Fréttablaðið - 09.10.2014, Side 18
9. október 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR VIÐSKIPTI | 18
Seðlabankinn telur skuldaleiðrétt-
ingu ríkisstjórnarinnar geta leitt
til aukinnar lántöku heimila upp
á allt að 47 milljarða króna. Um
tveir þriðju af svigrúminu sem
skapist við leiðréttinguna verði
því mögulega nýttir til frekari
lántöku.
Þetta kom fram á blaðamanna-
fundi sem Seðlabankinn hélt í gær
til að kynna nýtt hefti skýrslunn-
ar Fjármálastöðugleiki.
„Það er ákveðinn hópur af ein-
staklingum sem mun fara úr því
að skulda yfir 80 prósent af virði
fasteigna sinna og niður fyrir 80
prósentin sem mun gera það að
verkum að þeir geta veðsett aftur
upp í fullt rými eigna sinna eða
tekið meiri lán. Við búumst því
við að allt að tveir þriðju af þeim
72 milljörðum sem fara í leiðrétt-
inguna eigi eftir að mynda aukið
veðrými og geti því verið endur-
skuldsettir,“ segir Sigríður Bene-
diktsdóttir, framkvæmdastjóri
fjármálastöðugleikasviðs Seðla-
bankans.
Í skýrslu bankans kemur fram
að eigna- og skuldastaða íslenskra
heimila hefur haldið áfram að
batna. Skuldirnar námu í júní síð-
astliðnum um 99 prósentum af
vergri landsframleiðslu og lækkuðu
þá um 4,6 prósentustig milli ára.
„Nýjustu tölur benda því til að
skuldalækkun heimila sem hófst
snemma árs 2009 sé enn í gangi,“
segir í skýrslunni.
Sigríður segir það mat bankans
að leiðréttingin eigi ekki eftir að
lækka verulega hlutfall skulda
heimilanna af landsframleiðslu.
„Við erum ekki frá því að við
séum komin í ákveðið jafnvægi.
Skuldastaða íslenskra heimila,
sem hlutfall af vergri landsfram-
leiðslu, er í raun ekki mikil miðað
við önnur lönd sem eru með líf-
eyrissjóði og húsnæðiseignir
eins og við erum með. Við erum
til dæmis með mun minni skuld-
setningu en bæði Hollendingar og
Danir. Skuldir heimilanna leita í
ákveðið jafnvægi og þegar þær
eru lækkaðar leita skuldirnar
aftur upp í það jafnvægi,“ segir
Sigríður. haraldur@frettabladid.is
Leiðréttingin fari að
mestu í nýjar skuldir
Skuldaleiðrétting ríkisstjórnarinnar gæti að mati Seðlabankans leitt til aukinnar
lántöku heimila fyrir allt að 47 milljarða króna. Skuldastaðan heldur áfram að
batna og við erum nú með minni skuldsetningu en bæði Danir og Hollendingar.
STAÐAN BATNAR Með aðgerðum ríkisstjórnarinnar til lækkunar verðtryggðra íbúðalána á að færa lánin niður um 72 milljarða
króna. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Skuldir
heimilanna
leita í ákveðið
jafnvægi og
þegar þær eru
lækkaðar leita
skuldirnar
aftur upp í það jafnvægi
Sigríður Benediktsdóttir,
framkvæmdastjóri fjármálastöðugleika-
sviðs Seðlabankans.
Greining Íslandsbanka gerir ráð
fyrir að hagvöxtur verði 3,1 pró-
sent á þessu ári samanborið við
3,5 prósent í fyrra. Síðan er spáð
3,2 prósenta hagvexti á næsta ári
og 2,9 prósenta vexti á árinu 2016.
Þetta kemur fram í þjóðhagsspá
Íslandsbanka sem var birt í gær.
Samhliða þessu muni hagur fyr-
irtækja og heimila halda áfram að
batna. Hagvöxtur í ár verði byggð-
ur á miklum vexti í innlendri eft-
irspurn, sem mun jafnframt halda
áfram að aukast allhratt á næstu
tveimur árum þó að nokkuð dragi
úr vextinum.
