Fréttablaðið - 25.10.2014, Blaðsíða 108
25. október 2014 LAUGARDAGUR| LÍFIÐ | 80
TVÆR ENDURPRENTANIR
Þrátt fyrir að jólabókaflóðið sé
nýhafið hefur Forlagið þegar ákveðið
að hefja endurprentanir á tveimur
titlum. Um er að ræða hina sögulegu
skáldsögu Náðar-
stund eftir Hannah
Kent sem fjallar um
síðustu aftökuna á Ís-
landi og bókina Kötu
eftir Steinar Braga
sem fjallar um kyn-
ferðisofbeldi
og viðbrögð
við því. - fb
ÁRTÚN BEST Í CHICAGO
Ártún, stuttmynd Guðmundar Arnars
Guðmundssonar, var valin besta leikna
stuttmyndin á alþjóðlegu kvik-
myndahátíðinni í Chicago. Hún hlaut
að launum Gullna skjöldinn. Guðmundi
hefur verið boðið að sýna Ártún á
fjölda erlendra kvikmyndahátíða, þar
á meðal á hátíð í Zagreb í Króatíu, á
norrænum kvikmyndadögum
í Lübeck í Þýskalandi,
norrænni hátíð í Hollandi
og á evrópsku stutt-
myndahátíðinni í Brest í
Frakklandi. Önnur stutt-
mynd eftir Guðmund
Arnar, Hvalfjörður,
hlaut dómnefndar-
verðlaun í Chicago í
fyrra. - fb
Æskulýðsráð veitir í ár viðurkenningar í æskulýðsstarfi. Viður-
kenningarnar eru ætlaðar til að vekja athygli á því sem er til fyrirmyndar
í æskulýðsstarfi á Íslandi og vera hvatning til þróunar, nýsköpunar og
þátttöku. Viðurkenningarnar verða veittar á ráðstefnunni
,,Stefnum saman til framtíðar - Íslenskar æskulýðsrannsóknir 2014"
sem haldin verður í Félagsheimilinu á Seltjarnarnesi 24. nóvember 2014.
Óskað er eftir tilnefningum í eftirfarandi flokkum:
1. Ungt fólk sem lagt hefur alúð við þátttöku sína í æskulýðsstarfi
eða nýtt reynslu sína úr æskulýðsstarfi á öðrum sviðum þjóðlífsins.
2. Aðilar sem sinnt hafa nýsköpun eða þróun í æskulýðsstarfi.
Hægt að tilnefna einstaklinga, félög, hópa eða stofnanir.
3. Starfsmenn eða sjálfboðaliðar í æskulýðsstarfi sem skilað hafa
merku ævistarfi eða á annan hátt hafa skarað fram úr.
Æskulýðsráð skipar dómnefnd sem velur úr tilnefningum og
ábendingum. Tilnefningar ásamt rökstuðningi skal senda til
Valgerðar Þórunnar Bjarnadóttur sérfræðings hjá mennta- og
menningarmálaráðuneytinu í netfangið
valgerdur.thorunn.bjarnadottir@mrn.is
Frestur til að skila inn tillögum er til og með 17. nóvember 2014.
Viðurkenningar
fyrir æskulýðsstarf
Samgöngustofa auglýsir laust til umsóknar 1 leyfi
til leiguaksturs á Akureyri.
Þeir einir geta sótt um leyfi sem hyggjast stunda
akstur leigubifreiðar að aðalatvinnu og hafa lokið
námskeiði fyrir leigubifreiðastjóra. Til að öðlast leyfi
þurfa umsækjendur að uppfylla leyfisskilyrði, skv. 5.
gr. laga nr. 134/2001, sbr.reglugerð nr. 397/2003 um
leigubifreiðar, með síðari breytingum.
Úthlutun leyfis fer fram á grundvelli starfsreynslu
við akstur leigubifreiðar, sbr. 6. gr. reglugerðar nr.
397/2003.
Umsóknareyðublöð má nálgast í afgreiðslu
Samgöngustofu, Ármúla 2, Reykjavík eða á
www.samgongustofa.is.
Umsóknarfrestur er til og með 3. nóvember 2014.
ÚTHLUTUN
ATVINNULEYFA
TIL AKSTURS
LEIGUBIFREIÐA.
„Þetta kom mér algjörlega í opna
skjöldu,“ segir Þórunn Árnadóttir
hönnuður.
Hún var tilnefnd í vikunni til
The Icon Awards, virtra verð-
launa sem fara til framúrskarandi
arkítekta, vöruhönnuða og frum-
kvöðla.
Þórunn er tilnefnd til „Emerg-
ing Design Studio of the Year“,
verðlauna fyrir besta hönnunar-
stúdíóið á uppleið. „Það er frá-
bært að fá þessa athygli því von-
andi fær maður fleiri verkefni út
frá þessu,“ segir hún. „Þetta eru
rosa flott verðlaun og ég hef alveg
tekið eftir þeim áður, þannig að
þetta er mikill heiður.“
Hönnun Þórunnar hefur vakið
mikla athygli undanfarið, meðal
annars Pyropets, kerti sem eru í
laginu eins og sætur köttur sem
skilur eftir sig ógnvænlega beina-
grind þegar kertið hefur brunnið
upp til agna.
Að sögn Þórunnar vinnur hún
nú líka að vörulínunni Ship Ahoy
í samstarfi við netagerðina Eger-
sund á Eskifirði og handverksfólk
á Austurlandi.
Verðlaunaafhendingin fer fram
í Lundúnum í byrjun desember
þar sem Þórunn verður viðstödd
en hún ætlar að taka með sér Ship
Ahoy-línuna til að kynna hana.
