Skessuhorn


Skessuhorn - 02.07.2014, Page 12

Skessuhorn - 02.07.2014, Page 12
12 MIÐVIKUDAGUR 2. JÚLÍ 2014 Líflegt hefur verið síðustu dag- ana við höfnina á Akranesi sem og væntanlega við aðrar bryggjur í landinu þar sem smærri bátar eru gerðir út til makrílveiða, en þeir máttu einmitt byrja veiðar í gær þriðjudaginn 1. júlí. Þegar blaða- maður Skessuhorns lagði leið sína á bryggjurnar á Akranesi í síðustu viku var sama hvert litið var, alls staðar voru menn að keppast við að gera bátana klára fyrir makríl- vertíðina. Mönnum bar saman um að miklar væntingar væru fyrir ver- tíðina núna enda fleiri bátar gerð- ir út til veiðanna en áður. Greini- lega væri mun meira af makrílnum núna en var til dæmis síðasta sum- ar. Fiskurinn líka mun stærri en þá enda hitastig sjávarins nokkuð hærra núna en fyrir ári. Upphafs- kvótinn er helmingi hærri en í fyrra og vonast menn til að veiðin gangi vel og síðan yrði bætt við upphafs- kvótann. Makríllinn er út um allt Þorsteinn Jóhannesson var að leysa Ingunni Sveinsdóttur AK 91 og færa bátinn milli bryggja eins og gjarnan þarf að gera með bátana þegar þeir eru gerðir klárir á ný veiðarfæri. „Jú, það er mikill spenningur í mönn- um núna fyrir vertíðinni. Ég held það sé enginn vafi á því að það er mikið af makríl. Hann virðist vera út um allt. Við erum nýkomnir af handfærum á Vestfjörðum þar sem við vorum megnið af mánuðinum. Þar var mikið af makríl út um all- an sjó og við bindum vonir við að þetta geti orðið góð vertíð,“ sagði Þorsteinn. Aðspurður sagðist hann hafa byrjað með Ingunni á makríl- vertíðinni í fyrra og þá hafi gengið þokkalega. Það er HB og Co félag í eigu Sveins Sturlaugssonar sem á og gerir út Ingunni Sveinsdóttur. Dagarnir fljótir að líða Böðvar Ingvason var önnum kaf- inn við að gera bát sinn Emilíu AK 57 út á makrílveiðarnar. „Ég ætla að verða tilbúinn fyrir þriðjudag- inn, en dagarnir eru fljótir að líða,“ sagði Böðvar þar sem hann var að bolta saman rennu aftan við skut. „Það eru betri fregnir fyrir vertíð- ina núna en í fyrra, stærri upphafs- kvóti núna, 6000 tonn í stað 3000 tonna. Það er svo vonandi að verði bætt við kvótann eins og var þá. Ég ætla að prófa hérna á heimamiðun- um fyrst áður en ég leita lengra,“ sagði Böðvar. Þetta er hans önn- ur vertíð á makrílnum. Með hon- um um borð verður 13 ára sonur hans Jón Mýrdal sem líklega verður sá yngsti sem veiðir makrílinn þetta árið. Hann var að dorga með veiði- stöng á hinum bryggjukantinum. „Ég fékk aðeins að fara með í fyrra og þetta verður spennandi að fara núna. Ég hef gaman af veiðum,“ sagði Jón. Spurður um stangveið- ina sagði hann: „Ég er bara búinn að fá tvo litla þorska sem ég sleppti. Það er betra að veiða af hafnar- bryggjunni og Sementinu. Ég er bara hérna núna af því að pabbi er að vinna í bátnum,“ sagði Jón Mýr- dal. Stefnan sett á Breiðafjörðinn Næsti bátur þarna við flotbryggj- una í höfninni, eina af þessum flottu bryggjum frá Loforku í Borg- arnesi, var Guðmundur Skúlason með Björgu Hallvarðsdóttur AK 15. Blaðamaður rétt náði í skottið á honum áður en hann færði sig með bátinn milli bryggja. „Jú menn eru að keppast við að gera bátana klára. Við förum í Breiðafjörðinn strax og opnað verður fyrir veiðarnar. Þeir segja að þar sé makríllinn svo þétt- ur að það megi ganga á honum nær þurrum fótum,“ sagði Guðmund- ur og hló. „Það er bara vonandi að það verði bætt við kvótann, ef það er svona mikið af honum núna eins og sagt er veitir ekkert af því. Ég ætla reyndar ekki að fara á mak- rílinn núna. Það verða tveir strák- ar frá mér á honum fyrir vestan,“ sagði Guðmundur eigandi og skip- stjóri á Björgu Hallvarðsdóttur. þá „Það er mjög gott útlit með ver- tíðina. Mun meira af átu núna en oft áður, sjórinn heitari og makríll- inn kemur mun fyrr