Læknablaðið - 15.07.2002, Qupperneq 15
Unnur Steina
Björnsdóttir'
Sigurveig Þ.
Sigurðardóttir2
Björn Rúnar
Lúðvíksson2
Mynd 1. Egypskt mynd-
letur. Fyrsta lýsing á
ofnœmislosti (sjá nánar í
texta).
'Göngudeild astma og
ofnæmissjúkdóma Vífils-
stöðum, 2Rannsóknastofu í
ónæmisfræði Landspítala
Hringbraut.
Fyrirspumir og bréfaskipti:
Björn Rúnar Lúðvíksson,
Rannsóknastofu í ónæmis-
fræði, Landspítala Hringbraut,
101 Reykjavík. Sími: 5602063,
bjornlud@landspitali.is
Lykilorð: ofnœmislost, algengi,
meöferð.
FRÆÐIGREINAR / OFNÆMISLOST
Ofnæmislost - meingerð,
algengi og meðferð
Ágrip
Ofnæmislosti var fyrst lýst fyrir 4500 árum. Menes
konungur Egyptalands var að leggja af stað í örlaga-
ríka ferð. Ætlunin var að sigra heiminn en í staðinn
var hann stunginn af geitungi við bakka Nílar og dó
(mynd 1).
Dularfullt dauðsfall hetjunnar var skýrt sem refs-
ing guðanna. Það var ekki fyrr en um aldamótin 1900
að menn áttuðu sig á að um viðbragð við utanaðkom-
andi áreiti var að ræða og var fyrirbrigðið kallað
anaphylaxis (ana=tap, phylaxis=þol, það er tap á þoli
gagnvart einhverju áreiti).
Einkenni bráðaofnæmis geta annaðhvort orsakast
af IgE miðluðu ónæmissvari (type I hypersensitivity
reaction) eða vegna ósértækrar ræsingar ónæmis-
kerfisins (anaphylactoid). Alvarlegasta afleiðing
bráðaofnæmis er ofnæmislost sem getur leitt til
dauða. Rannsóknir hafa sýnt að um 20 manns deyja
árlega í Bretlandi vegna ofnæmislosts (1). Einkenni
þess geta verið margbreytileg og því er góð þekking á
ENGLISH SÖMMflRY
Björnsdóttir US, Sigurðardóttir SÞ, Lúðvíksson BR
Anaphylaxis
Læknablaðið 2002; 88: 551-9
Anaphylaxis is a life threatening medical emergency in
which the possibility for patient morbidity and mortality is
high. It is the most serious of allergic disorders. An
understanding of the pathophysiology of anaphylaxis and
recognition of symptoms is paramount for its diagnosis.
The term anaphylaxis refers to a generalized allergic
reaction that results from a type I immunologic reaction.
IgE activation of mast cells and basophils results in the
release of preformed mediatiors including histamine,
prostaglandins, and leukotrienes. These mediators induce
vascular permeability, vascular smooth muscle relaxation
and constriction of bronchial smooth muscles.
Anaphylactoid reactions are clinically and pathologically
similar but are not IgE mediated. This pathophysiologic
sequence of events leads to the clinical manifestations of
anaphylaxis including urticaria, angioedema, pruritus, and
bronchospasms, eventually leading to hypotension and
death if left untreated. This article discusses current
demographics, causes and pathophysiology of
anaphylaxis and provides guidelines for the treatment of
anaphylaxis. The importance of prompt and correct
treatment with adrenaline as well as thorough medical
evaluation is also reviewed.
Key words: anaphylaxis, prevalence, treatment.
Correspondance: Björn Rúnar Lúðvíksson,
bjornlud@landspitali.is
þessum lífshættulega sjúkdómi frumskilyrði fyrir alla
þá sem sinna bráðaþjónustu. Bráðameðferð felst
meðal annars í að uppræta hugsanlega orsök, adrena-
lín- og vökvagjöf. Ljóst er að fumlaus og rétt við-
brögð geta skilið milli lífs og dauða (2, 3). Tilgangur
þessarar greinar er að gefa lesendum skýra mynd af
algengi, orsökum og meðferð ofnæmislosts.
Algengi ofnæmislosts
Margt bendir til þess að tíðni ofnæmislosts hafi farið
vaxandi á síðustu árum þó að nákvæmar rannsóknir
liggi ekki fyrir (4, 5). Líkur á því að einstaklingur fái
Læknablaðið 2002/88 551