Fréttablaðið


Fréttablaðið - 09.10.2014, Qupperneq 39

Fréttablaðið - 09.10.2014, Qupperneq 39
Geðhjálp ●FIMMTUDAGUR 9. OKTÓBER 2014 5 fannst mér ég ekki eins reið þá. Svo komu fleiri efni og á endanum var ég í öllum efnum sem til eru á Íslandi, nema spraut- um. Ég slapp við þær sem betur fer.“ Einu skiptin sem Sunneva hætti að drekka og dópa tímabundið var til að fá að koma heim. „Það er svo margt sem maður kann ekki að meta nema maður hafi lifað án þess. Til dæmis að fara í sturtu, fá að borða og finna þvottaefnis- lykt.“ Frá febrúar og fram í júní á þessu ári var Sunneva djúpt sokkin. „Ég var á svakalegri keyrslu og var meira og minna vakandi allan sólarhringinn. Ég var búin að brjóta allar brýr að baki mér. Mamma var búin að loka á mig, ég var 46 kíló en er 167 cm á hæð, búin að bráka í mér rifbeinin og það var búið að reyna að selja upp á mig. Þá var dópið líka hætt að virka og ég gat ekki flúið hugsanir mínar þótt ég væri vakandi og dópandi í marga daga.“ Þegar hér var komið við sögu reyndi móðir Sunnevu að fá hana heim með lof- orði um að hún ætti pláss í Hlaðgerðar- koti. „Það var reyndar ekki alveg rétt en þau voru búin að ítreka þá beiðni mörg- um sinnum. Ég var því hjá ömmu og afa um tíma að bíða eftir plássi en fannst ég vera að deyja. Ég sagði mömmu að ef ég kæmist ekki inn strax myndi ég kála mér.“ Loks fékk hún inni í Hlaðgerðarkoti. „Ég var ekkert ákveðin í að verða edrú en þarna inni gerðist eitthvað. Ég fann minn æðri mátt og fékk andlega vakn- ingu um að þetta gengi ekki lengur og að leiðin lægi bara niður á við,“ segir Sunn- eva og finnst Hlaðgerðarkot besta með- ferðarstofnun sem hún hefur farið á. Hún segir lífið í dag ótrúlegt. „Það er yndislegt. Ég er orðin skýr aftur, að fá tilfinningar aftur og farin að geta elsk- að fólk af því ég elska sjálfa mig. Ég get borið virðingu fyrir fólki af því ég ber virðingu fyrir mér. Ég get hleypt fólki að mér og er farin að taka ábyrgð, tek lyfin mín og veit að ég þarf á þeim að halda,“ segir Sunneva sem mætir á fundi hjá tólf spora samtökum daglega og sækir kirkju. Hún segir móður sína í skýjunum yfir að endurheimta dóttur sína. „Þetta er búin að vera stöðug barátta hjá henni frá 2009,“ segir hún og finnst gaman hvað allir eru stoltir af henni. Nú tekur við endurhæfing þar sem Sunneva fær þjálfun í því að tak- ast á við sitt nýja líf. Það er svo margt sem maður kann ekki að meta nema maður hafi lifað án þess. Til dæmis að fara í sturtu, fá að borða og finna þvottaefnislykt. Á ráðstefnu Geðhjálpar og Olnbogabarna þann 23. október munu þessar ungu konur deila reynslu sinni og koma með sínar hugmyndir um hvers konar úrræði henti best ungmennum með tvíþættan vanda upp í 25 ára aldur. Frá vinstri: Glódís Tara Fannarsdóttir, Sunneva Ýr Sævarsdóttir, Sara Helena Bjarnadóttir Blöndal og Súsanna Sif Jónsdóttir. MYND/VALLI Málþing Geðhjálpar og Olnbogabarna um Börn og ungmenni með tvíþættan vanda Hvernig kemur heilbrigðis- og velferðaþjónusta til móts við börn og ungmenni með geðrænan- og vímuefnavanda? Hvað er í veði? Höfum við villst af leið? Hvað gerum við nú? Gullteigur, Grand Hótel 23. október 2014. Fundarstjóri Helgi Seljan. 10.00 – 10.15 Inngangsávarp Lilja Sigurðardóttir, formaður Olnbogabarna. 