Læknablaðið - 15.06.2000, Qupperneq 26
FRÆÐIGREINAR / HEILSUTENGD LÍFSGÆÐI
Tafla 1. Fjöldi á biðlistum eða í meðferð* hundraðshiutum. og svörun í
Fjöldi Svörun (%)
Bæklunarsjúklingar 304 (87,2)
Hjartasjúklingar 109 (89,0)
Þvagfærasjúklingar 109 (71,6)
Áfengissjúklingar á dagdeild* 227 (97,8)
Aðrir geðsjúklingar á göngudeild * 446 (52,7)
Samtals 1195 (75,1)
Tafla II. Fjöldi sem hefur verið í meðferð og svörun eftir þrjá til fjóra mánuði, fjöldi sem
bíður enn eftir sex mánuði og svörun í hundraðshlutum.
Meöferö /fjöldi Svörun (%) eftir 3-4 mán. Bíóa enn /fjöldi Svörun (%) eftir 6 mán.
Bæklunarsjúklingar 92 (83,7) 171 (73,7)
Hjartasjúklingar 79 (87,3) 17 (76,5)
Þvagfærasj úk 1 i ngar 18 (83,3) 60 (66,7)
Áfengissjúklingar 222 (63,1*)
Aörir geðsjúklingar 233 (82,4)
Samtals 644 (76,6) 248 (72,2)
*Svörun eftir eitt ár
hjartasjúklingar sem farið höfðu í aðgerð, en tiltölu-
lega fæstir vímuefnasjúklingar (tafla II).
Meðalaldur sjúklingahópanna var mjög mismun-
andi, lægstur hjá vímuefnasjúklingunum og öðrum
geðsjúklingum, en hæstur hjá hjarta- og þvagfæra-
sjúklingunum. Einnig var kynjaskipting hópanna
mismunandi, flestar konur voru meðal geðsjúklinga á
göngudeild og bæklunarsjúklinga, en fæstar meðal
hjarta- og þvagfærasjúklinga (tafla III). Meðalaldur
sjúklinga sem höfðu farið í meðferð og svöruðu í
seinni umferð var svipaður og hjá þeim sem svöruðu
í fyrri umferð. Eins og sjá má af staðalfráviki meðal-
aldurs var aldursdreifing hjartasjúklinganna minnst.
Meira en helmingur bæklunar- og þvagfærasjúkling-
anna beið enn eftir aðgerð sex mánuðum eftir að
fyrri rannsóknin var gerð.
A mynd 1 sést að lífsgæði vímuefnasjúklinga og
Mynd 1. Heilsutengd annarra geðsjúklinga voru verulega skert í heild og á
lífsgœði áfengis- og ann- öllum þáttum, nema verkjum hjá vímuefnasjúkling-
arra geðsjúklinga voru unum. Hjá síðastnefnda hópnum vantar þáttinn ein-
verulega
skert miðað
við það sem
gerist hjá al-
menningi.
Heilsufar og
verkir voru
marktœkt
(**p<0,01)
lakari hjá
öðrum geð-
sjúklingum,
en fjárhagur
hjá áfengis-
sjúklingum.
Tafla III. Meðalaldur svarenda, staðaifrávik og hundr-
aðshluti kvenna.
Aldur Staóalfrávik Konur %
Bæklunarsjúklingar 52,9 18,4 57,5
Hjartasjúklingar 64,3 8,7 26,8
Þvagfærasjúklingar 65,0 13,8 28,2
Áfengissjúklingar 37,9 14,9 43,6
Aðrir geðsjúklingar 39,8 13,9 63,7
beitingu vegna þess að í þá útgáfu prófsins, sem var
lagt fyrir hann, vantaði þær spurningar. Lífsgæði
hinna hópanna (mynd 2) voru minna skert nema hjá
bæklunarsjúklingunum þar sem lífsgæðin í heild og
þátturinn heilsufar voru lítið betri en hjá geðsjúkling-
unum. Eins og vænta mátti voru einbeiting, depurð,
kvíði og stjóm á eigin lífi þeir þættir sem mest voru
skertir hjá geðsjúklingunum. Þeir voru einnig veru-
lega skertir hjá bæklunarsjúklingunum, sem voru
langverst haldnir hvað varðar líkamsheilsu og verki.
Myndir 3-7 sýna hvaða breytingar urðu á ýmsum
þáttum heilsutengdra lífsgæða eftir meðferð. Lífs-
gæði sjúklinga sem voru lökust fyrir bötnuðu mest
eftir meðferð, það er áfengissjúklinga (mynd 3), ann-
arra geðsjúklinga (mynd 4) og bæklunarsjúklinga
(mynd 5). Hjá áfengissjúklingunum bötnuðu allir
þættir nema verkir, sem ekki voru verulegir fyrir
meðferðina. Hjá öðrum geðsjúklingum bötnuðu allir
þættir nema fjárhagur. Allir þættir bötnuðu hjá bækl-
unarsjúklingunum nema einbeiting, sem var lítið
skert fyrir, en mest bötnuðu þeir þættir sem varða lík-
amsheilsu og almenna vellíðan. Lífsgæði sjúklinga
sem fóru í aðgerð á þvagfærum bötnuðu á flestum
þáttum (mynd 6), en vegna þess hversu fáir sjúkling-
ar höfðu farið í aðgerð reyndist breytingin ekki töl-
fræðilega marktæk nema á tveimur þáttum, almennri
heilsu og vekjum, og fyrir lífsgæðin í heild. Lífsgæði
hjartasjúklinganna voru best fyrir aðgerð (kransæða-
útvíkkun) og breyttust minnst nema þátturinn heilsu-
far sem batnaði marktækt. Flestir hjartasjúklingarnir
(50) fóru einungis í hjartaþræðingu. Lífsgæði þeirra
breyttust lítið eftir rannsóknina nema heilsufar
þeirra batnaði, en þó minna en þeirra sem gerð var
kransæðavíkkun hjá (mynd 7).
Lífsgæði þeirra sem voru enn á biðlista eftir sex
mánuði voru að kalla óbreytt.
Lauslegur samanburður á lífsgæðum þeirra sem
fóru í aðgerð og hinna sem enn voru á biðlistum
bendir til að tekist hafi að veita þeim sem verst voru
haldnir nokkurn forgang, þó að það hafi ekki verið
yfirlýst markmið þeirra sem sjá um innköllun sjúk-
linga.
Umræða
Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að þegar tekið
hefur verið tillit til kyns og aldurs voru heilsutengd lífs-
gæði allra sjúklinganna mun lakari en almennt gerist.
Þau bötnuðu eftir meðferð án þess þó að ná almenn-
424 Læknablaðið 2000/86