Fréttatíminn


Fréttatíminn - 13.06.2014, Blaðsíða 20

Fréttatíminn - 13.06.2014, Blaðsíða 20
www.volkswagen.is Meistari í sparsemi Volkswagen up! Volkswagen Take up! kostar 1.990.000 kr. Samkvæmt könnun breska bílablaðsins Autoexpress er enginn bíll ódýrari í rekstri en Volkswagen up! Með Volkswagen up! hafa jafnframt verið sett ný viðmið í hönnun því hann er einstaklega nettur að utan en afar rúmgóður að innan. HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is Umboðsmenn: Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · Heklusalurinn Ísafirði Komdu og reynsluaktu Volkswagen up! Eyðsla frá 4,1 l/100 km A uk ab ún að ur á m yn d: S am lit h an df ön g, só lþ ak , þ ok ul jó s, lis ta r á h ur ðu m , k ró m á sp eg lu m . og ég lærði mjög mikið. Ég fann hins vegar að mér fannst mig vanta menntun og það varð úr að ég fór til Bretlands þar sem ég nam leik- list við The Drama Studio London. Mest lærði ég samt af samstarfs- fólki mínu og auðvitað áhorfendun- um en án þeirra væri lítill tilgang- ur með þessari listgrein.“ Leitar í sálinni Þegar ég spyr Theódór hvað það sé sem leiklistin gefi honum segist hann eiga erfitt með að koma því í orð og tekur fram: „Ég held að ég hafi aldrei verið spurður að þessu áður. En ég held að þetta sé eins og með aðrar listgreinar, þetta er eitthvað sem er í manni. Sumir verða málarar, aðrir tón- listarmenn. Ég á mjög erfitt með að hugsa mér að vinna við eitt- hvað annað. Líf án þess að leika yrði að minnsta kosti mjög erfitt til að byrja með. Leiklistin býr innra með manni og kannski hjálpar hún manni að losna frá sjálfum sér. Svo er það auðvitað þannig að allar persónurnar sækir maður hingað,“ segir Theódór og leggur aðra höndina á hjartastað. „Ég leita í sálinni og athuga hvort ég finn ekki eitthvað sem ég get notað. Þegar ég byrja að vinna fer ég fyrst þangað, móta persónuna út frá sjálfum mér og síðan þróast þetta áfram. Þetta er ástríða sem hefur vaxið með mér. Þó ég hafi numið bakaraiðn þá blundaði þetta alltaf í mér og þróaðist áfram með þátttöku í áhugaleikhópum.“ Hlutverk Theódórs í leikhúsi eru orðin allt að 160 talsins og kvikmyndahlutverkin tæplega 20, fyrir utan stuttmyndir. Hann hefur leikið í kvikmyndum Baltasars Kormáks; Hafinu, Mýrinni og Djúpinu, en frammistaða hans sem illmennisins í Mýrinni vakti mikla athygli. „Já, þar lék ég algjöran brjálæðing,“ segir Theódór rólega með hógværð í röddinni. „Okkur Baltasar hefur alltaf gengið vel að vinna saman.“ Hann lék í Englum alheimsins undir leikstjórn Frið- riks Þórs Friðrikssonar og Reykja- vík-Rotterdam Óskars Jónassonar, og nýjasta kvikmyndin er Vonar- stræti þar sem hann leikur föður leikskólakennarans og vændis- konunnar Eikar. Athygli vekur að flest kvikmyndahlutverk Theódórs flokkast sem aukahlutverk en við- vera hans á skjánum er engu að síður með þeim eftirminnilegri. Hlutverk hans í Vonarstræti er til að mynda ekki stórt en afar áhrifamikið. Fáir íslenskir leikarar hafa leikið jafn mikið í bíómyndum meðfram leikhúsinu en Theódór segir það allt hafa gengi upp í góðu samstarfi. Uppsögnin óvænta Borgarleikhúsið var mikið í frétt- unum í vor, fyrst eftir að Magnús Geir Þórðarson lét af störfum, síðan var það eftirvæntingin eftir því hver tæki við, og svo loks fréttir af því að Kristín Eysteins- dóttir væri nýr Borgarleikhús- stjóri. Hún var nýtekin við þegar tilkynnt var um uppsagnirnar umdeildu og var Theódór mjög brugðið þegar honum var sagt upp eftir samfellt starf hjá Borgar- leikhúsinu frá stofnun þess. „Þetta hafði líka mikil áhrif á fjöl- skyldulífið og hafði mikil áhrif á konuna mína sem vinnur í Borgar- leikhúsinu. Nánast frá upphafi hefur hún stjórnað forsalnum, veitingasölunni og miðasölunni, en nú sér hún eingöngu um miða- söluna. Auðvitað hafði þetta áhrif á hana. Dætur mínar tóku þetta líka mjög nærri sér og voru mjög reiðar.“ Fótunum hafði skyndilega verið kippt undan Theódóri og vanlíðan hans og höfnunartilfinn- ing var yfirþyrmandi. Í kjölfar mikillar gagnrýni í samfélaginu dró Kristín uppsögnina til baka en Theódór var hikandi að koma aftur til starfa eftir það mikla áfall sem hann varð fyrir. „Ég sá fyrir mér að þetta myndi sitja í mér og koma niður á starf- inu. Ég var hreinlega ekki viss um hvort ég myndi ráða við að vinna aftur niðri í leikhúsi. Ég hugsaði með mér að það væri betra fyrir alla aðila, ekki bara mig heldur líka leikhúsið. Kristín var síðan í miklu sambandi við mig og vissi að mér leið mjög illa. Það fór síðan þannig að samkvæmt læknisráði var sótt um fyrir mig um dvöl á Heilsustofnuninni í Hveragerði. Ég hafði lokað mig af því ég vildi ekki tala við fólk um uppsögnina. Á Heilsustofnuninni var þetta öðruvísi. Þar vissu flestir hver ég var en enginn spurði hvort þetta væri ekki erfitt fyrir mig. Það þurfti ekkert að spyrja að því. Það er svo misjafnt sem hrjáir þá sem sækja þarna aðstoð og lækningu og maður gengur ekki upp að fólki og spyr: „Hvað er að þér?