Fréttablaðið - 09.10.2014, Page 74
9. október 2014 FIMMTUDAGUR| SPORT | 54
FINNUR ORRI
MARGEIRSSON
23 ÁRA MIÐJUMAÐUR
LÍKLEGAST KR
BESTI KOSTURINN FH
Finnur Orri Margeirsson er á tíma-
mótum samkvæmt orðinu á götunni
og líklega á leiðinni frá Blikum þrátt
fyrir að vanta aðeins þrjá leiki til að
jafna félagsmet Arnars Grétarssonar.
Finnur Orri er enn ungur þrátt fyrir
að vera kominn með mikla reynslu
og því góður kostur fyrir lið sem
þurfa að styrkja miðjuna. Líklegast er
að KR-ingar kræki í kappann en besti
kosturinn fyrir hann væri þó að fara
í FH. Hann fer væntanlega aldrei í
minna félag en KR eða FH.
DANÍEL LAXDAL
28 ÁRA MIÐVÖRÐUR
LÍKLEGAST STJARNAN
BESTI KOSTURINN STJARNAN
Daníel Laxdal missti fyrir-
liðabandið fyrir tímabilið en
upplifði á móti sína stærstu
stund þegar hann varð Íslands-
meistari með uppeldisfélaginu
sínu. Það er erfitt að sjá
leikjahæsta Stjörnumanninn í
efstu deild spila fyrir nokkurt
annað félag en Stjörnuna og
Garðbæingar eru örugglega til-
búnir með nýjan ásættanlegan
samning fyrir hann. Bestu liðin
í deildinni myndu þó örugglega
taka honum opnum örmum.
FÓTBOLTI Leikmannamarkaðurinn á Íslandi
opnast aftur 15. október næstkomandi og
það má búast við að flest ef ekki öll liðin í
Pepsi-deildinni ætli sér að styrkja hópinn.
Tími nokkurra leikmanna er liðinn á
sumum stöðum og sumir leikmenn hafa
komið sér í betri samningsstöðu með flottri
frammistöðu í sumar. Hjá sumum snýst
dæmið líka um að finna sér rétta staðinn og
réttu aðstæðurnar til þess að blómstra.
Fréttablaðið hefur litið yfir hóp leik-
manna með lausan samning og fundið út
hverjir séu feitustu bitarnir á markaðnum
í vetur. Við skiptum hópnum í þrjá flokka
en þá er ekki hægt að útiloka að samnings-
bundnir leikmenn gangi á kaupum á sölum
á milli félaga.
Stjarnan, FH, KR og Víkingur búa að því
að geta reiknað með Evrópu-peningum og
Íslandsmeistarar Stjörnunnar eru enn frem-
ur í frábærum málum fjárhagslega eftir
magnað Evrópusumar.
ÍA og Leiknir eru bæði að koma upp í
Pepsi-deildina og það má búast við að menn
þar á bæ ætli sér að styrkja leikmannahóp-
inn fyrir átökin í efstu deild.
Bestu leikmennirnir með lausa samninga
fá því örugglega mörg símtöl á næstu vikum
og margir þeirra geta eflaust valið úr til-
boðum. ooj@frettabladid.is, tomas@365.is
Feitustu bitarnir á markaðnum
Pepsi-deildinni lauk á laugardaginn og það eru sjö mánuðir í næsta leik. Þangað til gætu margir leikmenn fundið sér nýtt heimili.
Fréttablaðið skoðar í dag eft irsóttustu leikmennina á markaðnum.
Feitustu bitarnir á leikmannamarkaði Pepsi-deildar karla
IGOR TASKOVIC
32 ÁRA MIÐJUMAÐUR
LÍKLEGAST VÍKINGUR
BESTI KOSTURINN VÍKINGUR
Igor Taskovic var magnaður í
sumar og fór öðrum fremur
fyrir sókn nýliðanna úr Víkinni
sem tryggðu sér sæti í Evr-
ópukeppninni. Igor er án vafa
mikilvægasti leikmaður Vík-
ingsliðsins og því væri stórslys
ef menn þar á bæ missa hann
yfir í annað lið. Það er því lang-
líklegast að hann verði áfram
með fyrirliðaband Víkings
næsta sumar en væntanlega á
mun betri samningi.
