Fréttablaðið - 09.10.2014, Side 44

Fréttablaðið - 09.10.2014, Side 44
9. OKTÓBER 2014 FIMMTUDAGUR10 ● Geðhjálp AKUREYRI Draupnisgötu 5 462 3002 EGILSSTAÐIR Þverklettum 1 471 2002 REYKJAVÍK Skeifunni 5 581 3002 REYKJAVÍK Skútuvogi 12 581 3022 – fyrir kröfuharða ökumenn www.dekkjahollin.is Skoðaðu úrvalið á vefnum okkar: /dekkjahollin Verum örugg á veginum Dekkin skipta öllu máli! Þú færð þau í Dekkjahöllinni. Erla Kristinsdóttir, formaður samtakanna Gefðu gjöf sem yljar, sér til þess að allir sem þurfa að dvelja á geðdeild á aðfangadag fái jólagjöf. J ólin 2012 las Erla Kristinsdóttir pistil eftir blaðamanninn Erlu Hlynsdóttur sem bar yfirskriftina Jól á Kleppi. Þar lýsti hún því hvernig er að vera á vakt á að- fangadagskvöld á Kleppi. Í pistlinum kom fram að spítalinn hafi á árum áður gefið sjúklingum litla gjöf en að það hafi verið lagt af í sparnaðarskyni. Sumir vistmenn áttu engan að og fengu því engar gjafir. „Pistillinn hreyfði við mér,“ segir Erla. „Ég á litla systur sem hefur glímt við þung- lyndi og dvalið á Kleppi. Mín hugsun var sú að hún eða einhver annar nákom- inn gæti verið í þeirri stöðu að þurfa að dvelja á geðdeild um jól. Mér fannst skítt að í okkar ríka samfélagi væri fólk sem fengi enga jólagjöf og langaði að leggja mitt af mörkum til að bæta úr því.“ Erla setti sér í kjölfarið það áramótaheit að jólin 2013 myndi hún sjá til þess að allir sem þyrftu að dvelja á geðdeild á aðfangadag fengju jólagjöf. „Til að skjalfesta heitið setti ég það á Facebook og fékk strax mjög góð viðbrögð og lýstu margir því yfir að þeir vildu hjálpa til.“ Síðastliðið haust fór Erla ásamt fylktu liði af stað með átakið Gefðu gjöf sem yljar og var útkoman betri en hún þorði að vona. „Við gáfumst upp á að telja gjafirnar en þær voru á bilinu tvö til þrjú hundruð. Langstærstur hluti gjafanna kom frá einstaklingum en eitthvað var um gjafir frá fyrir- tækjum líka. Gjafirnar fóru á geðdeildir Landspítalans við Hringbraut, Klepp, inn á fjög- ur sambýli fyrir geðfatlaða og athvörf fyrir heimilislausa. Á suma staði fóru tvær gjaf- ir og afganginn fórum við með í Kvennaathvarfið,“ upplýsir Erla. Hún segir hópinn í raun ekki hafa gert sér grein fyrir umfanginu fyrr en undir lokin og áætlaði því bara einn dag í innpökkun. „Við gerum það ekki aftur,“ segir Erla og hlær. Henni tókst að fá tvo starfsmenn frá Kleppi til liðs við sig á loka- metrunum. „Það munaði miklu. Þeir hand- tíndu í poka fyrir skjólstæðinga sína enda höfðum við eðlilega ekki upplýsingar um hverjir lágu inni. Við fengum líka mikið af prjónadóti sem við gáfumst upp á að pakka inn enda erfitt að velja á fólk sem þú þekkir ekki. Þetta fór niður á Klepp þar sem starfs- fólkið úthlutaði gjöfunum.