“ Starfsfólkið þarna er algjörlega yndislegt og auðvitað ræddi ég mál mín við það.“ Theódór segist nokkuð viss um að hann hefði leitað sér and- legrar hjálpar hvort sem upp- sögnin hefði verið dregin til baka eður ei. „Ég þurfti sannarlega á þessu að halda. Áður átti ég erfitt með að fara niður í leikhús og ef ég fór þangað til að hitta Kristínu læddist ég meðfram veggjum. Ég átti erfitt með að hitta fólk, þrátt fyrir að hafa fengið svona mikil og sterk viðbrögð frá samstarfsfólki mínu. Ég hafði ekki kjark til að hitta mitt nánasta samstarfsfólk því ég vissi að ég myndi brotna niður. Eftir á að hyggja finnst mér ég hafa farið rétt að þessu og að sú ákvörðun að leita mér aðstoðar hafi gert gæfumuninn til að ég næði aftur áttum. Síðan þá hef ég farið niður í leikhús, séð aftur leiksýningar sem ég var áður búin að sjá og fara baksviðs að hitta samstarfsfólkið. Það hafa allir faðmað mann og tekið vel á móti mér. Nú bið ég Kristínu ekki lengur að hitta mig klukkan fjögur eða fimm þegar fáir eru á ferli heldur hitti ég hana bara klukkan 11 á morgnana,“ segir hann nokkuð stoltur af þessum framförum, eðlilega. „Það var mikill léttir að komast yfir þennan þröskuld og nú erum við Kristín að ræða saman um hvaða hlutverk munu standa mér til boða.“ Hann tekur fram að hann hafi ákveðinn skilning á því að nýir leikhússtjórar velji sér samstarfs- fólk. „Leikhúsið þarf alltaf að vera á hreyfingu og auðvitað þarf reglulega að skipta út fólki og fá annað inn, en mér finnst að taka verði tillit til þess hvar fólk er á æviskeiðinu.“ Hélt að þetta væri gabb Það var sannarlega mikið rót á lífi Theódórs þegar hann var útnefnd- ur heiðurslistamaður Kópavogs og var hann í fyrstu vantrúaður þegar honum var tilkynnt um það. „Arna Schram, menningarfulltrúi Kópavogsbæjar, hringdi í mig. Í fyrstu náði ég ekki nafninu hennar og hélt síðan að þetta væri eins- konar aprílgabb. Samtalið þróaðist síðan út í að ég áttaði mig á því að þetta var alls ekkert gabb og fannst þetta algjörlega frábærar fréttir. Mér fannst þetta gríðar- legur heiður þegar ég áttaði mig á því hvað var að gerast. Þetta jók sjálfstraust mitt og ég fann gleði í hjartanu. Mér fannst þetta líka frá- bærar fréttir fyrir konuna mína og dætur mínar sem standa með mér í gegn um súrt og sætt. Ég neita því ekki að þessi viðurkenning hefði ekki getað komið á betri tíma.“ Fer í reynslubankann Þá blasir enn eitt kvikmyndahlut- verkið við en brátt hefjast tökur á kvikmyndinni Hrútar þar sem Theódór og Sigurður Sigurjóns- son fara með aðalhlutverk, hlut- verk tveggja bræðra. Leikstjóri er Grímur Hákonarson sem er þekkt- ur fyrir heimildamyndir og stutt- myndir á borð við Bræðrabyltu en þetta er fyrsta leikna myndin hans í fullri lengd. „Myndin verður tekin upp í Bárðardal og gerist í bændasamfélaginu. Í upphafi myndarinnar talast bræðurnir ekki við. Þeir búa á býli foreldra sinna en í sitt hvoru húsinu og hafa vanið hundinn við að fara á milli með skilaboð. Þegar upp kemur riða í sveitinni dregur heldur betur til tíðinda. Þessi mynd getur á köflum verið sprenghlægileg en það er líka mikið drama. Strax í upphafi minnti hún mig á verk Cohen-bræðra.“ Upptökur hefjast í ágúst og kemur Theódór sterkur til leiks. „Ég þarf að nýta þá reynslu sem ég hef öðlast. Ég vissi aldrei hvernig tilfinning það er að vera skyndi- lega sagt upp í starfi sem skiptir mann öllu. Ég er auðvitað ekkert einsdæmi. Í kjölfar Hrunsins var mörgum sagt upp mjög harkalega og óvænt. Nú bý ég að því að vita hvernig tilfinning það er og set það í reynslubankann. Ég held að það efli mig og kannski kem ég til baka miklu betri leikari en ég var áður.“ Erla Hlynsdóttir erla@frettatiminn.is Theódór Júlíusson er menntaður í leiklist hjá The Drama Studio í London. Hann hefur leikið í allt að 160 leikverkum og tæplega 20 kvikmyndum, að stuttmyndum frátöldum. Ljósmynd/Hari 20 viðtal Helgin 13.-15. júní 2014
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.