Skessuhorn - 21.05.2014, Síða 5
5MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 2014
Fimmtudaginn 22. maí næstkom-
andi verður árshátíð unglingadeild-
ar Kleppjárnsreykjadeildar Grunn-
skóla Borgarfjarðar haldin í Loga-
landi. Nemendurnir sýna leikritið
Uppreisn æru eftir Ármann Guð-
mundsson, í leikstjórn Ásu Hlínar
Svavarsdóttur. Skemmtunin hefst
kl. 20:00 og verður sjoppa opin í
hléi. Allir velkomnir.
-fréttatilkynning
Einnig leigjum við bíl með
fjórhjóladrifi fyrir allt að
11 farþega með bílstjóra,
tilvalið fyrir gönguhópa
Brákarbraut 5 - Borgarnesi - 437 1300 / 692 5525 / 897 6649
Leigjum fólksbíla
og jeppa
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
4
Hársnyrtir
Óskast til starfa í sumar hjá
Hárstofunni í Stykkishólmi,
möguleiki á framtíðarstarfi.
Nánari upplýsingar veitir
Dísa í síma 864 8861
S. 438 1587
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
0
1
4
Kjörskrá vegna sveitar-
stjórnarkosningar 2014
Kjörskrá íbúa Hvalfjarðarsveitar vegna sveitarstjórnar-
kosningar laugardaginn 31. maí nk. liggur frammi á skrifstofu
Hvalfjarðarsveitar.
Skrifstofan er opin alla virka daga kl. 10-15.
Hægt er að gera athugsemdir við kjörskrá fram kjördag.
Nánari upplýsingar um kosningarnar má finna á
kosningavef innanríkisráðuneytisins, www.kosning.is
Árshátíð Kleppjárnsreykjadeildar
GBF verður í Logalandi
Freisting vikunnar
Að þessu sinni var það laganeminn
og matarbloggarinnTinna Björg
Friðþórsdóttir sem deildi með
okkur uppskrift. Hún er búsett í
Reykjavík ásamt sambýlismanni
sínum og dóttur, en ættuð úr Döl-
unum. Hún er ein af tengdadætrum
Akraness en sambýlismaður henn-
ar og barnsfaðir er Akurnesingur.
Tinna Björg gaf okkur uppskrift af
dýrindis bananasnittum. „Grunn-
uppskriftin er fjölskylduskúffukak-
an sem við konurnar í fjölskyldunni
höfum notast við í áraraðir. Ban-
anakremið og ganachekremið bjó
ég til sjálf en kakan líkist bananas-
nittunum sem fást í mörgum bak-
aríum,“ segir matgæðingurinn. Við
hvetjum alla áhugasama um matar-
gerð og bakstur til þess að kíkja inn
á bloggsíðu Tinnu Bjargar. Slóðin
er www.tinnabjorg.com
Skúffukökubotn:
4 1/2 dl hveiti
4 1/2 dl sykur
1 dl kakó
1 tsk salt
1 tsk matarsódi
1/2 tsk lyftiduft
1 1/2 dl vatn
2 dl súrmjólk eða AB mjólk
2 egg
175 g brætt smjör
3 tsk vanilludropar
Blandið þurrefnum saman í skál
og hrærið vatni og súrmjólk sam-
an við. Bætið eggjum við og síðan
smjöri og vanilludropum. Smyrjið
ferkantað kökuform (u.þ.b. 23 cm
x 32 cm) og hellið deiginu ofan í.
Bakið við 175° í 30-35 mínútur.
Bananakrem
250 g mjúkt smjör
300 g flórsykur
2 tsk vanilludropar
2 bananar
Byrjið á að þeyta smjör þann-
ig að það verði alveg mjúkt og
kekkjalaust. Bætið þá við flórsykri
og vanilludropum. Maukið banana
í blandara og þeytið vel saman við
kremið.
Súkkulaðiganache
250 ml rjómi
175 g suðusúkkulaði
Hitið rjóma að suðu og sax-
ið suðusúkkulaði smátt á meðan.
Setjið súkkulaðið í skál og hell-
ið heitum rjómanum yfir. Látið
standa ósnert í 5 mínútur og hrær-
ið svo súkkulaðinu og rjómanum
saman þar til blandan verður að
þunnu kremi. Kælið í ísskáp þar
til kremið verður seigfljótandi og
nógu þykkt til að hægt sé að hella
því yfir kökuna án þess að það leki
niður með hliðunum.