10.15 – 10.30 Hvernig er ungmennum upp í 25 ára aldur með geðrænan- og vímuefnavanda sinnt í íslensku samfélagi? Eygló Harðardóttir velferðarráðherra. 10.30 – 10.45 Mannleg reisn í reikulum heimi Jón Ásgeir Kalmansson, heimspekingur. 10.45 – 11.00 Samspil geðrænna erfiðleika og vímuefnanotkunar Kjartan J. Kjartansson, yfirlæknir fíknigeðdeildar Landspítala-Háskólasjúkrahúss (LSH). 11.00 – 11.30 Upplifun mín af tvíþættum vanda, kerfinu. Hvað hjálpaði mér mest við að ná jafnvægi/bata? Ungmenni. 11.30 – 12.00 Upplifun mín af því að eiga barn með tvíþættan vanda (barnið /kerfið). Hverju þarf að breyta í þjónustu við þennan hóp/foreldra? Foreldrar. 12.00 – 12.15 Hvernig hjálpar Fjölskylduhús fjölskyldum barna með tvíþættan vanda? Kristín Snorradóttir, meðferðarráðgjafi hjá Fjölskylduhúsi. 12.15 – 12.45 Hádegishlé - veitingar 12.45 – 13.00 Hvernig er þörfum barna með geðrænan og/eða vímuefnavanda sinnt í úrræðum á vegum Barnaverndarstofu? Halldór Hauksson, sviðsstjóri meðferðarsviðs Barnaverndarstofu. 13.00 – 13.15 Eru sveitarfélögin fær um að sinna þörfum barna/ungmenna með geðrænan og/eða vímuefnavanda? Sandra Hlíf Ocares lögfræðingur og fyrrverandi formaður Barnaverndarnefndar Reykjavíkurborgar. 13.15 – 13.30 Hvernig sinnir Barna- og unglingageðdeild Landspítalans (BUGL) þörfum barna/ungmenna undir 18 ára aldri með geðrænan og/eða vímuefnavanda? Vilborg Guðnadóttir deildarstjóri legudeildar og Unnur Heba Steingrímsdóttir þjónustustjóri göngudeildar Barna- og unglingageðdeildar LSH. 13.30 – 14.00 Hvernig sinnir Landspítalinn ungmennum frá 18 til 25 ára með geðrænan- og vímuefnavanda? Hjördís Tryggvadóttir, sálfræðingur og teymisstjóri á Teigi, dagdeild fyrir áfengis- og vímuefnameðferð. Manda Jónsdóttir, aðstoðardeildarstjóri, sérhæfðrar endurhæfingargeðdeildar á Kleppi, og Nanna Briem, geðlæknir á endurhæfingardeildinni Laugarási. 14.00 – 14.15 Kaffihlé 14.15 – 14.30 Er Vogur í stakk búinn til að sinna ungmennum frá 13 til 25 ára með tvíþættan vanda? Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir á Vogi. 14.30 – 14.45 Hvaða þjónustu veita fangelsin ungum föngum upp í 25 ára með tvíþættan vanda? Margrét Frímannsdóttir, fangelsisstjóri á Litla-Hrauni. 14.45 – 15.00 Hvers konar úrræði henta best ungmennum með tvíþættan vanda upp í 25 ára aldur? Ungmennin sjálf (sjá ofar) kynna hugmyndir sínar að nýjum leiðum. 15.00 – 15.45 Pallborð Þátttakendur í pallborði: Eygló Harðardóttir, velferðarráðherra, Pétur Broddason, forstöðumaður meðferðarheimilisins að Laugalandi, Stefán Eiríksson, sviðsstjóri Velferðarsviðs Reykjavíkurborgar, Kjartan J. Kjartansson, yfirlæknir fíknigeðdeildar LSH, Guðrún Marinósdóttir deildarstjóri hjá Barnavernd Reykjavíkur og Súsanna Sif Jónsdóttir. 15.45 – 16.00 Samantekt – lok Hrannar Jónsson, formaður Geðhjálpar. Þátttakendur eru vinsamlega beðnir um að skrá sig á málþingið með því að senda tölvupóst með nafni þátttakanda og nafni og kennitölu greiðanda verkefnisstjori@gedhjalp.is. Aðgangseyrir kr. 1.500, frítt fyrir félaga í Geðhjálp og Olnbogabörnum. Hægt er að skrá sig í Geðhjálp á www.gedhjalp.is. Hægt er að skrá sig í Olnbogabörn www.olnbogabornin.is.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.