Fréttatíminn - 13.06.2014, Blaðsíða 38
Futura 28
léttur og vandaður
dagpoki. Aircomfort
bak sem loftar betur.
Verð: 22.990 kr.
Futura 32
Vinsælasti dagpokinn.
frábært burðarkerfi
með loftun.
Verð: 24.990 kr.
futura 38
Stór dagpoki með þægi-
legu burðarkerfi. Vin-
sæll í lengri dagsferðir.
Verð: 25.990 kr.
Aircontact 65+10
Frábær verðlaunabakpoki
til notkunar í lengri
ferðir. Öflugt burðarkerfi.
Verð: 46.990 kr.
Berðu þig vel marg verðlaunaðirbakpokar
utilif. isGLÆSIBÆ KRINGLUNNI SMÁRALIND
Á
R
N
A
S
Y
N
IR
Túristaborgin
vöknuð til lífsins
Ljósmyndir/Hari
H ugviti okkar Íslendinga virðast fá takmörk sett þegar kemur að því að
þjónusta erlenda ferðamenn. Þegar
þörfinni fyrir hótel og veitingastaði
virðist hafa verið mætt að fullu finn-
um við bara upp á einhverju nýju.
Þegar gengið er í miðbænum má
sjá nokkrar nýjungar sem eflaust
eiga eftir að vekja athygli í sumar.
Og umtal, því ekki er öruggt að allir
séu sáttir við þessa þróun.
Hjólaferð á fimm þúsund
Á miðjum Laugaveginum er nú
hægt að leigja lítil segway-hjól.
Leigan hefur greinilega vakið
áhuga vegfarenda sem skoðuðu
þau í forundran þegar Fréttatím-
inn leit við í vikunni. Fyrir 1.500
krónur geturðu fengið hjól lánað
í 15 mínútur, hálftíminn kostar
2.500 krónur og klukkutíminn
4.900 krónur.
Vespuferð á fimmtán þúsund
Hinum megin við Laugaveginn er
nú hægt að leigja fjórhjóla-vespur,
eða „scootera“. Það er fyrirtækið
Green Scooters sem býður upp
á þessa þjónustu og samkvæmt
heimasíðu þess kostar klukkutíma-
ferð á eigin vegum 3.500 krónur. Þá
er hægt að fara í ferðir með farar-
stjóra sem kosta 15.000 krónur.
Íslensk kjötsúpa úr vagni
Tveir kjötsúpuvagnar eru nú í
miðbæ Reykjavíkur. Þrjú systkini
úr Garðabæ selja súpur í nágrenni
Menntaskólans í Reykjavík og við
Hallgrímskirkju selur Jónína H.
Gunnarsdóttir súpu ásamt sonum
sínum. Súpudiskurinn kostar um
þúsund krónur á báðum stöðum.
Hornafjarðarhumar úr vagni
„Ég ætla bara að hafa þetta einfalt í
byrjun en með haustinu langar mig
að fara út í eitthvað meira,“ segir Fjóla
Sigurðardóttir sem rekur humarvagn-
inn Lobster Hut við Lækjartorg. Þar
selur hún humarsamlokur á 1.900
krónur og humarsúpu á 1.200 krónur.
Fjóla stefnir líka á að bjóða upp á
humarsalat. „Ef fólk vill ekki brauðið,
það eru nefnilega svo margir á LKL,
ekki ég samt!“
Viðtökurnar hafa verið góðar. „Ég
keypti vagninn í Danmörku og opnaði
síðasta föstudag. Fólk er mjög áhuga-
samt um þetta, bæði ferðamennirnir
og Íslendingar.“
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@frettatiminn.is
Búist er við allt að milljón ferðamönnum hingað til lands í ár.
Hótelum og gistiheimilum hefur fjölgað hratt og hér er að verða
til stór iðnaður við að þjónusta gestina. Miklar breytingar hafa
orðið á miðbæ Reykjavíkur síðustu ár af þessum sökum; auk
gisti- og veitingastaða hafa sprottið upp verslanir sem sérhæfa
sig í varningi fyrir ferðamenn, svokallaðar lundabúðir. Nú er
búið að taka næsta skref því hægt er að leigja sér vespur og lítil
segway-hjól á Laugaveginum.
38 ferðamannaiðnaður Helgin 13.-15. júní 2014