Ekki láta ykkur bregða þegar
þið hrærið kremið saman, bland-
an lítur fyrst út fyrir að ætla aldrei
að verða að kremi og síðan verð-
ur hún þunn eins og súkkulaði-
súpa. En kremið þykknar eft-
ir því sem það fær að kólna leng-
ur. Þolinmæði þrautir allar vinn-
ur, ekki satt? Best er að byrja á að
gera súkkulaðikremið og láta það
kólna í rólegheitum á meðan kak-
an er bökuð. Smyrjið þykku lagi af
bananakremi yfir súkkulaðikökuna
þegar hún hefur kólnað og hellið
súkkulaðiganache yfir. Kælið kök-
una þar til bananakremið stífn-
ar aðeins og skerið í sneiðar með
beittum hníf.
Ef baka á kökuna í djúpri ofn-
skúffu þarf að tvöfalda alla upp-
skriftina.
Bananasnittur
Á fundi bæjarstjórnar Stykkishólms
síðastliðinn fimmtudag var tek-
inn til fyrri umræðu ársreikning-
ur sveitarfélagsins fyrir árið 2013.
Þar kom fram að rekstrarafkoma
samantekins ársreiknings A og B
hluta er neikvæð um 18,3 milljón-
ir kr. miðað við 4,5 millj. kr. hagn-
að á árinu 2012. Þá er rekstrarnið-
urstaða A-hluta bæjarsjóðs neikvæð
um 14,5 millj. 2013 miðað við 11
millj. kr. hagnað árið 2012. Helstu
ástæður lakari rekstrarniðurstöðu
milli ára er rakin til þess að rekstar-
tekjur hækkuðu aðeins um 9,7 millj-
ónir kr. milli ára, meðan rekstrarút-
gjöld hækkuðu um 35,1 milljónir
og vegur þar þyngst hækkun launa
og lífeyrisskuldbindinga.
Í fundargerð frá bæjarstjórn-
arfundinum segir að á síðustu tíu
árum hafi tekjur bæjarfélagsins ein-
ungis staðið undir útgjöldum árin
2006 og 2012 þegar tekið hef-
ur verið tillit til afskrifta og fjár-
magnsliða. Þar segir að áhyggju-
efni sé hversu lágt handbært fé frá
rekstri var eða einungis 130 þúsund
krónur um áramótin 2013 og 2014
en þyrfti að vera um 50 milljónir.
„Það að sveitarfélagið hafi ekki náð
jákvæðri rekstrarniðurstöðu á árinu
2013 ber að íhuga alvarlega og leita
leiða til að auka tekjur og minnka
útgjöld svo sveitarfélagið standist
viðmið sveitarstjórnarlaga,“ seg-
ir í greinargerð meirihluta bæjar-
stórnar sem lögð var fram á fundin-
um. Þar segir að jákvæðu þættirnir
í rekstri síðasta árs sé hagnaður hjá
hafnarsjóði og fráveitu. „Það er al-
veg ljóst að til að ná þeim árangri
að rekstur bæjarfélagsins verði já-
kvæður verður áfram að gæta veru-
legs aðhalds í rekstri. Jákvæð þró-
un hefur orðið á skuldum Stykkis-
hólmsbæjar en skuldahlutfall mið-
að við tekjur er komið niður fyr-
ir 150% og var árið 2013 147,2%.
Fjármagnsgjöld voru 88,8 milljónir.
Mikilvægt er að lækka fjármagns-
gjöld bæjarins áfram. Það er því al-
veg ljóst að á næstu árum verður
að fara varlega í auknar fjárfesting-
ar og forgangsraða af skynsemi og
ábyrgð og miða við þörf og stöðu.
Við teljum að forgangsverkefni
næstu ára verði fjárfesting til öldr-
unarmála, göngustíga og gatnakerfi
bæjarins,“ segir í bókun meirihluta
bæjarstórnar.
Minnihluti bæjarstjórnar segir í
bókun sinni á fundinum að það sé
áhyggjuefni að enn hækki rekstrar-
gjöld Stykkishólmsbæjar umfram
tekjur og að handbært fé sé mjög lít-
ið. „Nauðsynlegt er að snúa rekstri
úr tapi yfir í hagnað og auka veltu-
fé frá rekstri, það verður aðeins gert
með auknum tekjum og lægri út-
gjöldum. Ljóst er að taka þarf veru-
lega á útgjaldaliðum, hagræða og
skera niður frá því sem nú er ef ekki
á illa að fara,“ segir í bókun minni-
hluta bæjarstjórnar Stykkis hólms.
þá
Afkoma Stykkishólmsbæjar versnar milli ár
Frá Stykkishólmi.
Upplýsingaskiltið við
Ennisbraut fært
Framkvæmdir standa nú yfir við
endan á Ennisbraut í Ólafsvík.
Færa á upplýsingaskiltið á planið
sem verið er að útbúa og einnig er
verið að gera stíg sem bæta mun að-
gengi að bekknum. Það er Stafna-
fell sem sér um verkið. Var efninu
sem mokað var upp ekið á hafnar-
svæðið í Rifi þar sem það verður
notað. þa