Fréttatíminn - 13.06.2014, Qupperneq 4
SUMARTILBOÐ
Smiðjuvegi 2, Kóp - S. 554 0400
Skoðið úrvalið á
www.grillbudin.is
98.900
• 3 brennarar úr ryðfríu stáli
• Postulínsemalerað eldhólf
• Grillgrindur úr pottjárni
• Kveiking í öllum rofum
• Auka steikarplata fylgir
• Niðurfellanleg hliðarborð
• Efri grind
• Bakki fyrir fitu
• Hitamælir
• Fáanlegt í fleiri litum
Er frá Þýskalandi
Opið laugardaga til kl. 16
Niðurfellanleg
hliðarborð
S ýrlendingurinn Yaman Brinkhan hefur búið á Íslandi
í 14 ár en fær ekki ís-
lenskan ríkisborgararétt
því hann hefur fengið um-
ferðarsektir. Fyrir vikið
er hann vegabréfslaus
því sýrlenska vegabréfið
hans rann út árið 2012 og
fæst ekki endurnýjað því
vegna ástandsins í Sýr-
landi hefur sendiráðum
Sýrlands víða um heim
verið lokað.
Yaman kom hingað
beint frá Sýrlandi og
fékk strax atvinnu- og
dvalarleyfi. „Ég hef unnið
frá því ég kom hingað
og aldrei verið á bótum,“
segir Yaman. Hann á nú
og rekur hér tvo veit-
ingastaði undir nafninu
Alibaba, er kvæntur sýr-
lenskri konu og eiga þau
tvö börn. Hvorugt þeirra
er með íslenskt vegabréf,
því íslensk lög heimila
það ekki nema annað for-
eldrið sé íslenskt, þrátt
fyrir að börnin séu fædd
og uppalin hér á landi.
„Ég byrjaði að sækja um
íslenskan ríkisborgara-
rétt þegar ég var búinn
að búa hér í níu ár en
lögum samkvæmt má
sækja um ríkisborgara-
rétt eftir 7 ára búsetu. Ég
fékk hins vegar synjun frá
Útlendingastofnun því ég
hafði fengið hraðasekt,“
segir Yaman. Árlega
síðan hefur hann sótt um
ríkisborgararétt en ávallt
fengið synjun á þeim
forsendum að hann hafi
fengið umferðarsekt eða
hraðasekt. „Ég hef reynd-
ar verið mjög óheppinn
með þetta,“ viðurkennir
Yaman, „að ég hef fengið
umferðarsekt á hverju af
þessum fjórum árum sem
ég hef sótt um.“
Samkvæmt lögum má
ekki veita fólki íslenskan
ríkisborgararétt ef það
hefur fengið sekt á síðast-
liðnum tólf mánuðum.
Lögfræðingur Yaman
benti honum á að sækja
um ríkisborgararétt í
gegnum Alþingi, því þar
veður FöStudagur laugardagur Sunnudagur
Dálítil væta S- og Sv-lanDS frá miðjum
Degi. Bjart og hlýtt n- og a-lanDS.
höfuðBorgarSvæðið: Þykknar upp og
smá rign. eftir hádegi.
Sólarlítið og Smávæta hér og þar um
v-vert lanDið. hægviðri.
höfuðBorgarSvæðið: Þungbúið
en Þurrt að kalla.
fremur hlýtt, en víðaSt Skýjað
og Stutt í Smá vætu.
höfuðBorgarSvæðið: sólarlaust,
og smá rigning um miðjan daginn.
áfram milt og blítt,
en sólarlítið
júní fer vel af stað í hita í reykjavík.
meðalhiti það sem af er 11,2°C. met-
mánuðurinn frá 2010 er skammt undan
ef tíðin helst svipuð. spáð mildu lofti af
suðlægum uppruna yfir landinu.
meira og minna skýjað á
laugardag og sunnudag og
lítilsháttar væta, einkum
s- og V-til. Vindur hægur
og ef sólin nær að brjótast
í gegn fyrir norðan og
austan fer hiti fljótt í 20
stig.
12
14 19
18
12
13
11 15 17
14
13
10 14 15
13
einar Sveinbjörnsson
vedurvaktin@vedurvaktin.is
ríkiSborgararéttur Fær ekki ríkiSborgararétt vegna hraðaSektar
yaman brinkhan hefur búið 14 ár á Íslandi en fær ekki ríkisborgararétt. sýrlenska vegabréfið
hans er útrunnið og því getur hann ekki heimsótt fjölskyldu sína sem býr á tyrklandi.
