Fréttablaðið - 25.10.2014, Blaðsíða 96
25. október 2014 LAUGARDAGUR| LÍFIÐ | 68
BAKÞANKAR
Hildar
Sverrisdóttur
„Að fá allt þetta lið saman er „júník“,“ segir tónlistarmað-
urinn Bubbi Morthens. „Allir sem ég hringdi í vildu endi-
lega vera með.“
Einvala lið tónlistarmanna og hljómsveita kemur fram
á styrktartónleikum hans í Háskólabíói á miðvikudaginn
vegna nímenninganna sem mótmæltu í Gálgahrauni. Þeir
sem stíga á svið eru Spaðar, Ojba Rasta, Amabadama,
Pétur Ben, KK, Unnsteinn Manúel, Dikta, Jónas Sigurðs-
son og Ritvélar framtíðarinnar, Hallveig Rúnarsdóttir og
Prins Póló. Sjálfur mun Bubbi hugsanlega spila eitt lag.
Kynnir verður Ómar Ragnarsson og segir Bubbi að
enginn annar hafi komið til greina enda mótmælti hann í
Gálgahrauni á sínum tíma. Tónleikarnir hefjast klukkan
20.30 og miðaverð er 2.900 krónur.
Dómur var kveðinn upp yfir nímenningunum í Héraðs-
dómi Reykjaness fyrir tveimur vikum. Þeim var gert að
greiða 100 þúsund krónur í sekt á mann, innan fjögurra
vikna, ellegar fara í fangelsi í átta daga. „Peningasekt
bítur miklu frekar en bara dómur. Hundrað þúsund krón-
ur er mjög mikið fyrir hinn venjulega mann,“ segir Bubbi,
sem hvetur fólk til að sýna stuðning sinn í verki.“
Nímenningarnir hafa sótt um áfrýjunarleyfi til Hæsta-
réttar vegna dómsins. Fari svo að þeir vinni málið rennur
peningurinn sem safnast á tónleikunum til umhverfis-
verndar. - fb
Einvala lið á styrktartónleikum
Ojba Rasta, KK, Prins Póló og Dikta spila á Gálgahraunstónleikum í næstu viku.
BUBBI MORTHENS Tónlistarmaðurinn stendur fyrir
styrktartónleikum í Háskólabíói á miðvikudagskvöld.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Hundrað þús-
und krónur er mjög
mikið fyrir hinn
venjulega mann.
Allir borga barnaverð
Miðasala á:
FURY KL. 9
HEMMA KL. 3.30 - 6 - 8
BORGRÍKI KL. 8 - 10
GONE GIRL KL. 5.45 - 9
THE EQUALIZER KL. 10.10
BOYHOOD KL. 5.30
PARÍS NORÐURSINS KL. 3.30 - 5.45
KASSATRÖLLIN ÍSL TAL 2D KL. 3.30
VONARSTRÆTI KL. 3.20
- EMPIRE
- TIME OUT
-T.V., BIOVEFURINN
BRÁÐSKEMMTILEG M YND
FYRIR ALLA F JÖLSKYLDUNA
I
I
FURY KL. 5.10 - 8 - 10.45
FURY LÚXUS KL. 2 - 5 - 8 - 10.45
BORGRÍKI KL 8 - 10.10 - 11.10
GONE GIRL KL. 4.45 - 8 - 10.30
THE MAZE RUNNER KL. 5.30 - 8
KASSATRÖLLIN ÍSL TAL 2D KL.1- 2 - 3.15 - 5.45
KASSATRÖLLIN ÍSL TAL 3D KL.1- 3.15
SMÁHEIMAR 2D KL. 1 - 3.15
-H.S.,MBL
7, 10(P)
3:45, 5:50, 8, 10:10
1:45, 3:50
1:45
10
8
5:40
1:40, 3:40
-T.V., biovefurinn
-EMPIRE
-H.S. MBL
5%
KRINGLUNNI
AKUREYRI
KEFLAVÍK
SPARBÍÓ
ÁLFABAKKA EGILSHÖLL
LEIKSTJÓRI TALSETNINGAR RÓSA GUÐNÝ
NEW YORK OBSERVER TOTALFILM.COM
D.E. MIRROR
“HUGH GRANT DOING WHAT
HE DOES BEST”
FRÁBÆR RÓMANTÍSK GAMANMYND FRÁ LEIKSTJÓRA
“TWO WEEKS NOTICE” OG “MUSIC AND LYRICS”
ROBERT DOWNEY JR. ROBERT DUVALL
ROBERT DOWNEY JR OG ROBERT DUVALL FARA Á KOSTUM
Í FRÁBÆRRI MYND SEM KEMUR SKEMMTILEGA Á ÓVART
KARLKYNS leikskólakennarar eru á leið
á karlaráðstefnu til að ræða það alvarlega
vandamál hve fáir karlmenn eru leikskóla-
kennarar. Spurning hvort sú karlaráðstefna
verði gagnrýnd eins og karlaráðstefna utan-
ríkisráðherra um jafnréttismál. Vonandi
ekki, það á ekki að skipta máli hvaðan gott
kemur. Karlaráðstefnur geta nefnilega
alveg verið fín viðbót í jafnréttismálum,
eins og til dæmis karlahópur Femínista-
félagsins var á sínum tíma fín viðbót í
baráttunni gegn kynferðisbrotum gagn-
vart konum.
FYRIR nokkrum árum var vinur minn
eini karlmaðurinn í hópi starfsmanna
á leikskóla, og var þess vegna sá eini
sem mátti ekki aðstoða börnin á klós-
ettinu án eftirlits. Hann sagði mér að
þótt hann skildi rökin að baki, um að
það væru karlmenn sem í flestum til-
fellum beittu börn kynferðisofbeldi,
fyndist honum erfitt að vera sífellt því
marki brenndur. Hann hafði á orði
að þetta væri heldur eflaust ekki til
þess fallið að fjölga karlmönnum við
umönnun barna.
ÞAÐ ER gott að heimurinn er orðinn
meðvitaðri um hvers kyns ofbeldi gagn-
vart börnum og hvernig sé hægt að hindra
það, en kostnaðurinn er að svona reglur
eru settar. Smám saman fjölgar aðstæð-
unum þar sem karlmönnum líður eins og
þeir séu stanslaust grunaðir um græsku;
afarnir fá athugasemdir þegar þeir mynda
barnabörnin á leikvellinum og menn eru
beðnir um að skipta um sæti við konur
í flugvélum ef þeir fá sæti við hliðina á
ókunnugum börnum.
ÖRYGGI ER mikilvægt en það verður
alltaf að gæta jafnvægis á milli öryggis og
frelsis. Við eigum að passa að áherslan á
öryggi valdi því ekki að smám saman séum
við gagnrýnislaust búin að skapa umhverfi
sem gengur hættulega nærri frelsi og rétt-
indum annarra; í þessu tilviki karlmanna.
Þann vinkil málsins er mikilvægt að ræða
áður en frelsisskerðing, sem er réttlætt
með fordómum byggðum á einhverri töl-
fræði, er orðin partur af tilveru þeirra.
KANNSKI AÐ angi af þeirri umræðu
væri kvennaráðstefna þar sem konur ræða
sín á milli hvað þær geta gert til að sporna
við slíku misrétti gagnvart körlum. Mér
þætti það til dæmis bara mjög fagurt.
Reynsluheimur karla