Læknablaðið - 15.06.2000, Side 5
LISTAMAÐUR
MÁNAÐARINS
UMRÆÐA 06 FRÉTTIR
440 Formannaráðsíefna læknasam-
takanna. Símenntun og samein-
ing sjúkrahúsanna
Þröstur Haraldsson
441 Aðalfundur LÍ 2000
Aðalfundur Lífeyrissjóðs lækna.
Aldurstengdu réttindakerfi
komið á
Þröstur Haraldsson
443 Bæklingur um heilsufar kvenna
Læknar á íslandi. Nýtt Læknatal
komið út
Birna Þórðardóttir
444 Sjálfskipuðum siðapostula
svarað
Högni Óskarssson
Athugasemd við grein Högna
Arni Björnsson
445 Opinn gluggi til Evrópu
Katrín Fjeldsted
448 Yf,rIýsing um sjálfsforræði
lækna
Örn Bjarnason þýddi
449 Yaníia,niðað nám - Stöðug
þekkingaröflun
Rætt við Stewart P. Mennin
prófessor
Birna Þórðardóttir
451 Stéttaskiptingin á Indlandi er
heilbrigðisvandamál
Rætt við Iniyan Elango geðlækni
og baráttumann fyrir réttindum
indverskra stéttleysingja
Birna Þórðardóttir
453 Könnun á tóbaksnotkun
íslenskra lækna
Pétur Heimisson
456 Eineygðir samverjar eða
félagshyggjulæknar með
pólitíkusinn í maganum?
Þröstur Haraldsson
459 Sjúkraflug með miðstöð á
Akureyri boðið út
Sýning á læknislist fornmanna
Klínískar Ieiðbeiningar.
Vinnuhópar á vegum
landlæknisembættisins
40 \ Heimilislæknirinn. Tegund í
útrýmingarhættu
Árni Björnsson
403 Broshornið. Að elska, reykja,
drekka og dufla...
Bjarni Jónasson
465 íðorðasafn lækna 123.
Follow-up time
Jóhann Heiðar Jóhannsson
407 Lyljamál 86
Frá Heilbrigðis- og trygginga-
málaráðuneytinu og landlœkni
408 Ráðstefnur og þing
471 Lausarstöður
472 Okkar a miiii
474 Mimiisblaðið
Ragna Róbertsdóttir (fædd 1945)
hefur nokkuö lengi unniö fyrst og
fremst með stein og steinefni í verk-
um sínum. Steinunum raðar hún
upp á ýmsan hátt, setur þá í margs
konar samhengi, eða þá hún festir
steinsallann beint á vegg til að
mynda eins konar steinflöt líkt og í
verkinu sem nú er á forsíðu blaðs-
ins. Andinn í þessum verkum er í
ætt við naumhyggju eða minimal-
isma. Efnið er látið tala fyrir sig og
uppröðun myndhluta, formin eða
samhengið miða fyrst og fremst að
því að undirstrika eiginleika efnisins
og þyngd. í sumum verkum sínum
hefur Ragna notað mýkri efni, til
dæmis skorinn grassvörð, til mót-
vægis við harðan og þungan stein-
inn. f þeim myndast þannig eins
konar samræða milli mýktar og
hörku, milli steinsins og lifandi jarð-
arinnar. Ragna forðast yfirleitt að
tengja nokkra sögu eða hugmynda-
fræði við verk sín, uppstillingin er
hljóð og það er aðeins efnið sem
talar.
Verkið á forsíðunni er úr röð
Heklumynda sem Ragna sýndi í
Gerðarsafni fyrir skömmu. Efnið er
vikur úr Heklu sem hún hefur fest
beint á vegg sýningarsalarins til að
mynda stóran ferning. Hér nýtir
Ragna sér landslagið með því að
tengja verkið beint við staðinn, við
Heklu sem gnæfir þung og ógnvekj-
andi yfir Suðurlandinu, og þannig
má jafnvel segja að verkið umbreyt-
ist í eins konar landslagsmynd, taki
á sig tilvísun í landið og sögu þess
og verði eins og frásögn af fjallinu
og fólkinu sem hefur búið í nágrenni
þess. Samt er þessar tilvísanir
hvergi að finna nema í efninu sjálfu
og vitneskju okkar um uppruna
þess. Ferningsformið og veggurinn
leggja ekkert til málanna. Einmitt
þannig verka bestu verk Rögnu á
áhorfandann. í þögulli framsetningu
þeirra kviknar einhvers konar skiln-
ingur sem áhorfandinn ber með sér
heim.
Jón Proppé
Læknablaðið 2000/86 405
Ljósmynd: Jonni