Fréttatíminn


Fréttatíminn - 05.09.2014, Qupperneq 58

Fréttatíminn - 05.09.2014, Qupperneq 58
Kringlunni Skeifunni Spönginni DDaglega D3 vítamín styrkir m.a. ónæmiskerfi, tennur og bein og hjálpar til við upptöku kalks. M itt fólk hefur verið að hjálpa þeim hér. Við höf-um tekið á móti starfs- fólki frá Smurstöðinni úti og sent hingað fólk til að undirbúa opn- unina. Við erum að koma með þekk- ingu okkar frá Almanak,“ segir hinn kunni danski matreiðslumaður Claus Meyer sem var hér á landi í vikunni. Meyer var hér vegna opn- unar veitingastaðarins Smurstöðv- arinnar í Hörpu á fimmtudag. Smurbrauðið var eyðilagt Á Smurstöðinni er boðið upp á smurbrauð í nýklassískum stíl. Hugmyndafræðin á bak við staðinn er sótt til eins af veitingastöðum Meyers í Kaupmannahöfn, Alman- ak. „Hugmyndafræðin snýst um að taka það sem lærst hefur af nýnor- ræna eldhúsinu og nota það í smur- brauðinu. Smurbrauðið er gömul og góð hefð en hefur meira og minna verið eyðilögð af slæmum siðum og lélegu hráefni. Við viljum fríska upp á þetta,“ segir Meyer. Við hittum Meyer á Smurstöðinni í hádeginu á fimmtudag og honum leist vel á staðinn. „Það er falleg birta hérna inni og ég hlakka til að smakka matinn,“ sagði hann. Er þá gamla góða danska smur- brauðið dautt og grafið? Er smur- brauð með kjötbollum alveg úti? „Auðvitað er hægt að búa til gott smurbrauð með kjötbollum, með réttu grænmeti og nýelduðu kjöti. Það getur verið mjög gott. En það væri aldrei í ætt við nýnorræna matargerð, með stórri klessu af svínakjöti eða lambakjöti. Þetta snýst ekki um að skipta út öllu því gamla heldur að taka það góða úr fortíðinni og passa að það sé rétt jafnvægi, að það sé ekki allt svína- lifur og reykt síld og þannig þungt hráefni.“ Fjóra mánuði að fá Michelin- stjörnu Claus Meyer er stórt nafn í Dan- Breytti matarmenningu á Norðurlöndunum Danski matreiðslumaðurinn Claus Meyer lagði lóð sín á vogar- skálarnar við opnun Smurstöðvarinnar í Hörpu. Meyer er einn af stofnendum Noma og upphafsmaður nýnorræna eldhússins og hefur byggt upp stórt veldi í matarheiminum í heimalandinu. Claus Meyer var á Íslandi í vikunni til að kynna sér nýjan íslenskan veitingastað, Smurstöðina í Hörpu. Starfsfólk á staðnum var í læri hjá fólki Meyers á Almanak í Kaupmannahöfn. Ljósmynd/Hari Hver er Claus Meyer? Fæddur 27. desember 1963 í Danmörku. Einn stofnenda Noma árið 2003. Kvæntur Christinu Meyer Bengtsson, grafískum hönnuði. Þau eiga þrjár dætur. Er með MA-próf í Inter- national Business Studies frá Copenhagen Business School. Er með yfir 400 manns í vinnu í fjölmörgum fyrir- tækjum. Hefur skrifað fjórtán mat- reiðslubækur. Höskuldur Daði Magnússon Teitur Jónasson ritstjorn@frettatiminn.is 58 matur og vín Helgin 5.-7. september 2014
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.