Fréttablaðið


Fréttablaðið - 09.10.2014, Qupperneq 32

Fréttablaðið - 09.10.2014, Qupperneq 32
FÓLK|TÍSKA Heiðrún Björk Jóhannsdóttir sem er alltaf kölluð Heiða byrjaði snemma að hanna og sauma eigin föt. Hún á og rekur hönn- unarfyrirtækið Ísafold og á einnig verslunina og vinnustofuna Ræmuna á Nýbýlavegi ásamt vinkonu sinni, Svövu í Evuklæðum. Heiða hannar og framleiðir alls konar töskur og fylgihluti úr nátt- úrulegum hráefnum eins og selskinni, ull, refa- og hreindýraskinni og endurvinnur mikið úr gömlum leðurfatnaði. Ertu tískumeðvituð varðandi eigin klæðaburð? Já, en ég er ekkert alltaf að pæla í því samt. Er voða praktísk þegar kemur að fatavali. Hvernig klæðir þú þig hversdags? Ég vel mér helst þægileg föt úr góðum efnum. Ég er mikil kjólakerling en er svolítið að detta í buxurnar núna. Svo fer þetta svolítið eftir því hvað ég er að fara að gera í vinnunni þann daginn. Hvernig klæðir þú þig spari? Þá nota ég kjólana mína og poppa þá upp með flottum sokkabuxum og kúl hálsmenum eða aukahlutum. Hvernig lýsir þú stílnum þínum? Afslappaður með smá rokki í bland. Hvar kaupir þú fötin þín? Ég er svo heppin að ég þarf ekki að fara langt til þess, þar sem ég starfa með svo frábærum fatahönnuði og kaupi flest mín föt í versluninni okkar, Ræmunni. Ef ég fer til útlanda þá kaupi ég kannski eina og eina flík og vanda þá valið og fæ mér eina vandaða í staðinn fyrir margar ódýrar. Eyðir þú miklu í föt? Nei, ekki nóg. Þarf eitthvað að fara að bæta úr því! Hver er uppáhaldsflíkin þín? Gærukraginn og nýju grænu skórnir. Uppáhaldshönnuður? Hin hollenska Cora Kemp- erman. Svo hef ég alltaf haldið upp á og fylgst með Vivienne Westwood. Bestu kaupin? Án efa leðurstígvélin sem ég keypti fyrir sjö til átta árum og nota enn! Verstu kaupin? Þau eru nokkur. Óþarfi að vera að núa mér því um nasir! Hverju verður bætt við fataskápinn fyrir vetur- inn? Ég er með nokkrar óskaflíkur. Ein af þeim er dásamleg, litrík ullarslá frá Evuklæðum í Ræmunni Hverju ertu helst veik fyrir þegar kemur að tísku? Eins og flestar konur – skóm. Hvers konar fylgihluti notarðu? Ég er sjálf fylgi- hlutahönnuður svo ég á ansi gott úrval. Mest nota ég þó „Foxý“-hálsmen úr grænlenskum perlum með kögri og refadúsk. Leðuraxlabönd og kögur- kraga. Svo er gærukraginn aldrei langt undan. Áttu þér tískufyrirmynd? Nei, enga sérstaka. Ég reyni að vera trú sjálfri mér þótt ég sæki auðvitað innblástur í allar áttir. Kjóll, pils eða buxur? Já. Stutt eða sítt? Núna sítt. Háir hælar eða flatbotna? Hælar spari, annars flatir. Hvað er annars helst að frétta? Allt gott! Er núna á fullu að hanna og framleiða nýjar vörur fyrir jóla- vertíðina og svo erum við Ræmuskvísur að undir- búa eins árs afmælið okkar sem við munum halda upp á þann 23. október með tískusýningu og til- heyrandi partístandi. MIKIL KJÓLAKERLING TÍSKA Heiða klæðist yfirleitt þægilegum fötum úr góðum efnum. Hún notar kjóla mikið en leðurstígvél sem hún keypti fyrir átta árum eru bestu kaupin. FULLT AF FYLGIHLUTUM Heiða hannar fylgihluti þannig að hún á gott úrval af þeim. Gæru- kraginn er mikið notaður. MYND/STEFÁN Fylgist með okkur á facebook.com/Parisartizkan Skipholti 29b • S. 551 0770 Basler er með þýskar vörur í stærðum 36-48. Erum með 5 merki frá tískurisanum Max Mara má nefna Penny Black, Weekend, Code, Marina Rinaldi og Persona. Vandaðar og flottar vetravörur komnar í glæsilegu verslun okkar! Verið velkomin. TUPPERWARE LAGERSALA í Háholti 23, Mosfellsbæ Frábærar vörur í miklu úrvali Allt að 60% afsláttur! Opið alla virka daga í október kl. 13:00-18:00 Mirella ehf – heildverslun Háholt 23, 270 Mosfellsbær Sími: 586 8050 / Netfang: mirella@simnet.is Verð 13.900 kr. Einn litur: svart Stærð 34 - 56 Opið virka daga kl. 11–18. Opið laugardaga k l. 10–16.Kík ið á m yn di r o g ve rð á Fa ce bo ok Laugavegi 178 (Bolholtsmegin) | Sími 555 1516 Bæjarlind 6 • S. 554 7030 Við erum á Facebook Flottir kjólar kr. 11.900.- Str: 40-56/58 Litir:svart og fjólublátt
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.