núna en í fyrra. Væntanlega kemur hann saddur og spakur. Hann er mun stærri og holdbetri en í fyrra,“ segir Magn- ús Emanúelsson sjómaður í Ólafs- vík sem gerir út bátinn Manga á Búðum SH 85 til makrílveiðanna í ár. Blaðamaður Skessuhorns hitti Magnús að máli í beitningarskúrn- um þar sem hann var að hjálpa til við að ganga frá netum sl. fimmtu- dag. Ekki viðraði þennan daginn til að sinna undirbúningi um borð í bátunum við bryggjuna í Ólafsvík í snörpum vindi og úrhellisrigningu á köflum. Magnús hefur átt og gert út Manga frá Búðum í tíu ár. Hann hefur alla tíð verið til sjós. „Ég held ég hafi verið samtals þrjá mánuði í landi á ævinni, fór á mína fyrstu skakvertíð ellefu ára gamall. Ann- ars er ég með kvótalausan bát og þarf því að stóla á leigukvóta þenn- an tíma sem ég geri bátinn út, oft frá febrúar og fram í september. Í vetur var ég með bát fyrir annan á línunni. Oliver fyrir Fannar Bald- ursson,“ segir Magnús. Hausinn steiktur í törnunum Þetta verður þriðja vertíð Magn- úsar á makrílnum en hann er einn um borð, enda Mangi frá Búðum ekki stór bátur. „Þetta hefur geng- ið ágætlega sérstaklega þegar tekið er tillit til þess að ég er ekki með astik [fiskileitartæki]. Ég les bara í sjóinn sjálfur. Gárungarnir segja að ég sé með tamdar kríur til að leita fyrir mig,“ segir Magnús og hlær. „Stundum fæ ég nú ábend- ingar frá öðrum bátum líka, en það koma dagar þegar ég er mikið að rýna í sjóinn eftir fiski að hausinn verður alveg steiktur,“ segir Magn- ús. Spurður hvort það sé gaman á makrílnum svarar hann með brosi. „Jú, það er virkilega gaman þeg- ar vel gengur en oft ansi strembið þegar aflagusurnar koma. Þá þarf maður að hafa sig allan við,“ segir Magnús. Hann segist stefna að því að ná hundrað tonnum á vertíðinni núna, sem myndi gera heldur betri vertíð en í fyrra. „Ég náði þó níu- tíu tonnum á vertíðinni í fyrra þótt hún þætti ekkert sérstök, bæði verra að ná fiskinum en sumarið áður og minna af honum. Ég á von á því að vertíðin núna verði ekki ósvipuð og vertíðin í hitteðfyrra. Makrílinn kemur á svipuðum tíma og er vænn eins og þá.“ Gæti staðið fram í september Magnús var nýbúinn að ganga frá samningi um hráefnisverð þegar blaðamaður hitti hann í beitninga- skúrnum. „Ég er bara sáttur,“ seg- ir Magnús sem ætlar að selja aflann til vinnslu í Hafnarfirði, þar sem hann fer væntanlega í flökun og frystingu. „Ég býst við að svo frysti ég aðeins hérna fyrir sjálfan mig til beitu.“ Spurður hvort að líklegt sé að þetta verði stutt makrílvertíð í ár, segist hann ekki búast við því. „Nei, ég býst alveg við að hún muni standa fram í september.“ Hann á frekar von á því að bætt verði við þann 6000 tonna pott sem gefinn hefur verið út til smærri bátanna á makrílnum. „Svo myndi ég vilja ef ég má koma á framfæri áskorun til sjávarútvegráðherra, að setja ekki makrílinn í kvóta. Ef hann verður kvótasettur þá selja menn hann frá sér og það verður ekkert úr þessu. Þá verður ekkert eftir handa okk- ur þessum kvótalausu aumingjum,“ segir Magnús Emanúelsson. þá Makríllinn væntanlega saddur og spakur Magnús Emanúelsson rær einn á Manga frá Búðum Magnús greiðir úr netunum í beitningarskúrnum ásamt konu sinni Láru Hallveigu Lárusdóttur til hægri og Bylgju Dröfn Jónsdóttur. Mangi frá Búðum við bryggjuna í Ólafsvík. Þótt báturinn sé ekki stór, aðeins tíu tonn, voru sótt á honum 90 tonn af makríl síðasta sumar. Guðmundur Skúlason á Björgu Hall- varðsdóttur. Gert klárt á makrílveiðarnar Lífleg var við bryggjurnar á Akranesi í síðustu viku. Þorsteinn Jóhannesson að leysa Ingunni Sveinsdóttur. Böðvar Ingvason að gera bát sinn Emilíu klára. Jón Mýrdal að dorga eftir smáþorski. Hann verður kannski sá yngsti á makrílnum í sumar.

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.