„Ég ætla að skreppa til Lund-
úna og tala við ýmsar búðir þar
sem ég er að selja. Það er fínt að
hitta verslanaeigendurna og kíkja
á afhendinguna enda er þetta gott
tækifæri til að hitta fólkið í brans-
anum.“ - þij
Tilnefnd til virtra hönnunarverðlauna
Þórunn Árnadóttir tilnefnd fyrir besta hönnunarstúdíóið á uppleið.
KOM Í OPNA SKJÖLDU Þórunn segir
þetta gott tækifæri til að hitta fólk í
hönnunargeiranum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Trendsetterinn er 20 og eitthvað ára „fashion og
lifestyle“ bloggari á síðunni trendsetterinn.wor-
dpress.com. sem sló rækilega í gegn í vikunni.
Þar sýnir hún spennandi hluti, nýjar snyrtivörur
sem hún fær gefins, fallegan mat í krukkum og
fleira.
Fréttablaðið fékk einkaviðtal við Trendsetter-
inn sem leiddi okkur í allan sannleika um hvernig
ná skal langt sem tískubloggari.
Hvernig byrjaði þetta? „Fólk í kringum mig
var búið að taka eftir því hversu góð tískuvitund
mín væri og bað mig um að blogga. Ég er líka frá-
bær kokkur og get gert kökur með rósakremi. Á
líka fullt af iitt ala-dóti og alls konar fallegu fyrir
heimilið sem ég get sýnt öðrum. Ég hef þetta allt.
Ég er hinn fullkomni tískubloggari,“ segir Trend-
setterinn.
En hvernig hafa viðbrögðin verið við blogg-
inu? „Þau hafa verið betri en ég átti von á og ég
er nú þegar komin með stór verkefni, sem ég get
því miður ekki talað um eins og er. Ég get samt
sagt að mér hefur verið boðið að keppa í Euro-
vision fyrir Íslands hönd og að skrifa handritið
að Áramótaskaupinu. Ég afþakkaði bæði boðin,“
segir hún.
Innblástur segist hún fá úr sínu eigin höfði,
enda sé hún mjög skapandi manneskja með mikið
tískuvit. „Mér finnst langskemmtilegast að gera
persónuleg blogg og svona „new in“ blogg. Þá get
ég sýnt lesendum allt það sem ég hef verið að
kaupa mér og það sem er búið að gefa mér frítt.“
Að vera bloggari hlýtur að hafa sína kosti,
en hún segist því miður ekki vera að raka inn á
þessu. „Það er það eina sem ég er ósátt við. Það
er ekki verið að senda mér nóg af fríu dóti. Ég
hvet fyrirtæki til þess að hafa samband við mig,“
segir hún. Hvert stefnir Trendsetterinn? „Á topp-
inn! Bloggið er ákveðið start fyrir ferilinn. Mig
langar að gera eigin sjónvarpsþátt og bíð bara
eftir símtalinu. Ég ætla að halda áfram að lifa og
hrærast í þessum heimi þar til ég verð 35 ára, en
þá mun ég verða forseti Íslands.“
Trendsetterinn leitar eins og er að umboðs-
manni og biður áhugasama um að bjóða sig fram.
„Ég er búin að tala við Óla Geir [Ólaf Geir Jóns-
son] en hann var því miður upptekinn við að
skipuleggja klámkvölds-aðventutónleika í Hall-
grímskirkju.“ adda@frettabladid.is
Trendsetterinn vill
verða forseti Íslands
Tískubloggið trendsetterinn.wordpress.com sló í gegn í vikunni. Bloggari síð unn-
ar kveðst vera lítið, viðkvæmt blóm sem ekki vill koma fram undir nafni að svo
stöddu. Trendsetterinn, eins og hún kallar sig, ætlar sér stóra hluti í blogginu.
SNIÐUG LAUSN Trendsetterinn
gerði sína eigin útgáfu af vinsælu
Calvin Klein-nærfötunum.
HEITASTA TRENDIÐ Hér má sjá trendsetterinn í nýjasta trendinu,
fur on fur eða feldur við feld.
➜ 30.000 heimsóknir
á síðuna þann 23.
október
➜ 1.000 deildu færslu
hjá henni um iittala
➜ 9. sæti yfir mest
heimsóttu Wordpress-
síður 24. október
TILNEFNDUR SEM
MBA-NEMI ÁRSINS
Leikarinn Guðmundur Ingi Þorvaldsson
hefur verið tilnefndur MBA-nemi ársins
2014. Hann útskrifaðist með MBA-
gráðu síðastliðið vor frá Háskólanum
í Reykjavík. Verðlaunin verða veitt við
hátíðlega athöfn í Lundúnum þann 30.
október þar sem Guðmundur verður
viðstaddur ásamt Þórönnu Jónsdóttur,
forseta viðskiptadeildar HR. Það eru
samtökin AMBA sem standa að
verðlaununum á hverju ári en
þau hafa það að markmiði
að efla viðskiptamenntun á
framhaldsstigi í Evrópu. Guð-
mundur tók nýlega við
starfi framkvæmda-
stjóra Tjarnarbíós. - fbj
„Ég er skelfingu
lostin. Þetta
stendur skrifað
í Biblíunni.
Það stendur í
Biblíunni að það
verði plága og
þetta er hún. Ég
held það.“
OFURFYRIRSÆTAN
NAOMI CAMPELL
UM EBÓLU Í BRESKA
ÞÆTTINUM CELE-
BRITY GOGGLEBOX.