Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.04.2003, Blaðsíða 39

Læknablaðið - 15.04.2003, Blaðsíða 39
FRÆÐIGREINAR / SIÐFRÆÐI STOFNFRUMULÆKNINGA við að frjálsræðið leiði til þankagangs sem sé vara- samur fyrir mannkynið. Þótt tilgangurinn sé ef til vill göfugur þá eru hugsanlegar aukaverkanir meðalsins of miklar. Mat sérstöðumanna virðist fyrst og fremst vera byggt á grunni tveggja þátta: annars vegar því vægi sem siðferðilegri sérstöðu fósturvísisins er gefin og hins vegar þeirri skyldu sem við höfum gagnvart þeim sem eru veikir, það er vemdun heilbrigðis. Spurning- in er svo hvenær hagur fullveðja mannveru vegur þyngra en hagur fósturvísis. Eðli sjúkdómsins sem glímt er við vegur hér augljóslega þungt og ólíkt per- sónusinnum er umræðan oftast einskorðuð við lífs- hættulega og/eða erfiða sjúkdóma sem engin önnur lækning hefur fundist við. Uppruni fósturvísa Þótt þeir sem aðhyllast sérstöðuviðhorfið samþykki sem grundvallarsjónarmið að heilbrigðisávinningur- inn vegi stundum þyngra en réttur fósturvísis, sér- staklega í tilviki alvarlegra sjúkdóma, þá er ágrein- ingur um hvort uppruni fósturvísis, sem taka á stofn- frumurnar úr, skipti máli. Fósturvísar geta orðið til með þrennum hætti: við kynfrjóvgun, glasafijóvgun og við kjarnaflutning úr líkamsfrumu yfir í eggfrumu. I daglegu tali er slíkur kjarnaflutningur nefndur ein- ræktun eða klónun. Fósturvísar sem verða afgangs við glasafrjóvgun Það er skoðun margra að fósturvísa megi eingöngu búa til í æxlunartilgangi. Þó að fjöldi fósturvísa verði afgangs við glasafrjóvgun þá er eðli slíkra aðgerða annað en stofnfrumutaka. Sköpun þeirra er liður í ákveðnu æxlunarferli og því að áliti margra fullkom- lega réttlætanleg. Þar sem glasafrjóvganir eru leyfðar, til dæmis á Islandi, má færa fyrir því rök að fátt hindri notkun afgangsfósturvísa úr glasafrjóvgun. Ekki er verið að skapa fósturvísa í þeim eina tilgangi að ná úr þeim stofnfrumum heldur eru þeir fósturvísar notað- ir sem annars yrði eytt að ákveðnum tíma liðnum. Þeir fá þannig nýtt og „göfugt" hlutverk til viðbótar við æxlunarhlutverkið: að bæta líf og heilsu manna. Það er ekki gengið í berhögg við hagsmuni afgangs- vísanna því fyrir þeim liggur ekki að þroskast frekar og því er ekki gripið inn í neitt vaxtarferli. Siðferðis- staða þeirra er öll önnur en fósturvísanna sem veljast til ígræðslu í móður. Þetta virðist af mörgum ástæðum álitlegasta leiðin og sú sem minnstu íjaðrafoki veldur. Þó eru margir sem óttast að áhugi vísindamanna muni leggja óeðli- legan þrýsting á foreldra til að gefa fósturvísa sína (6). Frumforsenda fyrir notkun fósturvísa er því upplýst og óþvingað samþykki foreldra eða egggjafa. Einnig er persónuvemd eggja/fósturvísagjafa nauðsynleg sem og fyrirbygging gróðavonar viðkomandi aðila. Framleiðsla fósturvísa í þeim eina tilgangi að ná úr þeim stofnfrumum Þótt sýnt sé að mörgum fósturvísum sem til verða í glasafrjóvgunarferlinu bíði þau örlög að verða eytt er slíkt réttlætt, eins og rakið var hér á undan, á þeim forsendum að frumhlutverk þeirra sé að skapa líf. Hvað þá með það háleita markmið að bæta og varð- veita líf? Þetta er spurning þeirra sem vilja ganga skrefinu lengra og leyfa framleiðslu fósturvísa í þeim eina tilgangi að nota stofnfrumur þeirra til lækninga. Ef glasafrjóvganir réttlætast af tilganginum hlýtur svo einnig að vera í tilviki lækninga á sjúkdómum á borð við Parkinson og mænuskaða. Að dómi margra er undarlegt að leyfðar séu rannsóknir og tilraunir á fósturvísum í því skyni að betrumbæta glasaftjóvgun- araðferðir en slíkar rannsóknir séu bannaðar þegar tilgangurinn er að bæta meðferð ýmissa alvarlegra sjúkdóma eins og raunin er á Islandi (Lög um tækni- frjóvgun nr. 55/1996. Reglugerð um tæknifrjóvgun nr. 568/1997). Þykir sem forgangsröðun í lækningu sjúk- dóma sé hér um margt undarleg, það er að ófrjósemi sé skipað ofar alvarlegum sjúkdómum sem hafa veru- leg áhrif á getu fólks til eðlilegs lífs. Talsmaður þess að skapaðir séu fósturvísar vegna stofnfrumna þeirra eingöngu neitar því að helgi lífs sé stefnt í voða með slíkum aðgerðum. Með því að leyfa slíkt skipi mann- lífið einmitt þann sess sem því ber, þar sem fullþrosk- að líf hljóti ávallt að vega þyngra en líf á frumstigi. Ef grannt er skoðað má þó sjá að myndun fóstur- vísa í þeim eina tilgangi að ná úr þeim stofnfrumum vekur upp áleitnari spurningar en notkun afgangs- vísa. Þessar spurningar snúa þó ekki allar beint að fósturvísinum sjálfum og helgi hans. Annar þáttur snýr að hlut „foreldra“ fósturvísisins. Að baki hverj- um fósturvísi eru bæði sæðis- og egggjafi. Talsvert til- finningalegt umrót getur fylgt gjöf af þessu tagi og þá sérstaklega ef gjöfin er þvinguð fram eins og margir óttast að verði raunin. Þvingunin getur verið marg- vísleg: frá sjúklingi og aðstandendum hans sem eygja í fósturvísunum von um bata, frá vísindasamfélaginu og ekki síst þvingun af efnahagslegum toga. Allflestir hafna því að fósturvísar gangi kaupum og sölum af virðingu við mannlífið og helgi þess. En í egggjöfinni er falin talsverð áhætta fyrir konuna sem óvíst er að hún taki án þess að hljóta einhveija umbun fyrir (8), enda eru fordæmi um greiðslur af þessu tagi í tilvik- um glasafrjóvgunar. Það er hins vegar skiljanlegra að móðirin láti eftir egg sem verða afgangs í aðgerð sem miða að þeim persónulegu hagsmunum hennar að ala barn. Þar sem heldur ólíklegt er að skortur verði á af- gangsfósturvísum í bráð þykir því mörgum sem æski- legt sé að fresta umræðunni um framleiðslu fóstur- vísa með annað yfirmarkmið en æxlun þar til stofn- frumulækningar eru famar að skila einhveijum ár- angri og sýnt er að þær séu raunverulegur kostur. Erf- itt er að segja til um hve mörgum afgangsvísum er Læknablaðið 2003/89 323
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.