Fréttatíminn - 13.06.2014, Page 62
Önnur mynd Hafsteins
Gunnars Sigurðssonar fjallar
um Huga, karlmann á miðjum
aldri sem hefur lokað sig af
í litlu þorpi þar sem hann
íhugar hver sín næstu skref
eigi að vera. Ljósmynd/Hari
Kómísk karlakrísa í
mögnuðu umhverfi
Kvikmyndin „París norðursins“, í leikstjórn Hafsteins Gunnars Sigurðssonar, verður heimsfrum-
sýnd í aðalkeppni hinnar virtu kvikmyndahátíðar í Karlovy Vary í júlí. París norðursins er önnur
kvikmynd Hafsteins Gunnars Sigurðsson í fullri lengd en fyrri mynd hans „Á annan veg“ vakti
mikla athygli á kvikmyndahátíðum og var endurgerð í Bandaríkjunum undir heitinu „Prince
Avalanche“. Huldar Breiðfjörð er höfundur handritsins, frumsamin tónlist myndarinnar er eftir
Prins Póló en framleiðendur eru Sindri Páll Kjartansson og Þórir Snær Sigurjónsson.
Bíó Hafsteinn Gunnar frumsýnir París norðursins í næsta mánuði
Helgi Björnsson leikur Veigar, föður Huga, sem birtist skyndilega og hristir upp í tilveru sonarins.
Þ etta er mannleg drama-kómedía þar sem karakterar eru í forgrunni, frekar en stór og mikil söguframvinda,“ segir Hafsteinn Gunn-ar Sigurðsson, leikstjóri myndarinnar „París
norðursins“. „Við Huldar hrífumst báðir af þannig
sögum, sem eru lágstemdar en þarfnast samt kannski
meiri athygli af áhorfandanum en í einhverri sprengju-
mynd. Við treystum á að smáatriðin og persónurnar
beri myndina uppi frekar en eitthvað mikið
og flókið plott. Engu að síður er mjög dríf-
andi framvinda í þessari sögu.“
Hugi, aðalpersóna myndarinnar, sem
leikin er af Birni Thors, er staddur
á Flateyri til að komast yfir ákveðin
tímamót í lífi sínu og hefur ekki margt
annað fyrir stafni en að horfa á sjón-
varpið og fara á AA- fundi. Hann reynir
af mikilli festu og alvöru að bæta sig og
líf sitt, líkt og metnaður hans í langhlaupi
ber vitni um. Undirtónninn er alvarlegur
en það er mikill húmor í myndinni. „Við
erum alltaf að reyna að bæta okkur þrátt fyrir
að það sé kannski ekki alltaf ástæða
til þess. Það er kannski það
sem þessi mynd fjallar
um, mann sem gleymir
að njóta augnabliksins
því hann er alltaf í ein-
hverju átaki.“
Flateyri áhugavert
og myndrænt þorp
„París norðursins“
er önnur mynd Haf-
steins í fullri lengd
en fyrri mynd
hans „Á annan
veg“ gerist líka
á Vestfjörðum.
„Það er eigin-
lega tilviljun að
Vestfirðir urðu
fyrir valinu í
báðum mynd-
unum. Þegar
ég gerði „Á
annan veg“
var ég búinn
að skrifa
handritið en
vissi ekkert
hvar ég ætti
að taka hana
upp. Svo var ég á
leiðinni heim eftir
Skjaldborgarhátíð-
ina og var eitthvað að horfa í kringum mig í Arnarfirð-
inum og áttaði mig á því að það væri alveg fullkominn
tökustaður fyrir þá mynd,“ segir Hafsteinn sem hefur
eytt töluverðum tíma á Flateyri því vinur hans og hand-
ritshöfundur myndarinnar, Huldar Breiðfjörð, á hús
þar. „Við vorum komnir með þá hugmynd, töluvert
áður en „Á annan veg“ varð til, að gera mynd um
feðga sem gerðist í þorpinu. Okkur þykir Flateyri vera
mjög áhugavert og myndrænt þorp. Bæði vegna
fólksins og þeirrar sérstöku stemningar sem
þar er að finna, en líka vegna yfirbragðsins.
Ég vil alls ekki nota orðið ljótleiki en það
er vissulega ákveðin depressjón í þorpinu
sem mætir þessari mögnuðu náttúru sem
umlykur það. Stemning fólksins ber samt
einhvern veginn umhverfið ofurliði. Svo
það eru ákveðnar þversagnir sem mætast
í þessum stað, finnst mér.“
Karlar í krísu
En myndir Hafsteins eiga fleira sameigin-
legt en magnað umhverfið, þær fjalla
nefnilega báðar um karlmenn
sem hafa misst fótanna
og eru að reyna að
finna sig á ný. „Ég
held að karlmað-
urinn almennt
sé í krísu og já,
myndin fjallar
að einhverju
leyti um það.
Allar þessar
breytingar,
sem hafa átt
sér stað með
kvenfrelsis-
baráttunni,
hafa verið
erfiðar fyr-
ir marga
karl-
menn,
kynja-
hlutverk-
in hafa
breyst svo
mikið.
Karlmenn
stóðu
áður fyrr á
mjög styrk-
um fótum en
nú ganga þeir
ekki að öllu vísu
og eiga því erfið-
ara með að fóta sig.
En ég er viss um að
þeir hafi mjög gott að því
að endurskoða sína stöðu
í samfélaginu.“
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
62 menning Helgin 13.-15. júní 2014
SKÓLANEMAR: 25% AFSLÁTTUR GEGN FRAMVÍSUN SKÍRTEINIS!
MEÐ STUÐNINGI REYKJAVÍKURBORGAR & KVIKMYNDAMIÐSTÖÐVAR ÍSLANDS - MIÐASALA: 412 7711
HM Í FÓTBOLTA
Í BEINNI Í BÍÓ PARADÍS
Miðasala | 568 8000 | midasala@borgarleikhus.is
BLAM (Stóra sviðið)
Fim 19/6 kl. 20:00 aukas Lau 21/6 kl. 20:00 aukas
Fös 20/6 kl. 20:00 aukas Sun 22/6 kl. 20:00 lokas
Sýning ársins í Danmörku 2012, 6 Grímutilnefningar 2013. Aðeins þessar sýningar!
Ferjan (Litla sviðið)
Fös 13/6 kl. 20:00
Fyrsta leikrit Kristínar Marju eins ástsælasta rithöfundar þjóðarinnar
BLAM! - síðasti séns að næla sér í miða