Læknablaðið - 15.06.2000, Qupperneq 3
FRÆÐIGREINAR
Læknablaðið
THE ICELANDIC MEDICAL lOURNAL
407
409
413
422
428
429
431
436
Ritstjórnargreinar:
Nýtt líf í læknanámi
Hannes Petersen
Geðheilbrigðisþjónusta fyrir börn og unglinga
Ólafur Ó. Guðnmndsson
Ofvirkniröskun. Yfirlitsgrein
Gísli Baldursson, Ólafur Ó. Guðmundsson, Páll Magnússon
Höfundar gera ítarlega grein fyrir þeim heilkennum einkenna sem falla undir
ofvirkniröskun. Þeir þættir sem helst einkenna þessa tegund persónuleika-
röskunar eru mikil virkni, einbeitingarerfiðleikar og erfiðleikar við að stjórna
eigin hegðun. Höfundar rekja greiningarskilmerki sem og meðferðarúrræði og
gefa yfirlit yfir nýlegar rannsóknir.
Heilsutengd lífsgæði sjúklinga fyrir og eftir meðferð
Tómas Helgason, Júlíus K. Björnsson, Kristinn Tómasson,
Erla Grétarsdóttir, Halldór Jónsson jr., Tómas Zoéga,
Þórður Harðarson, Guðmundur Vikar Einarsson
Sett hefur verið saman sérstakt mælitæki eða próf til að meta heilsutengd lífs-
gæði einstaklinga. Prófið samanstendur af 32 spurningum, sumum með fleiri en
einum svarmöguleika. í rannsókninni sem hér er greint frá var leitað til 1195
sjúklinga, á nokkrum deildum Landspítalans, og þeir beðnir að svara spurninga-
listanum. Þremur mánuðum síðar var aftur leitað til sömu sjúklinga. Höfundar
telja að með prófinu sé unnt að afla þekkingar sem nýta megi til að bæta og
skipuleggja heilbrigðisþjónustuna.
Doktorsvörn: Bolli Bjarnason
Fræðigreinar fslenskra lækna í erlendum tímaritum
Smásjáraðgerðir í heila- og taugaskurðlækningum. Þróun
sjónglerja og notkun þeirra við skurðaðgerðir
Kristinn R. G. Guðmundsson
Talið er að gleraugu hafi fyrst verið fundin upp í Kína eins og margt annað er
síðar barst til Evrópu. Höfundur rekur sögu sjónglerja, sjónauka og smásjáa og
hvernig skurðsmásjáin þróaðist út frá þeim. Rakin er saga smásjáraðgerða hér á
landi og sérstaklega í heila- og taugaskurðlækningum.
Sjúkratilfelli mánaðarins: Risafrumuæxli f hálshrygg
Guðrún Guðmundsdóttir, Garðar Guðmundsson
Sjúkratilfellið lýsir afar sjaldgæfri tegund af góðkynja æxli, sem oftast finnst í
löngum beinum líkamans. Höfundar rekja sjúkdómssögu, auk þess að lýsa
almennum einkennum og úrræðum.
6. tbl. 86. árg. Júní 2000
Aðsetur:
Hlíðasmári 8, 200 Kópavogi
Útgefandi:
Læknafélag íslands
Læknafélag Reykjavíkur
Símar:
Læknafélög: 564 4100
Læknablaðið: 564 4104
Bréfsími (fax): 564 4106
Læknablaðið á netinu:
http://www.icemed.is/laeknabladid
Ritstjórn:
Emil Sigurðsson
Hannes Petersen
Hildur Harðardóttir
Karl Andersen
Vilhjálmur Rafnsson ábm.
Netfang: journal@icemed.is
Ritstjórnarfulltrúi:
Birna Þórðardóttir
Netfang: birna@icemed.is
(Macintosh)
Auglýsingastjóri og ritari:
Ragnheiður K. Thorarensen
Netfang: ragnh@icemed.is
(PC)
Blaðamaður, umbrot:
Pröstur Haraldsson
Netfang: throstur@icemed.is
(Macintosh)
Upplag: 1.500
Áskrift: 6.840,- m.vsk.
Lausasala: 684,- m.vsk.
© Læknablaðið
Læknablaðið áskilur sér rétt til að
birta og geyma efni blaðsins á raf-
rænu formi, svo sem á netinu.
Blað þetta má eigi afrita með nein-
um hætti, hvorki að hluta né í heild
án leyfis.
Prentun og bókband:
Prentsmiðjan Grafík hf.,
Smiðjuvegi 3, 200 Kópavogi
Pökkun:
Plastpökkun, Skemmuvegi 8,
200 Kópavogi.
ISSN: 0023-7213
Umræðuhluti
Skilafrestur er 20. undanfarandi
mánaðar, nema annað sé tekið
fram.
Læknablaðið 2000/86 403