Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.04.2003, Blaðsíða 71

Læknablaðið - 15.04.2003, Blaðsíða 71
UMRÆÐA & FRÉTTIR / FARALDSFRÆÐ Faraldsfræði í dag Réttmæti aðferða(fræði) í þessum þriðja pistli um hugtakið réttmæti (validity) verður spjallað almennt um réttmæti aðferða eða að- ferðafræði. Áður hefur verið rætt um réttmæti gagna og rannsóknamiðurstaðna. Réttmæti aðferða og mæli- tækja í faraldsfræðilegum eða tölfræðilegum skiln- ingi tekur til þess hvort ákveðin aðferð eða mælitæki sem notuð er til að safna gögnum eða vinna úr þeim geri í raun það sem til er ætlast, hvort hún mæli það sem á að mæla eða vinni úr gögnunum þær upplýs- ingar sem vænst var. Réttmæti mælitækja og úrvinnsluaðferða byggist að mörgu leyti á sömu grundvallarhugtökum og rædd voru varðandi réttmæti rannsóknamiðurstaðna. Þann- ig þarf að huga að tveimur aðalatriðum: er mælitækið (eða úrvinnsluaðferðin) réttmætt í því þýði sem það var þróað í (innra réttmæti, internal valdity) og er það réttmætt í öðrum þýðum (ytra réttmæti, external validity, generalizability). Eins og áður gildir að innra réttmæti er grundvöllur ytra réttmætis. Ytra réttmæti getur ekki verið til staðar án innra réttmæt- is, sem þó er ekki nægilegt eitt sér til að tryggja ytra réttmæti. Þegar rætt er um mælitæki í þessu samhengi er ekki átt við hlutlægar mælingar, svo sem ljósgleypni eða beinþéttni, heldur aðferðir sem beitt er tii að mæla viðföng sem ekki lúta sömu hlutlægu lögmál- um og eru í sumum tilvikum að einhverju eða veru- legu leyti huglæg. Sem dæmi um slík viðföng má nefna viðhorf sjúklinga til tiltekinnar þjónustu eða skilning þeirra á eigin sjúkdómi, þekkingu lækna á ákveðnum sjúkdómi eða upplifun almennings á eigin matarvenjum. Slíkar stærðir eru gjarnan mældar með einhvers konar spurningalistum eða viðtölum. Rétt- mæti þeirra aðferða snýst þá um það hvort til dæmis spurningalistinn sem lagður er fyrir sjúklinga til að mæla þekkingu þeirra á eigin sjúkdómi geri í raun það sem til er ætlast þannig að niðurstöður hans end- urspegli persónulega þekkingu sjúklings á sjúkdóms- ástandi sínu. Þar sem um mælingu huglægra þátta er að ræða geta fjölmörg atriði orðið til þess að spilla réttmæti slíks mælitækis. Innan þýðisins þar sem mæli- tækið var þróað getur innra réttmæti takmarkast til dæmis af ónógum fjölda spurninga, óljósu orðalagi eða óviðeigandi spurningum sem ekki duga til að varpa ljósi á mikilvæga þætti. Ef mælitækinu er beitt í öðrum þýðum geta komið fram annmarkar á ytra réttmæti mælitækisins af ýmsum sökum, svo sem vegna breytileika í málfari og málskilningi eða mis- munandi viðhorfa til sjúkdóma. Réttmæti úrvinnsluaðferða veltur að mestu leyti á svipuðum þáttum og réttmæti mælitækja. Á svipaðan hátt og í umræðunni um réttmæti mælitækja er hér átt við úrvinnsluaðferðir sem byggjast á ákveðnum for- sendum sem ekki er alltaf unnt að mæla með hlutlæg- um hætti og ekki eru algildar. Pví eru úrvinnsluað- ferðirnar heldur ekki algildar, ólíkt viðurkenndum stærðfræðilögmálum, og réttmæti þeirra má draga í efa ef þær eru ekki studdar viðeigandi gögnum og prófunum. Gott dæmi um slíkar úrvinnsluaðferðir eru til dæmis reiknilíkön sem notuð eru til að lýsa eiginleikum þýðis, innra sambandi eiginleika þess eða til að spá fyrir um atburði innan þess. Fjölmörg slík líkön eru í daglegri notkun innan heilbrigðisþjón- ustunnar, ýmist í klínískum tilgangi eða til stjórnunar og ákvarðanatöku. Má til dæmis nefna APACHE (Acute Physiology and Chronic Health Evaluation) líkanið sem notað er til að spá fyrir um skammtíma- afdrif gjörgæslusjúklinga og DRG (Diagnosis-Re- lated Groups) flokkunarkerfið sem nýtt er til að flokka sjúklinga eftir klínískum upplýsingum í þokka- lega einsleita hópa hvað rekstrarlegar útkomur varð- ar. Innra réttmæti slíkra líkana getur takmarkast af ónógri þekkingu á þróunarþýðinu og eiginleikum þess, ófullnægjandi framsetningu forspárþátta, tak- markaðri stærð úrtaks sem leiðir til óstöðugra álykt- ana og öðrum þáttum sem valda því að aðferðin end- urspeglar ekki raunverulega eiginleika þýðisins eða samband áhættuþátta og útkomu innan þess. Ytra sannleiksgildi líkana, eða notagildi þeirra í öðrum þýðum en þar sem þau voru upphaflega þróuð, getur sömuleiðis takmarkast af fjölmörgum þáttum, svo sem breytileika í lýðfræðilegri samsetningu, dreifingu og framgangi sjúkdóma, aðgengi að þjónustu, venj- um við rannsóknir og meðferð, og, ef um er að ræða rekstrarfræðileg gögn, breytileika í formi og rekstri heilbrigðisþjónustunnar. Hér hefur verið stiklað á stóru um þá fjölmörgu þætti er áhrif geta haft á réttmæti faraldsfræðilegra og tölfræðilegra aðferða. í næsta pistli verður farið nánar út í þá sálma, rætt um aðferðafræðilegar orsak- ir og tekin fyrir dæmi til að skýra málið frekar. María Heimisdóttir mariahei@landspitali. is Læknablaðið 2003/89 355
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.