“ Erla mun halda ótrauð áfram með átak- ið, en hún stofnaði samtök í kringum átak- ið í vor. „Þau voru stofnuð 5. maí á afmælis- degi systur minnar. Við erum fimm í stjórn og höldum úti síðunni Gefðu gjöf sem yljar á Facebook, sem við munum keyra upp nú í tengslum við afmæli Geðhjálpar. Eins er hægt að senda póst á gefðugjofsemyljar@ gmail.com. En hvað ættu þeir sem eru aflögufærir að gefa? „Við mælum með snyrtivörum með litlum ilmi og afþreyingu eins og bókum, mynddiskum og geisladiskum. Eins leik- hús- og tónleikamiðum. Þá koma sængur- föt, handklæði, fatnaður og fylgihlutir sér alltaf vel. Sér til þess að allir fái jólagjöf Gjafirnar fóru á geðdeildir Landspítalans við Hring- braut, Klepp, inn á fjögur sambýli fyrir geðfatlaða og athvörf fyrir heimilislausa. Það var pistill blaðakonunnar Erlu Hlynsdóttur, Jól á Kleppi, sem varð til þess að Erla Kristinsdóttir fór af stað með átakið. Í pistlinum kom fram að sumir vistmenn á Kleppi fengju engar jólagjafir. MYND/ERNIR Linda Dögg Hólm starfar sem ráðgjafi hjá Geðhjálp og aðstoð- ar bæði fólk með geðraskanir og aðstandendur þeirra. „Þjónusta ráðgjafans nær yfir nokkur svið. Ég veiti stuðnings- og matsviðtöl, til að skilgreina vanda, veita upplýsingar og leið- beiningar um úrræði og með- ferð. Ég veiti eftirfylgni bæði gegnum síma, í viðtölum eða í tölvupósti og veiti stuðningsvið- töl fyrir þá sem þess óska. Ég tek einnig við kvörtunum vegna þjónustu,“ segir Linda Dögg sem tók við hlutverki ráðgjafa Geð- hjálpar í nóvember í fyrra. „Þetta fór hægt af stað en hefur aukist jafnt og þétt. Það sem af er ári hafa borist til mín yfir fimm hundruð erindi,“ segir Linda og bendir á að ráðgjöfinni sé ætlað að vera leiðbeinandi en hún sé ekki hugsuð sem meðferð. „Viðtölin hafa verið stærsti hluti starfsins en að jafnaði er fólk að koma frá einu upp í fjögur skipti. Stundum oftar til dæmis þegar fólk er að bíða eftir að komast í meðferð,“ segir Linda Dögg. Ástæður viðtalanna eru margs konar. „Oft eru þetta praktísk mál á borð við það að sækja um endurhæfingarlíf- eyri eða fylla út skjöl á netinu. Stundum þarf fólk bara stuðn- ing í læknisheimsókn og þá fer ég með í hana,“ segir Linda og telur að fólk kunni vel að meta slíkt. „Það eru svo margir sem eiga ekki aðstandendur til að leita til og mér finnst mjög gefandi að geta hjálpað.“ MIÐLAR AF EIGIN REYNSLU Linda Dögg er með BS-gráðu í sálfræði og hún er einnig fyrr- verandi notandi geðheilbrigðis- þjónustunnar. „Ég greindist með geðhvörf í kringum aldamótin. Ég þurfti að leggjast inn og fara á endurhæfingarlífeyri. Ég upp- lifði hvernig er að vera sjúkling- ur og það hefur nýst mér ótrú- lega vel að hafa þá reynslu.“ HVERNIG Á AÐ HAFA SAMBAND? Viðtöl eru veitt virka daga. Þeir sem óska eftir slíku viðtali geta annað hvort hringt í Geðhjálp í síma 570 1700 frá 9 til 15 á virk- um dögum eða sent póst á Lindu Dögg á linda@gedhjalp.is. „Svo er auðvitað alltaf hægt að koma við hjá okkur í Borgar- túni 3 frá níu til þrjú, þó ekki sé nema til að fá kaffisopa,“ segir Linda Dögg en öruggast er að panta tíma. Linda tekur fram að hún sé bundin þagnarskyldu líkt og lög um málefni fatlaðra taki til. Veitir stuðning og hjálpar við praktísk mál Linda Dögg Hólm starfar sem ráðgjafi hjá Geðhjálp. MYND/VILHELM

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.