Læknablaðið - 15.07.2002, Qupperneq 57
UMRÆÐA & FRÉTTIR / ÍÐORÐAPISTILL 146
Svefnraskanir
Ingibjörg Jakobsdóttir, geðhjúkrunarfræðingur,
er að gera rannsókn á svefnleysi. Hún sendi tölvupóst
og bað um tillögur að íslenskum heitum á fyrirbærum
sem á ensku nefnast: primary insomnia, secondary
insomnia og rebound insomnia.
í upphafi má nefna að flokkunarkerfi ameríska
geðlæknafélagsins (DSM-IV) skiptir svefnröskunum
í tvo meginflokka, primary sleep disorders og other
sleep disorders. Síðari flokkinn má nefna aðrar svefn-
raskanir, en þannig flokkast til dæmis svefnraskanir
af völdum geðrænna eða líkamlegra sjúkdóma og
svefnraskanir af völdum ýmiss konar efna og lyfja. I
fyrri flokknum koma meðal annars fyrir heitin dys-
somnia, hypersomnia, insomnia og parasomnia.
Nafnorðið dyssomnia er flokkunarheiti sem fær
þýðinguna svefntruflanir í íðorðasafni lækna. Sam-
kvæmt DSM-IV er um að ræða truflanir á lengd
svefns eða tímasetningu og jafnframt á þeirri svefn-
hvfld sem vænst er. Insomnia og hypersomnia heyra
undir dyssomnia. Hypersomnia einkennist af syfju á
venjulegum vökutíma og tilhneigingu til að sofa á
daginn, þrátt fyrir eðlilegan nætursvefn. Sumir sjúk-
linganna eiga einnig mjög erfitt með að vakna á
morgnana og eru þá úrillir. Þetta fyrirbæri nefnist
svefnsœkni í íðorðasafninu. Parasomnia er einnig
flokkunarheiti, notað um svefnraskanir sem einkenn-
ast af afbrigðilegri hegðun eða viðbrögðum meðan á
svefni stendur. Þar má sem dæmi nefna martröð og
svefngöngu. Þetta heiti er ekki að finna í íðorðasafn-
inu og í bili kentur ekki nein liprari þýðing í hugann
en svefnhegðunarröskun. Rifja má upp að forskeytið
para- er úr grísku. Læknisfræðiorðabók Dorlands til-
greinir merkingarnar: a) við hliðina á, nœrri, b) líkur,
c) auka-, d) hinwn megin, e) aðskilinn frá, f) óeðlilegur.
Svefnleysi
Heitið insomnia er latneskt að uppruna, samsett úr
þremur liðum, neitandi forskeytinu in- (ekki, án, ó-),
miðhlutanum somn- og loks viðskeytinu -ia, sem er
notað í mörgum læknisfræðilegum orðum til að tákna
ástand. Latneska nafnorðið somnus merkir svefn eða
mók. Bein orðhlutaþýðing á insomnia er því „ástand
án svefns“ og íðorðasafn lækna tilgreinir íslensku
heitin svefnleysi og andvökur. Þeir sem þjást af svefn-
leysi eiga ýmist erfitt með að sofna þegar svefntími er
kominn eða erfitt með að sofa allan þann tíma sem
þeir vildu vera sofandi.
Enska lýsingarorðið primary er komið úr latínu
þar sem primarius merkir aðal- og primus merkir
fyrstur. í læknisfræðilegum heitum er primary oft
notað til að einkenna sjúkdóm sem ekki er afleiðing
af öðrum sjúkdómi eða sjúkdómsmeðferð. Iðorða-
safnið birtir þýðingarnar upphafs-, byrjunar- og
frum-. Andstætt er lýsingarorðið secondary, oft notað
til að tákna sjúkdóm eða ástand sem er afleiðing af
öðru sjúklegu fyrirbæri. Secondary er einnig notað um
ýmislegt það sem kemur aftar í röð eða síðar í tíma. I
íðorðasafninu má finna ýmsar þýðingar á secondary,
svo sem fylgi-, síð- og annars stigs. Sumir læknar hafa
einnig notað orðin frumkominn og síðkominn til að
tákna andstæðurnar primary og secondary.
Þegar flokka þarf svefnleysi af þeirri nákvæmni
sem DSM-IV gerir ráð fyrir, má grípa til heitanna
frumkomið svefnleysi eða frumsvefnleysi á primary
insomnia og síðkomið svefnleysi eða síðsvefnleysi á
secondary insomnia. í samræmi við ýmis önnur heiti í
íðorðasafninu má einnig tala um fylgisvefnleysi.
Undirrituðum tókst ekki að finna formlega lýs-
ingu eða skilgreiningu á rebound insomnia. I íðorða-
safninu er nafnorðið rebound þýtt sem afturkast og í
öðrum orðabókum má einnig finna endurkast og
frákast. Fræðiheitinu rebound insomnia er sennilega
ætlað að tákna svefnleysi sem kemur aftur eftir eðli-
legt svefntímabil. Þess vegna er stungið upp á því að
nefna fyrirbærið endurkomið svefnleysi.
Meira um hvekk
I síðasta pistli var rætt um blöðruhálskirtilinn, hvekk,
og tilgreind nokkur samsett heiti úr íðorðasafni lækna,
mynduð með stofnsamsetningu (hvekk-). Eignarfalls-
samsetning (hvekks-) reyndist sjaldgæfari, en meðal
slíkra heita eru hvekksauki (hypertrophia prostatae),
hjáhvekksbólga (paraprostatitis), hvekksstarfsvefur
(parenchyma prostatae), hvekksgrenndarbólga (peri-
prostatitis) og hvekksskurður (prostatectomy). Undir-
ritaður komst að þeirri persónulegu niðurstöðu að
stofnsamsetningin færi alls staðar betur.
Hvekkur
I ritmálssafni Orðabókar háskólans eru mörg dæmi
um orðið hvckkur. allt frá 17. öld. Fram á 20. öld
virðist það merkja hrekkur, grikkur, gabb, blekking
eða svik. í öðrum orðabókum má þó einnig finna
merkingarnar flog, sár verkur og bugða. Líffæra-
fræðilega merkingin, blöðruhálskirtill. er eignuð Vil-
mundi Jónssyni, landlækni. Islensk læknisfræðiheiti
Guðmundar Hannessonar frá 1954 tilgreina heitin
hvekknám (prostatectomia) og hvekkbólga (pro-
statitis) og eigna þau Vilmundi (VJ). Meðan aðrar
upplýsingar liggja ekki fyrir, er freistandi að setja
fram þá tilgátu að skopskyn Vilmundar hafi ráðið því
að orðið hvekkur var tekið upp sem læknisfræðiheiti.
Sögnin að hvekkja er þannig útskýrð í íslenskri orða-
bók Máls og menningar: 1. gremja, gera graman. 2.
gabba, blekkja; svíkja, draga á tálar. 3. hrekkja, áreita;
hræða. Vilmundur hefur sjálfsagt minnst þeirrar
gremju sem ofstækkun blöðruhálskirtilsins (hvekk-
auki) olli sjúklingum hans.
Jóhann Heiðar
Jóhannsson
johannhj@landspitali.is
Læknablaðið 2002/88 593