Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.04.2003, Blaðsíða 53

Læknablaðið - 15.04.2003, Blaðsíða 53
UMRÆÐA & FRÉTTIR / HEILSUGÆSLA Á SUÐURNESJUM Heilsugæslan á Suðurnesjum Sjálfseignarstofnun Heilsugæslan á Suðurnesjum hefur verið töluvert til umræðu eftir að heimilislæknar sem þar störfuðu sögðu upp störfum sínum og gengu út þann 1. nóv- ember síðastliðinn. Eins og kunnugt er var boði þeirra um að endurráða sig eftir að viljayfirlýsing heilbrigðisráðherra lá fyrir í lok nóvember ekki tekið og því hefur heilsugæslan á Suðurnesjum verið fá- menn og ekki getað haldið uppi viðunandi þjónustu. Heilsugæslan hefur síðan verið starfrækt með ein- um eða tveimur læknum en sérfræðingar af sjúkra- húshluta Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja hafa létt undir með þeim. Þetta gat kannski gengið í einhvern tíma vegna þess að læknarnir höfðu unnið fram fyrir sig. íbúar Suðurnesja hafa líka leitað annarra leiða til að fá úrlausn sinna mála. Þeir hafa meðal annars í vaxandi mæli leitað ásjár á Læknavaktinni í Reykja- vík og heilsugæslustöðvum á höfuðborgarsvæðinu. Heilbrigðisstofnun Suðurnesja hefur auglýst stöð- ur heilsugæslulækna lausar til umsóknar án árangurs. Það hefur enginn sótt um þessar stöður og það er ekki fyrir tilstuðlan eða áeggjan samtaka lækna. María Ólafsdóttir sem var í hópi læknanna sem sögðu upp í haust segir að áhugaleysi lækna stafi fyrst og fremst af þeirri stefnubreytingu sem varð í rekstri stofnunarinnar í haust og leiddi til þess að starfskröft- um sjö sérfræðinga var hafnað. Ólík rekstrarform undir einu þaki Eftir að þessi staða kom upp hefur umræðan snúist um að finna nýjar aðferðir við að leysa þann hnút sem reksturinn er kominn í. Meðal þess sem rætt hef- ur verið er stofnun sjálfseignarstofnunar sem gæti tekið að sér rekstur heilsugæslu. Kristján Gunnars- son formaður Verkalýðs- og sjómannafélags Kefla- víkur varpaði fram þeirri hugmynd að stéttarfélög, sveitarfélög, samtök sjúklinga og eldri borgara, félög atvinnurekenda, fyrirtæki og einstaklingar legðu í púkk til að koma slíkri stofnun á laggirnar. Hugsunin að baki slíkum rekstri er að stofnunin geri þjónustusamning við ríkið um að annast heilsu- gæslu á svæðinu. Hún réði síðan til sín það starfsfólk sem þarf og væri óbundin af opinberum kjarasamn- ingum í þeim ráðningum. Þannig væri svigrúm til að ráða lækna sem venjulega launamenn en einnig sem verktaka að hluta eða að þeir leigðu húsnæði af stofnuninni og rækju þar sína eigin stofu sem væri hluti af starfsemi heilsugæslunnar. Með því móti gætu ýmis rekstrarform þrifist undir sama þaki. Ef um hagnað væri að ræða af starfseminni yrði hann ekki greiddur út til eigendanna heldur yrði hon- um varið til að byggja stofnunina upp, styrkja eigið fé hennar eða til að gera betur við starfsfólkið. Hugmyndasmiður þessarar lausnar er Skúli Thor- oddsen lögmaður í Keflavík en hann hefur reynslu af rekstri sjálfseignarstofnunar í Svíþjóð og hefur skrif- að um málið í staðarblaðið Víkurfréttir. Hann segir að þetta rekstrarform nýti hagkvæmni einkarekstrar í þágu almennings. Reykvísk yfirtaka? Þegar þessi hugmynd var til umræðu manna á meðal á Suðurnesjum bárust fréttir af því að heilbrigðis- ráðuneytið hefði farið þess á leit við Heilsugæsluna í Reykjavík að hún hlypi undir bagga með heilsugæsl- unni í Keflavík. Það var kominn upp inflúensufarald- ur og mikið álag á heimilislæknum um allt land. Þessi ósk hlaut takmarkaðan hljómgrunn meðal heilsugæslulækna sem ekki vildu ganga inn í störf við stofnunina meðan ríkjandi stefna stjórnenda hennar er við lýði. Þá kom fram sú hugmynd hvort ekki væri rétt að Heilsugæslan í Reykjavík tæki einfaldlega yfir rekstur heilsugæslunnar á Suðurnesjum. Ef af verður mun heilsugæsluþátturinn verða skilinn frá öðrum rekstri Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja og honum stjórnað frá Reykjavík. Um þetta var rætt þegar Læknablaðið fór í prentun og óljóst hvort sú yrði niðurstaðan. Maríu Ólafsdóttur leist vel á þessa hugmynd ef hún þýddi að staðlar Heilsugæslunnar í Reykjavík myndu taka gildi í Keflavík og heilsugæslan þar yrði rekin á sömu forsendum og stuðst er við annars stað- ar. „Það yrði sigur fyrir heimilislækningar í landinu því með því væri ráðuneytið að viðurkenna þá staðla sem eru í gildi og að heilsugæslan væri grunnþáttur heilbrigðisþjónustunnar,“ sagði María. Þröstur Haraldsson Læknablaðið 2003/89 337
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.