Fréttablaðið - 09.10.2014, Síða 4

Fréttablaðið - 09.10.2014, Síða 4
9. október 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 4 431.000 manns munu byggja Ísland árið 2016, segir Hagstofa Íslands. Þá verða 65 ára og eldri hlutfallslega mun fleiri en fólk á vinnualdri í dag. AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kkolbeins@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is SVONA ERUM VIÐ Vordís Eiríksdóttir veðurfréttamaður Veðurspá NORÐANKALDI næstu daga og fer kólnandi fram að helgi. Vindur þó yfirleitt fremur hægur, 3-10m/s og áfram bjartviðri sunnan heiða en skýjað og von á einhverri úrkomu A- og N-lands, rigningu eða slyddu og síðan éljum N-lands um helgina. 4° 7 m/s 7° 8 m/s 5° 5 m/s 7° 4 m/s NA-læg 5-10m/s Fremur hæg NA-læg, 3-8m/s Gildistími korta er um hádegi 18° 30° 13° 18° 20° 13° 24° 15° 15° 25° 16° 29° 28° 23° 21° 24° 17° 20° 8° 5 m/s 9° 12 m/s 7° 8 m/s 6° 6 m/s 5° 4 m/s 5° 6 m/s 1° 7 m/s 6° 4° 4° 1° 5° 3° 4° 2° 3° 1° Alicante Aþena Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur LAUGARDAGUR Á MORGUN STJÓRNSÝSLA Atvinnuvegaráðu- neytið staðfesti í gær úrskurð Heil- brigðiseftirlits Vesturlands um bann við sölu Hvalabjórs brugg- hússins Steðja. Heilbrigðiseftirlitið stöðvaði sölu bjórsins en Sigurður Ingi Jóhanns- son umhverfisráðherra ákvað samt sem áður að heimila sölu á bjórnum sem seldist upp nokkrum dögum síðar. Niðurstaða ráðuneytisins er að Hvalur hf. hafi ekki haft starfs- leyfi fyrir framleiðslu hvalamjöls í matvæli. - ih Ráðherra heimilaði söluna: Sala hvalabjórs stóðst ekki lög Vinnuvernd ehf. Brautarholt 28 105 Reykjavík s: 5780800 www.vinnuvernd.is vinnuvernd@vinnuvernd.is VINNUVERNDehf LEIÐRÉTT Vegna fréttar síðastliðinn laugardag um breytingar á þjónustu Íslandspósts í dreifbýli skal tekið fram að þjónusta fyrirtækisins á Kópaskeri og Raufar- höfn verður ekki skert. Hins vegar gæti dregið úr tíðni póstdreifingar á bæjum þar í kring um þorpin. DÓMSMÁL Hæstaréttarlögmenn- irnir Ragnar Hall og Helgi Sig- urðsson telja að við rannsóknir á umboðssvikum í efnahagsbrota- málum hafi verið vikið frá hefð- bundnum sjónarmiðum um skýr- leika refsiheimilda. Þetta kemur fram í bréfi sem þeir Ragnar og Helgi sendu Ragn- hildi Hjaltadóttur, ráðuneytis- stjóra í innanríkisráðuneytinu, í vor. Bréfið hefur ekki verið birt opinberlega áður, en eins og fram hefur komið hefur ráðuneytis- stjóri, fyrir hönd ráðherra, óskað eftir því við réttarfarsnefnd að athugasemdir lögmannanna verði teknar til skoðunar. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins fund- uðu verjendurnir með Ragnhildi Hjaltadóttur ráðuneytisstjóra og tveimur skrifstofustjórum í ráðu- neytinu. Ragnar Hall hefur áratugalanga reynslu af lögmannsstörfum og hefur hin síðari ár meðal annars verið verjandi Ólafs Ólafssonar, sem var hluthafi í Kaupþingi. Helgi Sigurðsson var framkvæmda- stjóri lögfræðisviðs Kaupþings og er núna verjandi í Landsbanka- málinu sem er fyrir dómi. Í bréfi sínu segja þeir meðal annars að rannsóknir á meintum umboðs- svikum séu umfangsmesti þáttur- inn í starfsemi embættis sérstaks saksóknara. „Við þær rannsókn- ir hefur að okkar áliti verið vikið frá hefðbundnum sjónarmiðum um skýrleika refsiheimilda, huglæga afstöðu meints brotamanns um að afla sér eða öðrum fjárhagslegs ávinnings og að hann hafi skapað umbjóðanda sínum verulega fjár- tjónshættu. Þá virðist engu máli skipta þótt meintur brotamaður hafi fengið samþykki eftirá fyrir tiltekinni ráðstöfun,“ segir í bréfi þeirra Ragnars og Helga. Þá segja þeir að sú spurning hljóti að vakna hvort fjöldi þeirra umboðssvikamála sem séu til rannsóknar sé tilkominn vegna nýrrar túlkunar á umboðssvika- ákvæðinu og hvort lögskýring- ar sem út úr því hafi komið séu í samræmi við það sem viður- kennt er í þeim löndum sem við berum okkur saman við. „Þá hlýtur það að vera áleitin spurn- ing hvort þessi útvíkkun á gild- issviði ákvæðisins sé tilkomin vegna þrýstings um að ákæra fyrir glæpi vegna hrunsins. Við teljum að ráðuneytið þurfi að skoða hvort ástæða sé til þess að afmarka ákvæðið og leggja frek- ari áherslu á skilyrði ákvæðisins,“ segir í bréfinu. jonhakon@frettabladid.is Funduðu í ráðuneyti vegna meðferðar hrunmálanna Hæstaréttarlögmennirnir Ragnar Hall og Helgi Sigurðsson fengu fund með ráðuneytisstjóra í innanríkisráðu- neytinu vegna málsmeðferðar á sakamálum sem tengjast hruninu. Þeir Ragnar og Helgi telja meðal annars að í rannsóknum á umboðssvikum sé vikið frá hefðbundnum sjónarmiðum um skýrleika refsiheimilda. GERÐU ATHUGASEMDIR Verjendur spyrja hvort fjöldi umboðssvikamála sé til- kominn vegna breytinga á umboðssvikaákvæðinu. