Fréttablaðið - 09.10.2014, Síða 29

Fréttablaðið - 09.10.2014, Síða 29
FIMMTUDAGUR 9. október 2014 | SKOÐUN | 29 Eitt sinn söng hljómsveit- in Stjörnukisi „Viltu deyja?“. En þetta er ekk- ert hlaðborð, þér stendur ekkert til boða. Athugaðu að á meðan fjöl- miðlar teyma þig í gegnum uppstrílaðar fyrirsagnir og myndasirkus er raunveru- leikinn að ger- ast. Hann er óáhugaverður. Hann er soðnar kartöflur, rúg- brauð með úld- inni síld. Ekki kræsilegt hlað- borð. Um dag- inn reyndum við, Kolbeinn Óttarsson Proppé og Lommi, að búa til umræðu- vettvang þar sem ekkert átti að vera leyfilegt nema hið óáhuga- verða í knattspyrnu, staðreyndir og hughrif sem venjulega fá ekki aðgang að fjölmiðlum. Innan tveggja daga var Fréttablaðið búið að stilla þessu upp sem ein- hverju „skrímsli“ og gríni. Geta fjölmiðlar ekki sætt sig við einlæg leiðindi? Mannsheilinn hefur tvær leiðir til að bregðast við síend- urtekinni einhæfri vinnu. Sú fyrri, er stuðningsmenn Frétta- blaðsins og annarra slíkra megin straums miðla boða, er að forheimskast, horfa bros- andi á færibandið og leiklesa yfir pakkningarnar gamlar sápu óperur. Sú seinni, sem við aðhyllumst og boðum, er að stækka vöðvana í skeifunni, sjá að tetra pak kassi #75 er næstum einsog tetra pak kassi #85. Njóta leiðindanna og skilja betur en nokkur hvernig allt fúnkerar. Hvorum aðilanum vorkennum við frekar? Réttur- inn til að láta sér leiðast og eiga nógu mörg tækifæri til að vera leiðinlegur er rétturinn til lífs, að vera lifandi og að skilja lífið. Hættum að óttast það að vera leiðinleg. Hættum að óttast það að láta okkur leiðast. Keyrðum okkur út Karnivalið er búið. Við keyrðum okkur út, í vinnustaðaleikjum, skemmtistaðasleikjum, í skríls- látum við flllippskúnkana í svörtu maríu og núna loks í ein- hverju gríni á Feisbúkk. Það er enginn brandari að hefjast hér og það sem sagt verður næst og næst og næst er ekki pönslæn. Þetta er leiðinlegt. Óáhugavert. Njótið þess án þess að hörfa. Um þig kveður aldan og andvarans sog, þér óma leiðindi, hjarta á grafið, til þín horfa loftsalsins þjótandi log, til þín streymir sál mín, sem leiðinn í hafið. Almáttku leiðindi hrein og há, ég hneigi mig ann ykkur brennandi þrá. Stjörnudjásnið sem draugrifinn smokkur draum við áttum um leiðann, en vinsældir þá vógu okkur. Svona orti Einar Benedikts- son aldrei, enda var hann leið- inlegt skáld. Hann hefði aldrei ort um rifinn smokk, hvað þá draugrifinn, enda varð það orð aðeins til vegna stuðlasetningar. En einmitt leiðindi Einars sem skálds, tilgerðarleikinn, orða- gjálfrið, gerði það að verkum að hann var á endanum huslaður í þjóðargrafreitnum. Innst inni tignum við nefnilega leiðind- in, sérstaklega uppskafnings- leg leiðindi. Og hvað er upp- skafningslegra og leiðinlegra en óáhugaverðar upplýsingar um fótbolta? Jú, algjörlega óáhuga- Rétturinn til að vera leiðinlegur er rétturinn til lífs verðar fótboltaupplýsingar. Eitt orð getur dimmu í dags- ljós breytt, ef drulluleiðinlegt er það, orti Einar einmitt ekki heldur, en hefði betur gert. Hyllum hið óáhugaverða Verkið Hellirinn eftir Mervy Peake hefst einhvern tíma um ísöld, þegar ung, falleg stúlka gengur inn í ókunnugan helli og fjölskyldan sem býr þar veit ekki hvort henni beri að hylla hana sem gyðju eða myrða. Að sjálfsögðu fara þau hinn gullna meðalveg og gera misheppn- aða tilraun til að drepa hana. Í þriðja og síðasta þætti leik- ritsins er hafin kjarnorkustyrj- öld og aðalhetjan rís upp úr lík- hrúgu og æpir á áhorfendur: „Ó! Heimurinn er óendanlega skrítinn en ég get ekki dáið. Get ekki dáið. Dauðinn fær ekki að eiga mig.“ Og sjáið. Hellirinn. Þæginda- ramminn. Það er brennisteins- mengun í loftinu, og einhver- staðar eru þeir farnir að stafla líkunum – ekki þessum efnis- kenndu, heldur hugmyndafræð- inni. Voninni. Þeir einu sem nenna að rísa upp úr líkhrúgun- um eru þeir sem hafa enga aðra trú en að dauðinn sé glataður. Heilu turnarnir reistir til þess eins að segja manninum með ljáinn að fökka sér, vegir sem gera okkur kleift að finna guð í fjörunni, IKEA í Garðabæ og eymdina á Selfossi – en engan dauða. Við örkum niður Laugaveginn og lítum brosandi á gangstétt- ina. Ekki líta upp, þá sjáið þið heimsendasýnina sem hrynur brátt af þakbrúninni. Ókunn- ugar ufsagrýlur sem skaga fram úr gráum veggbrúnum bygg- inganna. Hinar óáhugaverðu staðreyndir sem flestir kjósa að hunsa. Það eina sem við viljum er tækifæri til að gefa lífinu, jafnt sem dauðanum, puttann og hylla hið óáhugaverða. SAMFÉLAG Kolbeinn Óttarsson Proppé Jón Örn Loðmfjörð Höfundar eru áhugamenn um leiðindi Býður Ásdísi Guðmundsdóttur og Karólínu Ólafsdóttur velkomnar til starfa Á stofunni starfa fyrir: Bjarki Hjálmarsson, Elsa Sæný Valgeirsdóttir, Hildur Kristín Sveinsdóttir, Hólmfríður Þorsteinsdóttir, María Jónsdóttir og Sigrún Konráðsdóttir Þjónusta í boði: Úrlausn og greining stoðkerfisvandamála Heilsustoð – stuðningur til betra lífs Vefjagigtaklúbbur hefst í þessari viku Heilsufarsmælingar Fræðsla og ráðgjöf Hreyfigreining Hægt er að panta tíma í sjúkraþjálfun í síma 564 4067 eða senda póst á sjukrathjalfunin@sporthusid.is Sjúkraþjálfunin Sporthúsinu - Dalsmára 9-11 - Kópavogi Ásdís Guðmundsdóttir Karólína Ólafsdóttir ➜Það eina sem við viljum er tækifæri til að gefa lífi nu, jafnt sem dauð- anum, puttann og hylla hið óáhugaverða.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.