Fréttatíminn


Fréttatíminn - 13.06.2014, Blaðsíða 16

Fréttatíminn - 13.06.2014, Blaðsíða 16
Þ Þess minnast menn á þriðjudaginn, 17. júní, að sjötíu ár eru liðin frá stofnun lýðveldis hér á landi. Þeir sjö ára- tugir hafa verið næsta ævintýralegir í sögu þjóðarinn- ar, frá þjóð sem búið hafði við aldalanga einangrun til þjóðar sem kalla má að sé í alfaraleið, þökk sé byltingu í samgöngum milli landa. Eins og vænta má hafa skipst á skin og skúrir á þess- um tíma. Farið var síga á seinni heimstyrjöldina þegar Ísland sleit formlega konungssambandi við Danmörku og stofnaði lýðveldi 17. júní 1944, í samræmi við sam- bandslögin frá 1918. Ísland varð því sjálfstætt ríki eftir baráttu sem staðið hafði lungann úr 19. öldinni. Stóru skrefin í þeirri baráttu voru heima- stjórnin árið 1904, þegar þingræðið var fest í sessi og ráðherra Íslands fékk aðsetur í Reykjavík. Þar með fluttist framkvæmdavaldið heim – og síðan árið 1918 er Íslendingar hlutu fullveldi nema hvað þeir viðurkenndu danska konunginn sem þjóðhöfðingja og utanríkisstefna Íslands var áfram í höndum Dana. Gríðarlegur efnahagslegur uppgangur hefur verið á Íslandi frá lýðveldisstofnuninni fyrir sjötíu árum. Sjávarútvegurinn er enn undirstöðuatvinnuvegur, tæknivædd grein búin öflugum tækjum sem býr við fiskveiðistjórnunarkerfi – að sönnu umdeilt – en hefur engu að síður gegnt því meginhlutverki að vernda fiskistofna svo þeir megi dafna og standa undir áfram- haldandi veiðum og velferð okkar um ófyrirséða fram- tíð. Fjölbreytni atvinnulífsins er hins vegar allt önnur og meiri en var, byggist á iðnaði, stórum jafnt sem smáum, landbúnaði, margs háttar þjónustu og síðast en ekki síst ferðaþjónustu. Sprenging hefur orðið í þeirri grein síðustu ár. En uppgangurinn hefur ekki verið samfelldur. Áföll hafa dunið yfir, hvarf síldarinnar í lok sjöunda áratugar liðinnar aldar og umtalsvert minni þorskafli eftir gegndarlausa ofveiði Íslendinga og annarra þjóða – sem tókst með átökum landhelgisstríða að koma úr lögsögunni. Þyngsta áfallið var þó efnahags- og bankahrunið haustið 2008 sem skók innviði samfélags- ins og gerði það að verkum að hið unga lýðveldi varð tímabundið að afsala sér hluta fullveldis síns með því að leita á náðir Alþjóða gjaldeyrissjóðsins. Úr þeim málum hefur unnist bærilega og fulltrúar gjaldeyris- sjóðsins eru horfnir á braut, þótt enn sé margt óunnið. Verðugt markmið ætti að vera að Íslendingar væru lausir við höft og aðra óáran hrunsins þegar aldaraf- mælis íslensks fullveldis verður minnst eftir rúm fjögur ár. Þegar kom að formlegum slitum konungssambands- ins við Danmörku fyrir sjötíu árum var lítill efi í huga landsmanna. Það sýndu svör í þjóðaratkvæðagreiðslu. 99,5% voru fylgjandi sambandsslitnunum við Dani og 98,3% stofnun lýðveldis. Kjörsóknin var 98%. Því var lýst yfir við hátíðlega athöfn á Þingvöllum 17. júní 1944 að sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar væri formlega lokið. Svo er þó ekki. Sjálfstæði smáþjóðar eins og okkar er eilíft viðfangsefni – aðstæður eru stöðugt að breyt- ast. Kostir og gallar fylgja auknu samstarfi ríkja og er ríkjasamband 28 Evrópuríkja gleggsta dæmið þar um. Um aðild Íslendinga að því sambandi snýst umræða samtímans en í rúma tvo áratugi höfum við verið aðilar að Evrópska efnahagssvæðinu. Öllu slíku samstarfi fylgja kostir og gallar sem leggja þarf mat á, ákveðið fullveldisafsal en um leið, eins og í tilfelli EES-samn- ingsins, aðgangur að innri markaði Evrópusambands- ins. Fjórfrelsið svonefnda sem gildir á sameiginlegu markaðssvæði 31 Evrópuríkis felur í sér frjáls vöru- og þjónustuviðskipti, frjálsa fjármagnsflutninga og sam- eiginlegan vinnumarkað. Tímabundið gilda höft hér á landi á fjármagnsflutningum. Um aðild eða ekki að Evrópusambandinu snýst sjálfstæðisumræða dagsins í dag. Þar er hart tekist á, eins og stundum áður í sjálfstæðisbaráttu Íslendinga og nægir þar að vísa til átaka fyrir rúmri öld um upp- kastið svokallaða. Á endanum mun þjóðin fá valkostina fram, hvort heldur það tekur lengri eða skemmri tíma – og kjósa um þá. Öðruvísi næst ekki lending, vonandi að undangenginni upplýstri og öfgalausri umræðu. Sjötíu ár frá lýðveldisstofnun Sjálfstæðisbaráttan Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@ frettatiminn.is Ritstjórar: Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is og Sigríður Dögg Auðuns dóttir sigridur@frettatiminn.is. Fréttastjóri: Höskuldur Daði Magnússon hdm@frettatiminn.is. Framkvæmda- og auglýsingastjóri: Valdimar Birgisson valdimar@frettatiminn.is. Útgáfustjóri: Teitur Jónasson teitur@frettatiminn.is . Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 82.000 eintökum í Landsprenti. Við léttum þér undirbúninginn fyrir veisluna og bjóðum mikið úrval af borðbúnaði og veisluvörum, s.s. dúkum, servíettum, diskum, glösum og kertum. Hafðu samband við sérfræðinga okkar í Rekstrarlandi í síma 515 1100 eða hjá útibúum Olís um land allt. Láttu Rekstrarland létta þér lífið Við höfum allt fyrir veisluna þína www.rekstrarland.is Skeifunni 11 | 108 Reykjavík | Sími 515 1100Rekstrarland er byggt á fyrrum rekstrarvörudeild Olís og er dótturfyrirtæki Olíuverzlunar Íslands hf. PI PA R\ TB W A • S ÍA • 1 41 73 6 7,3 milljónir króna er meðal- kostnaður við hvern fanga á Íslandi á ári. 40 prósent fjölgun hefur orðið á rjúpum hér á landi frá síðasta ári samkvæmt talningu Náttúrufræði- stofnunar. 7 stiga forystu hefur FH á Íslandsmeistara KR í Pepsi- deild karla í knattspyrnu eftir fyrstu sjö leikina. 20,7 milljónir króna skuldaði Stjörnu- spekistöðin sem var í eigu Gunnlaugs Guðmundssonar en fyrirtækið var úrskurðað gjaldþrota í júlí í fyrra. 14.4 milljónir lítra af bjór drukku Íslendingar á síðasta ári. Vikan í tölum 16 viðhorf Helgin 13.-15. júní 2014
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.