Læknablaðið - 15.06.2000, Qupperneq 52
UMRÆÐA & FRETTIR / NYJUNGAR I LÆKNANAMI
tíma, geta þeir haldið áfram að læra allt sitt líf,
leita þeir oftar en aðrir vinnu á stöðum þar sem
raunveruleg þörf er fyrir menntun þeirra, þá er
svarið játandi við öllum spurningunum.
- En aðferðafræði vandamiðaðs náms ein-
skorðast ekki við kennsluna heldur hlýtur hún
einnig að taka til þess hvernig menntunin er metin.
Hér til dæmis geta nemendur staðið sig vel á próf-
um en ekki endilega þegar út í raunveruleikann er
komið. Þeir geta fengið háar einkunnir takist þeim
að skrá mikinn fjölda staðreynda. Að koma stað-
reyndunum saman í heildstæða einingu og nýta
þær til lausnar vandamála er hins vegar allt annar
handleggur.
- Ef við ætlum að kenna nemendum á þann hátt
að nota ákveðin vandamál sem uppsprettu þekk-
ingar þá verðum við að prófa þá með vandmálum,
með raunverulegum sjúklingum, uppsettum stöðl-
uðum tilfellum eða tilbúnum á pappírnum. Það er
ekki nóg að vita, nemendur verða að vita hvernig
og þeir verða einnig að sýna hvernig. Við viljum að
bæði nemendur og kennarar geti sagt: ég veit
þetta, en hvernig beiti ég þekkingunni, hvernig
nýtist hún mér til lausnar á því vandamáli sem fyrir
liggur? Á þennan hátt ættu próf að vera kennslu-
efni en ekki einungis próf. Þannig að nemendur
geti lært af prófinu hvers þeir eru megnugir og
hvar þekkingu brestur, hvar þarf að bæta við sig.
Þannig verður prófið einskonar kynning á færni, á
samskiptum við sjúklinga, lýsing á hugmyndum
nemanda, þar sem hann verður að verja álit sitt,
hvers vegna grípa skal til ákveðinnar meðferðar
og hvaða upplýsingar og staðreyndir liggja til
grundvallar. í stuttu máli: samspil hvaða þátta get-
ur útskýrt vandamál þess sjúklings sem prófið
byggir á og hvers vegna valdi nemandinn þá með-
ferðarleið sem valin var. Þetta er mjög ólíkt fram-
setningu prófa sem byggja á staðreyndaupptaln-
ingu. Á þennan hátt verður prófið eðlilegur hluti
námsefnisins, ef námsefni er breytt verða kennslu-
aðferðir jafnframt að breytast í takt.
- Mjög mörg háskólasjúkrahús hafa frábæra
rannsóknaaðstöðu og meðferðarmöguleika en
leggja ekki jafn þunga áherslu á menntunarþáttinn
og aðferðirnar við kennslu. Markmiðið er hins
vegar að nota kennslufræðina til jafns við vísinda-
og rannsóknavinnu.
Mennin kvað þetta vera hluta þess sem hann
hefði fjallað um í fyrirlestrum sínum og á fundum
með kennurum læknadeildar. Hann kvaðst enn-
fremur hafa átt ánægjulegt samtal við landlækni
þar sem meðal annars bar á góma hvernig þessi
framgangsmáti við kennslu læknanema gæti orðið
heilbriðgisþjónustunni og læknisfræðinni í landinu
til góða.
Runólfur Pálsson lektor í lyflæknisfræði við
læknadeild Háskóla Islands, sem sat fund Lækna-
blaðsins með Mennin, kvaðst afar ánægður með
komu hans hingað. Sjálfur kynntist hann aðferð-
um vandamiðaðs náms í framhaldsnámi sínu í
Bandaríkjunum og sagði álit sitt það að breytinga
væri og hefði lengi verið þörf innan læknadeildar.
Báðir vildu þeir leggja áherslu á að þessi aðferð
við uppfræðslu örvaði bæði nemendur og kennara
við þekkingaröflun. Nemendur fá gríðarlega
hvatningu til að læra, ekki síst vegna þess að þeir
bera sjálfir ábyrgð á lærdóm sínum. Þeir verða að
gera sér grein fyrir hvers þeir þarfnast í náminu,
aðferðin hefur nemandann sem útgangspunkt og
nemendum líkar þetta vel. Lokaorðin voru þau að
með þessu væri endurvakin gleðin yfir því að vera
í skóla.
-bþ
Heimasíða
Læknafélagsins
er á slóðinni
http://www.icemed.is
450 Læknablaðið 2000/86
X