Vegabréfslaus
eftir 14 ár á Íslandi
sýrlendingur sem búsettur hefur verið á Íslandi í 14 ár og rekur hér eigið fyrirtæki fær ekki
íslenskan ríkisborgararétt af ástæðum sem hann skilur ekki sjálfur. hann er vegabréfslaus og
því nánast fastur í landinu því sýrlenska vegabréfið hans rann út fyrir tveimur árum. Vegna
ástandsins í sýrlandi var sendiráðum víða um heim lokað svo hann fær ekki nýtt.
er ekki litið til smávægilegra brota á
borð við umferðarlagabrot við veitingu
ríkisborgararéttar.
alþingi synjaði honum ríkisborg-
ararétti
„Ég fékk að heyra að ég uppfyllti öll
skilyrði, hefði staðið íslenskupróf, væri
fjárhagslega sjálfstæður og með hreint
sakavottorð,“ segir Yaman. „Samt sem
áður hefur nafnið mitt aldrei verið á
listanum frá Alþingi,“ segir hann. „Það
er óskiljanlegt, er mér sagt,“ segir
hann.
Fjölskylda Yaman, þar á meðal
móðir hans, er búsett í Tyrklandi. Eftir
að vegabréfið hans rann út þurfti hann
að heimsækja móður sína en það tók
hann sjö mánuði að fá ferðaleyfi frá ís-
lenskum yfirvöldum til að geta ferðast
á milli landa vegabréfslaus.
„Mér var bent á að fara í sýrlenskt
sendiráð og sækja um vegabréf eða fá
staðfestingu á því að þeir gætu ekki
gefið út vegabréf fyrir mig. Ég spurði
hvort fólk væri ekki meðvitað um það
að sýrlenskum sendiráðum hefði verið
lokað, en þá var mér sagt að koma með
staðfestingu þess efnis. Það tók mig
sjö mánuði að fá ferðaleyfið,“ segir
Yaman.
Tyrkneska landamæraeftirlitið tók
hins vegar ferðaleyfið hans ekki gilt
og var Yaman handtekinn við komuna
til Tyrklands og sendur í handjárnum
aftur til Danmerkur, þaðan sem hann
hafði flogið. Hann fékk þó blíðari
móttökur í Danmörku og kom aftur
til Íslands. „Ég kemst kannski til Dan-
merkur eða Þýskalands á íslenskum
ferðapappírum, en ekki til Tyrklands
eða til að mynda Dubaí, þar sem móðir
mín dvaldist um tíma,“ segir Yaman.
Fyrir ári síðan óskaði Yaman eftir
viðtali við Hönnu Birnu Kristjáns-
dóttur innanríkisráðherra. Hann hefur
enn ekki fengið viðtal við hana.
Sigríður Dögg auðunsdóttir
sigridur@frettatiminn.is
hemmi styrkir
efnalítil börn
hermann hreiðarsson knattspyrnu-
maður hefur stofnað sjóð í samstarfi við
hjálparstofnun kirkjunnar sem hefur
fengið nafnið „hemmasjóður“. stofn-
framlag hermanns er 500.000 krónur
en sjóðurinn er til þess gerður að styrkja
börn efnalítilla fjölskyldna og veita þeim
þannig tækifæri til að stunda íþróttir. á
www.gjöfsemgefur.is geta þeir sem vilja
leggja sitt af mörkum lagt inn á hemma-
sjóð. Vilborg oddsdóttir, umsjónarmaður
innanlandsstarfs hjálparstofn-
unar kirkjunnar, segir
íþróttaiðkun barna oft
geta verið þungan
bagga að bera
fyrir efnalitlar
fjölskyldur enda
hafi iðkunar-
gjöld, búninga-
kaup og ferðalög
mikinn kostnað í
för með sér.
breyting hefur orðið til hins betra á mati
stjórnenda á núverandi aðstæðum í atvinnu-
lífinu og telja mun fleiri að þær batni á
næstu sex mánuðum en þær versni. nægt
framboð er af starfsfólki en helst skortir
starfsmenn í iðnaði og byggingarstarfsemi
en enginn skortur er í verslun. Mun fleiri
fyrirtæki áforma fjölgun starfsmanna en
fækkun næstu sex mánuði, en á heildina
litið gera þau ráð fyrir óbreyttum starfs-
mannafjölda þar sem stærri fyrirtækin gera
ráð fyrir fækkun starfsmanna. að jafnaði
vænta stjórnendur 3,0% verðbólgu næstu 12
mánuði. Þetta eru helstu niðurstöður könn-
unar Capacent á stöðu og framtíðarhorfum
stærstu fyrirtækja, sem gerð var
í maí 2014 og greint er frá á
síðu samtaka atvinnulífsins.
mat stjórnenda á núverandi
aðstæðum er jákvæðara
en í mars og jákvæðara en
það hefur verið frá árinu
2007. 23% stjórnenda telja
aðstæður í atvinnulífinu góðar,
16% slæmar en 60% telja þær
hvorki vera góðar né slæmar.
jákvæðni á þennan mælikvarða er
langmest í sérhæfðri þjónustu og
sjávarútvegi, minnst í iðnaði
en matið er svipað
í öðrum
atvinnu-
grein-
um.
-jh
aukin bjartsýni
stjórnenda
stærstu
fyrirtækja
Lj
ós
m
yn
d/
H
ar
i
4 fréttir helgin 13.-15. júní 2014