIÐJUMAÐUR LÍKLEGAST: FH BESTI KOSTURINN: KR Átti fínt tímabil á miðju FH og kom sterkur til baka eftir að hafa misst úr heilt tímabil vegna meiðsla. Hólmar fékk ekki mikið að spila framan af en var fastamaður í seinni hlutanum sem gæti þýtt nýjan samning í Krikanum. INGIMUNDUR NÍELS ÓSKARSSON 28 ÁRA KANTMAÐUR LÍKLEGAST: FYLKIR BESTI KOSTURINN: FYLKIR Ingimundur Níels endaði tímabilið sem byrjunarliðsmaður en hefur verið inn og út úr byrjunarliðinu síðustu ár. Hefur ekki alveg náð að stíga næsta skref í mikilli samkeppni í FH og til greina gæti komið að snúa aftur til Fylkis þar sem hann átti sín bestu ár. BRYNJAR GAUTI GUÐJÓNSSON 22 ÁRA MIÐVÖRÐUR LÍKLEGAST: STJARNAN BESTI KOSTURINN: STJARNAN Brynjar Gauti er líklega á leiðinni upp á land eftir fjögur ár í Eyjum og fínn kostur fyrir Íslandsmeistarana úr Garðabænum sem þurfa væntanlega að fylla skarð Martins Rauschenberg. Stór og sterkur strákur sem hefur öðlast mikla reynslu á tíma sínum undir Hásteini. IAIN WILLIAMSON 26 ÁRA MIÐJUMAÐUR LÍKLEGAST: VALUR BESTI KOSTURINN: BREIÐABLIK Williamson er harðgerður skoskur miðjumaður sem væri frábær kostur fyrir lið eins og Breiðablik sem er væntanlega að missa Finn Orra Margeirsson. Valsmenn vilja örugglega halda honum en önnur lið gætu freistað bjóði þau honum góðan samning. GRÉTAR SIGFINNUR SIGURÐARSON 32 ÁRA MIÐVÖRÐUR LÍKLEGAST: VALUR BESTI KOSTURINN: VÍKINGUR Grétar Sigfinnur fær ekki nýjan samning hjá KR en vonast eflaust eftir að fá annað tækifæri til að sýna Vesturbæingum að hann á enn mikið eftir. Grétar hefur sýnt það að hann er aldrei betri en þegar hann þarf að sanna sig eins og sást með KR á 2013-tímabilinu. ÓSKAR ÖRN HAUKSSON 30 ÁRA KANTMAÐUR LÍKLEGAST KR BESTI KOSTURINN FH Óskar Örn Hauksson var svo gott sem farinn frá KR á láni til Våler- enga í lok ágúst en ekki tókst að ganga frá félagsskiptunum áður en glugginn lokaðist. Það er lang- líklegast að KR-ingar semji aftur við þennan snjalla leikmann enda ekki gott að missa hann til aðalkeppi- nautanna. Það væri hins vegar afar athyglisvert að sjá hann á kantinum hjá FH við hlið Stevens Lennon og Atla Guðnasonar. Ekki má gleyma þessum … Markmenn á lausu Ingvar Þór Kale Sandor Matus Varnarmenn á lausu Arnór Eyvar Ólafsson Aron Bjarki Jósepsson Ásgeir Eyþórsson Bjarni Ólafur Eiríksson Niclas Vemmelund Miðjumenn á lausu Andrew Sousa Finnur Ólafsson Sigurður Egill Lárusson Halldór Hermann Jónsson Sóknarmenn á lausu Rolf Toft Hörður Sveinsson Chukwudi Chijindu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.