Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.07.2002, Page 57

Læknablaðið - 15.07.2002, Page 57
UMRÆÐA & FRÉTTIR / ÍÐORÐAPISTILL 146 Svefnraskanir Ingibjörg Jakobsdóttir, geðhjúkrunarfræðingur, er að gera rannsókn á svefnleysi. Hún sendi tölvupóst og bað um tillögur að íslenskum heitum á fyrirbærum sem á ensku nefnast: primary insomnia, secondary insomnia og rebound insomnia. í upphafi má nefna að flokkunarkerfi ameríska geðlæknafélagsins (DSM-IV) skiptir svefnröskunum í tvo meginflokka, primary sleep disorders og other sleep disorders. Síðari flokkinn má nefna aðrar svefn- raskanir, en þannig flokkast til dæmis svefnraskanir af völdum geðrænna eða líkamlegra sjúkdóma og svefnraskanir af völdum ýmiss konar efna og lyfja. I fyrri flokknum koma meðal annars fyrir heitin dys- somnia, hypersomnia, insomnia og parasomnia. Nafnorðið dyssomnia er flokkunarheiti sem fær þýðinguna svefntruflanir í íðorðasafni lækna. Sam- kvæmt DSM-IV er um að ræða truflanir á lengd svefns eða tímasetningu og jafnframt á þeirri svefn- hvfld sem vænst er. Insomnia og hypersomnia heyra undir dyssomnia. Hypersomnia einkennist af syfju á venjulegum vökutíma og tilhneigingu til að sofa á daginn, þrátt fyrir eðlilegan nætursvefn. Sumir sjúk- linganna eiga einnig mjög erfitt með að vakna á morgnana og eru þá úrillir. Þetta fyrirbæri nefnist svefnsœkni í íðorðasafninu. Parasomnia er einnig flokkunarheiti, notað um svefnraskanir sem einkenn- ast af afbrigðilegri hegðun eða viðbrögðum meðan á svefni stendur. Þar má sem dæmi nefna martröð og svefngöngu. Þetta heiti er ekki að finna í íðorðasafn- inu og í bili kentur ekki nein liprari þýðing í hugann en svefnhegðunarröskun. Rifja má upp að forskeytið para- er úr grísku. Læknisfræðiorðabók Dorlands til- greinir merkingarnar: a) við hliðina á, nœrri, b) líkur, c) auka-, d) hinwn megin, e) aðskilinn frá, f) óeðlilegur. Svefnleysi Heitið insomnia er latneskt að uppruna, samsett úr þremur liðum, neitandi forskeytinu in- (ekki, án, ó-), miðhlutanum somn- og loks viðskeytinu -ia, sem er notað í mörgum læknisfræðilegum orðum til að tákna ástand. Latneska nafnorðið somnus merkir svefn eða mók. Bein orðhlutaþýðing á insomnia er því „ástand án svefns“ og íðorðasafn lækna tilgreinir íslensku heitin svefnleysi og andvökur. Þeir sem þjást af svefn- leysi eiga ýmist erfitt með að sofna þegar svefntími er kominn eða erfitt með að sofa allan þann tíma sem þeir vildu vera sofandi. Enska lýsingarorðið primary er komið úr latínu þar sem primarius merkir aðal- og primus merkir fyrstur. í læknisfræðilegum heitum er primary oft notað til að einkenna sjúkdóm sem ekki er afleiðing af öðrum sjúkdómi eða sjúkdómsmeðferð. Iðorða- safnið birtir þýðingarnar upphafs-, byrjunar- og frum-. Andstætt er lýsingarorðið secondary, oft notað til að tákna sjúkdóm eða ástand sem er afleiðing af öðru sjúklegu fyrirbæri. Secondary er einnig notað um ýmislegt það sem kemur aftar í röð eða síðar í tíma. I íðorðasafninu má finna ýmsar þýðingar á secondary, svo sem fylgi-, síð- og annars stigs. Sumir læknar hafa einnig notað orðin frumkominn og síðkominn til að tákna andstæðurnar primary og secondary. Þegar flokka þarf svefnleysi af þeirri nákvæmni sem DSM-IV gerir ráð fyrir, má grípa til heitanna frumkomið svefnleysi eða frumsvefnleysi á primary insomnia og síðkomið svefnleysi eða síðsvefnleysi á secondary insomnia. í samræmi við ýmis önnur heiti í íðorðasafninu má einnig tala um fylgisvefnleysi. Undirrituðum tókst ekki að finna formlega lýs- ingu eða skilgreiningu á rebound insomnia. I íðorða- safninu er nafnorðið rebound þýtt sem afturkast og í öðrum orðabókum má einnig finna endurkast og frákast. Fræðiheitinu rebound insomnia er sennilega ætlað að tákna svefnleysi sem kemur aftur eftir eðli- legt svefntímabil. Þess vegna er stungið upp á því að nefna fyrirbærið endurkomið svefnleysi. Meira um hvekk I síðasta pistli var rætt um blöðruhálskirtilinn, hvekk, og tilgreind nokkur samsett heiti úr íðorðasafni lækna, mynduð með stofnsamsetningu (hvekk-). Eignarfalls- samsetning (hvekks-) reyndist sjaldgæfari, en meðal slíkra heita eru hvekksauki (hypertrophia prostatae), hjáhvekksbólga (paraprostatitis), hvekksstarfsvefur (parenchyma prostatae), hvekksgrenndarbólga (peri- prostatitis) og hvekksskurður (prostatectomy). Undir- ritaður komst að þeirri persónulegu niðurstöðu að stofnsamsetningin færi alls staðar betur. Hvekkur I ritmálssafni Orðabókar háskólans eru mörg dæmi um orðið hvckkur. allt frá 17. öld. Fram á 20. öld virðist það merkja hrekkur, grikkur, gabb, blekking eða svik. í öðrum orðabókum má þó einnig finna merkingarnar flog, sár verkur og bugða. Líffæra- fræðilega merkingin, blöðruhálskirtill. er eignuð Vil- mundi Jónssyni, landlækni. Islensk læknisfræðiheiti Guðmundar Hannessonar frá 1954 tilgreina heitin hvekknám (prostatectomia) og hvekkbólga (pro- statitis) og eigna þau Vilmundi (VJ). Meðan aðrar upplýsingar liggja ekki fyrir, er freistandi að setja fram þá tilgátu að skopskyn Vilmundar hafi ráðið því að orðið hvekkur var tekið upp sem læknisfræðiheiti. Sögnin að hvekkja er þannig útskýrð í íslenskri orða- bók Máls og menningar: 1. gremja, gera graman. 2. gabba, blekkja; svíkja, draga á tálar. 3. hrekkja, áreita; hræða. Vilmundur hefur sjálfsagt minnst þeirrar gremju sem ofstækkun blöðruhálskirtilsins (hvekk- auki) olli sjúklingum hans. Jóhann Heiðar Jóhannsson johannhj@landspitali.is Læknablaðið 2002/88 593

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.