Aðrir fínir bitar
ATLI VIÐAR BJÖRNSSON
34 ÁRA FRAMHERJI
LÍKLEGAST: FH
BESTI KOSTURINN: BREIÐABLIK
Vantar aðeins tvö mörk í 100 mörkin en hann skorar ekki
mörg mörg sitjandi á bekknum. Gæti orðið fyrstur til að spila
200 leiki og skora 100 mörk fyrir sama félagið og því gæti
verið erfitt að fara frá FH.
HÓLMAR ÖRN RÚNARSSON
33 ÁRA MIÐJUMAÐUR
LÍKLEGAST: FH
BESTI KOSTURINN: KR
Átti fínt tímabil á miðju FH og kom sterkur til baka eftir
að hafa misst úr heilt tímabil vegna meiðsla. Hólmar fékk
ekki mikið að spila framan af en var fastamaður í seinni
hlutanum sem gæti þýtt nýjan samning í Krikanum.
INGIMUNDUR NÍELS ÓSKARSSON
28 ÁRA KANTMAÐUR
LÍKLEGAST: FYLKIR
BESTI KOSTURINN: FYLKIR
Ingimundur Níels endaði tímabilið sem byrjunarliðsmaður
en hefur verið inn og út úr byrjunarliðinu síðustu ár. Hefur
ekki alveg náð að stíga næsta skref í mikilli samkeppni í
FH og til greina gæti komið að snúa aftur til Fylkis þar sem
hann átti sín bestu ár.
BRYNJAR GAUTI GUÐJÓNSSON
22 ÁRA MIÐVÖRÐUR
LÍKLEGAST: STJARNAN
BESTI KOSTURINN: STJARNAN
Brynjar Gauti er líklega á leiðinni upp á land eftir
fjögur ár í Eyjum og fínn kostur fyrir Íslandsmeistarana úr
Garðabænum sem þurfa væntanlega að fylla skarð Martins
Rauschenberg. Stór og sterkur strákur sem hefur öðlast
mikla reynslu á tíma sínum undir Hásteini.
IAIN WILLIAMSON
26 ÁRA MIÐJUMAÐUR
LÍKLEGAST: VALUR
BESTI KOSTURINN: BREIÐABLIK
Williamson er harðgerður skoskur miðjumaður sem væri
frábær kostur fyrir lið eins og Breiðablik sem er væntanlega
að missa Finn Orra Margeirsson. Valsmenn vilja örugglega
halda honum en önnur lið gætu freistað bjóði þau honum
góðan samning.
GRÉTAR SIGFINNUR SIGURÐARSON
32 ÁRA MIÐVÖRÐUR
LÍKLEGAST: VALUR
BESTI KOSTURINN: VÍKINGUR
Grétar Sigfinnur fær ekki nýjan samning hjá KR en vonast
eflaust eftir að fá annað tækifæri til að sýna Vesturbæingum
að hann á enn mikið eftir. Grétar hefur sýnt það að hann
er aldrei betri en þegar hann þarf að sanna sig eins og sást
með KR á 2013-tímabilinu.
ÓSKAR ÖRN HAUKSSON
30 ÁRA KANTMAÐUR
LÍKLEGAST KR
BESTI KOSTURINN FH
Óskar Örn Hauksson var svo gott
sem farinn frá KR á láni til Våler-
enga í lok ágúst en ekki tókst að
ganga frá félagsskiptunum áður en
glugginn lokaðist. Það er lang-
líklegast að KR-ingar semji aftur við
þennan snjalla leikmann enda ekki
gott að missa hann til aðalkeppi-
nautanna. Það væri hins vegar afar
athyglisvert að sjá hann á kantinum
hjá FH við hlið Stevens Lennon og
Atla Guðnasonar.
Ekki má gleyma þessum …
Markmenn á lausu
Ingvar Þór Kale
Sandor Matus
Varnarmenn á lausu
Arnór Eyvar Ólafsson
Aron Bjarki Jósepsson
Ásgeir Eyþórsson
Bjarni Ólafur Eiríksson
Niclas Vemmelund
Miðjumenn á lausu
Andrew Sousa
Finnur Ólafsson
Sigurður Egill Lárusson
Halldór Hermann
Jónsson
Sóknarmenn á
lausu
Rolf Toft
Hörður Sveinsson
Chukwudi Chijindu