Fréttablaðið - 25.10.2014, Blaðsíða 55
| ATVINNA |
Við óskum eftir í fullt starf:
Faglærðum bifvélavirkja / vélvirkja eða ófaglærðum manni
vönum viðgerðum vörubíla og vinnuvéla. Viðkomandi þarf
að hafa rafsuðukunnáttu og geta unnið sjálfstætt, vera
reglusamur og eiga gott með mannleg samskipti.
Umsækjandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Umsóknarfrestur er til og með 7. nóvember
Frekari upplýsingar veitir Guðmundur í síma 899-6810
Umsóknir skulu sendar á veffangið mummi@vvehf.is
Rekstrarstjóri hjá
Jóa Fel - Hringbraut
Óskum eftir að ráð rekstrarstjóra til
framtíðarstarfa í bakarí Jóa Fel
við Hringbraut (JL húsið)
Viðkomandi þarf að sjá um vaktaskipun, starfsmanna-
ráðningar, innkaup og allan daglegan rekstur á bakaríinu.
Æskilegt að viðkomandi sé ekki yngri en 25 ára
og hafi starfsreynslu úr bakaríi eða veitingastaði.
Viðkomandi þarf að hefja störf sem fyrst.
Vinsamlegast skilið inn umsóknum á joifel@joifel.is
Holtagarðar - Smáralind - Kringlan - Garðabær - Hringbraut
Sérfræðingur í einkaleyfadeild
Starfið tilheyrir þróunarsviði Actavis samstæðunnar. Sérfræðingur í
einkaleyfadeild sér til þess að ítarlegar upplýsingar og stefna um hugverkarétt liggi
fyrir tímanlega og fylgist vel með einkaleyfum í þróun og á líftíma vörunnar.
Helstu verkefni:
• Taka saman grunnupplýsingar um einkaleyfi fyrir verkefnaval og útbúa einkaleyfaskýrslur
• Viðhalda einkaleyfaskýrslum og upplýsingum um einkaleyfi
• Andmæling einkaleyfa
• Útbúa einkaleyfaumsóknir
• Vinna að málaferlum á sviði einkaleyfa
• Taka þátt í stefnumótun um einkaleyfi
Við leitum að einstaklingi:
• með framhaldsmenntun á háskólastigi á sviði efnafræði, lífefnafræði, lyfjafræði eða sambærilegt
• sem býr yfir hæfileikum í textagerð
• með mjög góða enskukunnáttu
• með góða tölvukunnáttu
• sem er fljótur að tileinka sér ný vinnubrögð og þekkingu
Umsóknir óskast fylltar út á www.actavis.is,
undir Störf í boði fyrir 2. nóvember nk.
Einungis er tekið á móti umsóknum á heimasíðu Actavis.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Jenný Sif Steingrímsdóttir,
jsteingrimsdottir@actavis.is
Kíkið á
fleiri laus störf á
www.actavis.is
www.actavis.is
Hugbúnaðarþróun og söluráðgjöf
Hugbúnaðarþróun og viðhald Sala og þjónusta
STÓLPI viðskiptalausnir er 30 ára gamalt hugbúnaðarfyrirtæki
á bak við viðskiptahugbúnaðinn STÓLPA.
Við leitum nú að metnaðarfullum og þjónustuliprum einstaklingum sem hafa brennandi
áhuga á viðskiptahugbúnaði. Viðkomandi þurfa að vera tilbúnir að takast á við fjölbreytt og
krefjandi störf í lifandi starfsumhverfi. Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Nánari upplýsingar veitir Guðmundur Ingi Hauksson, framkvæmdastjóri,
í síma 898-0030. Farið verður með allar fyrirspurnir sem trúnaðarmál.
Umsókn óskast send á netfangið gih@stolpi.is. Umsóknarfrestur er til og
með 3. nóvember nk.
Við leitum að lausnamiðuðum forritara í þróun
og viðhald á STÓLPA viðskiptahugbúnaði
Við leitum að söludrifnum einstaklingi til að
selja og þjónusta STÓLPA viðskiptahugbúnað
Þekking á virkni bókhaldskerfa
Þekking á gagnagrunnum - Access og (MS)SQL
Reynsla af forritun
Þekking á Visual Basic for Applications æskileg
Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
Jákvæðni og góðir samstarfshæfileikar
Geta til greina þarfir viðskiptavina
og veitt þeim ráðgjöf
Reynsla sem bókari æskileg
Reynsla af sölu æskileg
Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
Þjónustulund og jákvæðni
HæfniskröfurHæfniskröfur
LAUGARDAGUR 25. október 2014 7