Greining segir að framleiðslu-
slakinn sé nú nánast horfinn úr
íslensku efnahagslífi. Hagvöxtur
næstu tveggja ára verði það mikill
samkvæmt spánni að framleiðslu-
spenna fari að myndast í hagkerf-
inu á tímabilinu. Því muni fylgja
aukin verðbólga sem Seðlabank-
inn muni bregðast við með hækk-
un stýrivaxta. Einnig muni þrótt-
mikill hagvöxtur birtast í því að
atvinnuleysi minnkar frekar og
staða vinnumarkaðarins batnar.
„Á næsta ári spáum við að
verðbólga aukist nokkuð frá yfir-
standandi ári, og enn mun bæta í
verðbólgutaktinn árið 2016. Auk-
inn gangur í efnahagslífinu mun
væntanlega endurspeglast í hrað-
ari hækkun launa og áframhald-
andi raunhækkun fasteignaverðs.
Verðbólgan verður engu að síður
í grennd við verðbólgumarkmið
Seðlabankans á spátímanum,“
segir í spánni.
- jhh
Greining Íslandsbanka segir að framleiðsluslakinn sé nánast horfinn úr efnahagslífinu á Íslandi:
Reikna með þriggja prósenta hagvexti
Á FJÁRMÁLAÞINGI Ingólfur Bender,
forstöðumaður Greiningar, kynnti þjóð-
hagsspá á Hilton Reykjavík Nordica.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Innflutnings- og framleiðslufyr-
irtækið ÍSAM ehf. (Íslensk-amer-
íska) hefur keypt allt hlutafé í
Fastus ehf.
Fastus hefur staðið í innflutn-
ingi á tækjum og rekstrarvörum
fyrir heilbrigðisgeirann og hótel-
og veitingamarkaðinn. Í fréttatil-
kynningu ÍSAM um kaupin segir
að nú sé unnið að gerð áreiðan-
leikakönnunar vegna kaupanna
og leitað verði samþykkis Sam-
keppniseftirlitsins og birgja
félagsins. - hg
Þarfnast frekara samþykkis:
ÍSAM kaupir allt
hlutafé Fastus
Fyrsti áfangi örþörungaverk-
smiðju Algalífs á Ásbrú var form-
lega tekinn í notkun í gær. Átta
mánuðir eru liðnir frá undirritun
fjárfestingarsamnings fyrirtæk-
isins og ríkisins.
Verksmiðjan verður fullkláruð
um mitt ár 2015 en í henni verða
ræktaðir örþörungar til útflutn-
ings. Áætlaður kostnaður við
uppbyggingu fyrirtækisins er um
tveir milljarðar króna. Algalíf er
í eigu norska félagsins NutraQ
A/S. - hg
Verksmiðjan opnuð í gær:
Algalíf tekur til
starfa á Ásbrú
Sala á miðum á tónleika Slash hófst í vikunni. Miðarnir eru í þremur verð-
flokkum, 9.990, 13.990 og 38.990 krónur. Tónleikarnir fara fram í Laugar-
dalshöllinni þann 6. desember en Slash kemur fram með söngvaranum
Myles Kennedy og hljómsveitinni The Conspirators.
Guðbjartur Finnbjörnsson, sem stendur að tónleikunum, segir að það
séu ekki margir miðar í boði á 38.990 krónur. Það séu einungis VIP-mið-
ar. „Það er svona um helmingur þeirra farinn,“ segir hann spurður um
málið. Hann segist ekki vilja greina frá því hve margir miðar í heild eru
farnir. „En salan gengur ágætlega,“ segir hann. - jhh
Miðasala á tónleika Slash hófst núna í vikunni:
Dýrustu miðar á nær 40 þúsund
SNILLINGUR Gítarleikarinn Slash heldur tónleika hér í desember. NORDICPHOTOS/GETTY
Stjórn N1 gerir ekki athugasemd-
ir við áframhaldandi störf Mar-
grétar Guðmundsdóttur, stjórnar-
formanns fyrirtækisins.
Í tilkynningu frá N1 segir að
fyrirtækið hafi ráðfært sig við
Kauphöll Íslands og er þar vísað
til reglna fyrir útgefendur fjár-
málagerninga. Margrét er ásamt
öðrum fyrrverandi stjórnar-
mönnum SPRON ákærð fyrir
umboðssvik vegna lánveitinga til
fjárfestingafélagsins Exista.
- jhh
Ákærð fyrir umboðssvik:
Margrét mun
sitja í stjórn N1