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN RAGNAR HALL HELGI SIGURÐSSON ■ Ákvæði um umboðssvik Vikið frá hefðbundnum sjónar- miðum um skýrleika refsiheim- ilda. ■ Ákvæði um markaðsmisnotkun Ákært fyrir markaðsmis- notkun vegna viðskipta sem séu í samræmi við reglur, áralangar viðskiptavenjur á markaði sem allir hafa þekkt og eftirlitsaðilar ekki gert athugasemdir við. ■ Samskipti lögmanna og verjenda Innan sömu dómstóla séu dóm- arar sem gera naumast ráð fyrir samskiptum verjenda og vitna og hins vegar dómarar sem telja ekkert óeðlilegt við slík samskipti. ■ Framsetning dóma Í sumum dómum sé atvikalýsing alfarið tekin upp úr greinargerð ákæruvaldsins. Rök og varnir ákærðu séu ekki rakin í forsend- um dóms. Því geti almenningur ekki kynnt sér röksemdir beggja aðila. ■ Símhlustanir Beiðnir ákæruvaldsins um heim- ildir til símhlustunar séu nær undantekningarlaust samþykktar af dómstólum. Setja þurfi skýrari reglur um framkvæmd hlustana. ■ Húsleitir Húsleitir hafi verið gerðar vegna meintra brota mörgum árum eftir að þau voru framin. Í langflestum tilvikum hafi verið hægt að ná í gögn með viðurhlutaminni hætti. Leitað hafi verið á lögmanns- stofum. ■ Sönnunarbyrði Reglum um sönnun og sönnunar- byrði sem mótast hafi á löngum tíma hafi verið vikið til hliðar. EFTIRFARANDI ATHUGASEMDIR GERA LÖGMENNIRNIR Í BRÉFINU LÖGREGLUMÁL Engar formlegar yfirheyrslur hafa farið fram yfir manninum sem grunaður er um að hafa orðið konu sinni að bana í Stelkshólum 27. september. Sam- kvæmt heimildum Fréttablaðsins er meðal annars beðið eftir niður- stöðum úr krufningu sem og rann- sókn tæknideildar lögreglunnar. Búist er við að skýrslutaka yfir manninum verði öðruhvorumegin við helgina. Hann neitar enn að hafa orðið konu sinni að bana og segir hana hafa svipt sig lífi. - hó Yfirheyrslur ekki hafnar: Heldur enn fram sakleysi GRUNAÐUR Maðurinn situr í gæsluvarð- haldi á Litla-Hrauni. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR FJÖLMIÐLAR 365 miðlar ehf. högnuð- ust um 746 milljónir árið 2013. Hagn- aður ársins 2012 var 305 milljónir og því eykst hagnaður fyrirtækisins um 441 milljón milli ára. EBITDA-hagnaður fyrirtækisins var 1.463 milljónir og nemur sala Póstmiðstöðvarinnar um þriðjungi af þeirri upphæð, samkvæmt til- kynningu frá 365 miðlum. Hlutabréfaflokkar A og B hjá 365 miðlum voru sameinaðir fyrr á þessu ári. Nýr hlutabréfaflokk- ur var gefinn út að nafnverði 445 milljónir og hefur það fé verið greitt til félagsins. Þessir hlutir eru allir í eigu Ingibjargar S. Pálma- dóttur. 365 miðlar hafa einnig keypt hlut Fjölmiðils ehf. og hluta af bréfum Ara Edwald, fyrrverandi forstjóra. Ef Samkeppniseftirlitið heimilar samruna Tals og 365 miðla munu hlutafjáreigendur í Tal fá 19,03 pró- senta hlut í A-flokki hlutabréfa 365 sem mun þá hækka um 354 millj- ónir króna. - ih Hluthafar í Tali munu eignast hlut í 365 miðlum gangi samruni félaganna eftir: Hagnaður 365 eykst milli ára SKILUÐU HAGNAÐI Þriðjungur af EBIDTA-hagnaði 365 var vegna sölu Póstmiðstöðvarinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR BANDARÍKIN Samskiptamiðillinn Twitter hyggst lögsækja banda- rísku alríkislögregluna og dóms- málaráðuneyti Bandaríkjanna. Twitter vill fá að segja frá beiðn- um yfirvalda um aðgang að gögn- um um notendur miðilsins. Twitter er nú óheimilt að upplýsa um þessi samskipti. Twitter telur það stangast á við ákvæði bandarísku stjórnarskrár- innar um tjáningarfrelsi. Málsóknin kemur í kjölfar upp- ljóstrana Edwards Snowden um njósnir yfirvalda vestanhafs. - ih Vilja fá að upplýsa notendur: Twitter í mál við yfirvöld

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.