Fréttablaðið - 09.10.2014, Page 66
9. október 2014 FIMMTUDAGUR| LÍFIÐ | 46
„Jón frá Ljárskógum var einn
vinsælasti tónlistarmaður lands-
ins á fjórða og fimmta áratug
síðustu aldar, nokkurs konar
Bing Crosby Íslands. Hann og
félagar hans í M.A.-kvartettin-
um sungu sig inn í hug og hjörtu
þjóðarinnar og voru í raun
fyrstu dægurstjörnurnar hér
á landi,“ segir Sigurður Helgi
Oddsson, listrænn stjórnandi og
skipuleggjandi söngskemmtun-
arinnar Syngdu mig heim, sem
hann stendur fyrir í tilefni þess
að öld er liðin frá fæðingu Jóns.
Sigurður segir fá dæmi í
íslenskri tónlistarsögu um
áþekkar vinsældir og M.A.-
kvart ettinn naut á sínum tíma.
Sérstaklega hafi söngtextar
Jóns átt upp á pallborðið og lifi
þeir enn með þjóðinni, t.d. Sestu
hérna hjá mér, ástin mín, Kom
vornótt og syng og Blærinn í
laufi. „Söngdagskráin til heið-
urs Jóni og M.A.-kvartettinum
var fyrst flutt á hátíðartónleik-
um í Vídalínskirkju í Garðabæ í
vor fyrir fullu húsi. Við bjugg-
umst við um 200 manns, en á
endanum komu hátt í eitt þúsund
og þurfti að opna safnaðarheim-
ilið til að allir kæmust fyrir. Á
tónleikunum, sem við héldum í
kirkjum og félagsheimilum víða
um land í sumar var líka yfirleitt
húsfyllir. Eldri tónlistargest-
ir höfðu margir á orði að þeir
hafi horfið aftur til ungdómsár-
anna þegar þeir hlýddu á þessar
gömlu dægurlagaperlur,“ segir
Sigurður Helgi.
Tónleikarnir hverfast um Jón
frá Ljárskógum og milli atriða,
sem samanstanda af einsöng,
dúettum, kvartett og kór, verður
fjallað um líf hans og list. Flytj-
endur á tónleikunum, sem hefjast
kl. 20.00 í Langholtskirkju föstu-
dagskvöldið 10. október verða
auk Sigurðar Helga, sem spilar
á píanó, Una Dóra Þorbjörns-
dóttir, Unnur Birna Björnsdótt-
ir, Guðmundur Davíðsson og
Kvartettinn Emma, nýstofnaður
söngkvartett í anda M.A.-kvar-
tettsins. Einnig mun Karlakór
Reykjavíkur, sem Jón söng með
um skeið, hefja upp raust sína.
„Það kæmi mér ekki á óvart að
við fylltum kirkjuna, sem tekur
500 manns. Við ætlum að flytja
mörg af þekktustu söngljóðum
skáldsins, þar á meðal nokkur
lög sem M.A.- kvartettinn gerði
fræg, og flytja þau í uppruna-
legri útsetningu, en það hefur
ekki verið gert í 70 ár.“
Sigurður Helgi er að norðan
og mikill áhugamaður um M.A.-
kvartettinn. Hann viðurkennir
að vera helsti hvatamaður tón-
leikahaldsins. „Að baki þeim býr
mikil sagnfræðirannsókn á sögu
kvartettsins og dægurtónlistar-
sögu Íslands á millistríðsárun-
um, en þá ríkti hér mikil söng-
gleði, sem mér finnst kristallast
í persónu Jóns frá Ljárskóg-
um. Ég byrjaði á þessu grúski í
menntaskóla og nú stefnir allt í
að afraksturinn verði bók, sem
væntanlega ber nafnið M.A.-
kvartettinn – Fyrstu dægur-
stjörnur Íslands“ og að hún komi
út að tveimur árum liðnum,“
upplýsir Sigurður Helgi og segir
jafnframt að engir styrktaraðil-
ar séu að tónleikunum.
valgerdur@frettabladid.is
Jón frá Ljárskógum var
Bing Crosby Íslands
Káta Víkurmær, Blærinn í laufi og fl eiri söngljóð eft ir helstu dægurstjörnu
Íslands á liðinni öld verða á dagskrá söngskemmtunarinnar Syngdu mig heim.
EMMA KVARTETTINN Efst fyrir miðju
er Magnús Pétursson 2. tenór, t.v. er
Reynir Bergmann Pálsson 1. bassi,
Björn Bjarnsteinsson 2. bassi t.h. og
Guðmundur Davíðsson 1. tenór neðst
fyrir miðju.
Jón Jónsson fæddist árið 1914 að Ljár-
skógum í Laxárdal. Hann stundaði nám í
Menntaskólanum á Akureyri og útskrifaðist
þaðan stúdent 1934. Á skólaárunum stofnaði
hann M.A.-kvartettinn, sem hann söng með
sitt síðasta lag árið 1942 aðeins 28 ára
gamall og veikur af berklum. Eftir að hafa
horfið frá guðfræðinámi við Háskóla Íslands
gerðist hann kennari við Gagnfræðaskóla
Ísafjarðar. Jón var landsþekktur fyrir ljóð sín
og söngtexta. Eftir hann liggja tvær frumortar
ljóðabækur og söngljóðasafn. Jón lést á Vífil-
stöðum rúmlega þrítugur frá eiginkonu og
kornungum syni.
SÖNG SITT SÍÐASTA LAG MEÐ M.A.-
KVARTETT INUM FRÁ AKUREYRI ÁRIÐ 1942
M.A.-KVARTETTINN Í ÁRDAGA
FERILSINS Efst fyrir miðju er
Jakob V. Hafstein 1. bassi, t.v. Þor-
geir Gestsson 1. tenór og Jón frá
Ljárskógum og neðst fyrir miðju er
Steinþór Gestsson 2. tenór. Þorgeir
og Steinþór voru bræður frá Hæli í
Gnúpverjahreppi.
Markverð umfjöllun um þessi
lykilskáld fyrri hluta síðustu aldar þar
sem í brennidepli eru þau ljóð þeirra
sem nýstárlegust þóttu.
Þorsteinn Þorsteinsson hlaut
Íslensku bókmenntaverðlaunin
2007 fyrir Ljóðhús.
„Hugmyndir fara fljúgandi um, þyrlast
upp og finna sér skjól … Höfundurinn
skrifar skýran og einfaldan texta, er
nálægur og innilegur í tóni …“
Páll Baldvin Baldvinsson / Fréttablaðið
um Ljóðhús
Jóhann Sigurjónsson,
Jóhann Jónsson, Halldór Kiljan
Laxness og Steinn Steinarr.
UPPHAF
NÚTÍMA-
LJÓÐLISTAR