Fréttatíminn - 05.09.2014, Side 53
heilsa 53Helgin 5.-7. september 2014
Skyr er nánast fitulaust, próteinríkt og
uppspretta kalks og fjölmargra annarra
vítamína og steinefna. Í Jótlandspóstinum
er lýsing á þessu íslenska heilsufæðu fyrir
danska neytendur. Þar segir meðal annars
um skyrið:
Prótein og kalk
Innihald: Undanrenna og skyrgerlar.
Fita, 0,2%.
Prótein, 11%.
Hátt innihald þurrefna og minnir á
sýrðan rjóma og gríska jógúrt.
Skyr hefur verið framleitt á Íslandi í
meira en 1000 ár.
Skyr var upprunalega hliðarafurð við
framleiðslu mysu sem notuð er til að
geyma kjöt.
60 milljónir
skyrdósa
seldar á
Norður-
löndunum
Bláberjaboozt
1 lítil dós Bláberja-
skyr.is
½ banani
½ pera
Tropicalboozt
½ lítil dós Ferskju
og hindberjaskyr.is
½ lítil dós Jarðar-
berjaskyr
½ banani
sneið af ananas
1 – 2 matskeið kókos
Jarðarberjaboozt
½ lítil dós Vanillu-
skyr.is
½ lítil dós Jarðar-
berjaskyr
½ banani
½ pera
nokkur jarðarber
Melónuboozt
1 lítil dós Jarðar-
berjaskyr
½ banani
sneið af melónu
Bananaboozt
½ lítil dós Bláberja-
skyr.is
½ lítil dós Ferskju
og hindberjaskyr.is
½ banani
½ pera
Berjaboozt
1 lítil dós Bláberja-
skyr.is
½ banani
nokkur jarðarber
Léttboozt
1 lítil dós Vanillu-
skyr.is
½ banani
sneið af melónu
½ pera
„dass“ af hreinum
appelsínusafa
Gott er að nota
klaka í allar
uppskriftirnar.
Uppskriftir af ms.is
Ferskar Boozt-uppskriftir með skyri
Tekjur Mjólkursamsölunnar af
sölu skyrs á erlendum mörkuðum á
þessu ári munu nema um 1,8 millj-
örðum króna, að því er fram kom á
vefnum sunnlenska.is í nýliðnum
ágúst. Reiknað er með að um 60
milljónir skyrdósa verði seldar til
Norðurlandanna en árlega seljast
um 8 milljónir skyrdósa hér á landi.
Markaðshlutdeild Mjólkursam-
sölunnar á sölu skyrs erlendis er
um 33%, en um 67% er selt af leyfis-
höfum undir eftirliti hennar. Aðal-
steinn H. Magnússon, sölustjóri
MS, sagði í viðtali við vefinn að skyr
frá Íslandi færi til Færeyja, Græn-
lands, Sviss og Finnlands, auk þess
sem lítill hluti færi á Bandaríkja-
markað. - jh
Skyrið hafa Íslendingar
þekkt frá örófi alda.
Það slær nú í gegn í
Danmörku og fleiri
löndum.