Fréttatíminn - 13.06.2014, Blaðsíða 78
— 10 — 13. júní 2014
Rau
ðagerði 25 · 108 Reykjavík · Sími 440 1800 · www.kaelitaekni.is
Okkar þekking nýtist þér
• Mylur alla ávexti, grænmeti
klaka og nánast hvað sem er
• Hnoðar deig
• Býr til heita súpu og ís
• Uppskriftarbók og
DVD diskur
fylgja með
Lífstíðareign!
Tilboðsverð kr. 106.900
Með fylgir Vitamix sleif
drykkjarmál og svunta
Fullt verð kr. 125.765
Meira en bara
blandari!
G angi fyrirætlanir eftir mun hönnun sjúkrahótels við Landspítala ljúka í mars á næsta ári. Gert er ráð fyrir að framkvæmdir við bygg-
inguna kosti um einn og hálfan milljarð en
séu hönnun og lóðarframkvæmdir taldar með
er kostnaðurinn tæpir tveir milljarðar. Sjúkra-
hótelið verður tæplega 4.000 fermetrar.
Nýja sjúkrahótelið mun standa vestan
megin við elstu byggingu Landspítala, ná-
lægt fæðingardeild, barnaspítala og krabba-
meinsdeild. Að sögn Guðlaugar Rakelar Guð-
jónsdóttur, framkvæmdastjóra bráðasviðs
Landspítala, mun skipta miklu fyrir öryggi
sjúklinga að sjúkrahótelið sé staðsett í næsta
nágrenni við spítalann. „Flestir gestir hótels-
ins þiggja þjónustu Landspítala. Náin tengsl
sjúkrahússins og sjúkrahótelsins eru því for-
senda þess að hótelið styðji við flæði og ferla
sjúkrahússins og stuðli þannig að öryggi og
hagkvæmni í rekstri. Á nýju sjúkrahóteli
Landspítala verður hugað sérstaklega að því
að bæta aðstöðu fyrir barnafjölskyldur.“
Þeir sem nýta sér þjónustu sjúkrahótels
falla einkum í tvo hópa, að sögn Guðlaugar.
Í fyrsta lagi er um að ræða einstaklinga sem
hafa dvalið á sjúkrahúsi en geta ekki snúið til
síns heima fyrr en þeir hafa náð frekari bata
og endurhæfingu. „Í öðru lagi einstaklingar
sem heilsu sinnar eða aðstandenda vegna
geta ekki verið heima eða eru fjarri heima-
byggð vegna rannsókna og meðferðar.“ Auk
almennrar hótelþjónustu er gestum veittur
aðgangur að ráðgjöf, eftirliti og þjónustu
hjúkrunarfræðinga vegna heilsufarsvanda.
„Þannig er sjúkrahótelið mikilvægt fyrir þá
sem þurfa tímabundið frekari hjúkrunarþjón-
ustu,“ segir hún.
Áður var sjúkrahótel Landspítala við Rauð-
arárstíg en í kjölfar útboðs á vegum Land-
spítala og Sjúkratrygginga Íslands var gerður
samningur um hótelrekstur við Sinnum ehf.
og tók hann gildi í mars 2011 og fluttist rekst-
ur sjúkrahótelsins þá í Ármúla 9, á Park Inn
hótel. Samningurinn tekur ekki til hjúkrunar-
þjónustu sem er á ábyrgð Landspítala.
Nú í júní verður opnað fyrir tilboð þeirra
fimm aðila sem metnir voru hæfir til að bjóða
í fullnaðarhönnun sjúkrahótelsins. Útborðs-
gögnin voru afhent í maí síðastliðnum. Að
sögn Ingólfs Þórissonar, framkvæmdastjóra
rekstrarsviðs Landspítala, verður væntanlega
gerður samningur um hönnunina í fyrri hluta
júlímánaðar. Hönnuninni verður svo skilað
um miðjan mars á næsta ári og í framhald-
inu verður byggingarframkvæmdin boðin
út. Aðspurður um fjármögnun byggingar-
innar segir Ingólfur að nú sé til fjármagn til
hönnunarinnar. „Við gerum okkur vonir um
að með fjárlögum í haust verði ákveðið að fara
í byggingarframkvæmdina af fullum krafti.“
Bætt aðstaða fyrir
barnafjölskyldur á
nýju sjúkrahóteli
Stefnt er að því að hönnun sjúkrahótels við Landspítala ljúki í mars á næsta
ári. Sjúkrahótelið verður staðsett vestan við elstu byggingu spítalans. Sérstök
áhersla verður lögð á að bæta aðbúnað barnafjölskyldna.
Sjúkrahótel
Stærðir:
1. Áfangi – 77 herbergi (jafnvel færri)
44 einstaklingherbergi
23 fjölskylduherbergi
10 tveggja manna herbergi
3.990 m²
Sjúkrahótel
Forsendur
2
Meðferðarkjarni
Gamli spítali
Rannsókna-
stofur
HÍ
Gestir:
Nýútskrifaðir sjúklingar
Sjúklingar í læknismeðferð –
göngudeildar
Aðstandendur sjúklinga
Almennir gestir
Sjúkrahótelið
verður staðsett
nálægt barnaspít-
ala, fæðingardeild
og krabbameins-
deild. Að sögn
Guðlaugar Rakelar
Guðjónsdóttur,
framkvæmda-
stjóra bráðasviðs
Landspítala,
skiptir miklu fyrir
öryggi sjúklinga
að sjúkrahótelið sé
í næsta nágrenni
spítalans. Nú er
sjúkrahótel Land-
spítala við Ármúla.