Fréttatíminn


Fréttatíminn - 13.06.2014, Blaðsíða 8

Fréttatíminn - 13.06.2014, Blaðsíða 8
BETRI BANKAÞJÓNUSTA Á NÝJUM STAÐ Starfsemi útibúa Arion banka í Austurstræti og við Hlemm hefur verið flutt í Borgartún 18. Nýja útibúið er búið notendavænni tækni og nútímalegri hönnun til að uppfylla þarfir þínar. Við aðstoðum þig við að nota nýja tegund hraðbanka þar sem þú getur lagt inn peninga, sinnt millifærslum og greitt reikninga, auk hefðbundinna aðgerða. Fleiri fjármálaráðgjafar sem veita þér faglega og trausta ráðgjöf og auðvelda þér að taka réttu ákvarðanirnar. Þetta köllum við betri bankaþjónustu VELKOMIN Í BORGARTÚN 18 RAGNHEIÐUR HALLUR KRISTJÁN ÞÓR ELÍSABET H rafnapar hefur gert sér laup á syllu utan á húsi Safns Einars Jónssonar við Eiríksgötu í Þingholtunum í Reykjavík og vakið hefur verð­ skuldaða athygli íbúa í nágrenn­ inu. Í laupnum eru fimm vel haldnir ungar, að sögn Kristínar Alísu Ei­ ríksdóttur, meistaranema í líffræði, sem merkti ungana fyrir um tveim­ ur vikum. Hún rannsakar nú varp­ vistfræði hrafna og atferli. „Talið er að þetta sé hrafnapar sem haldið hefur til í borginni í þrjú til fjög­ ur ár og verpt hafi í Austurbæjar­ skóla í fyrra. Safnstjórinn í Einars­ safni segir að það hafi áður verpt í Einarssafni en ekki fyrr tekist að koma ungum á legg,“ segir Kristín Alísa. Laupurinn er veglegur og vel sýnilegur frá inngangi safnsins, Freyjugötumegin. Hann er gerður úr trjágrein­ um og rak­ ettuprik­ um en að sögn Krist­ ínar A lísu má einnig sjá rauðan og grænan rafmagnsvír í laupn­ um enda hrafninn þekktur fyrir glysgirni. „Þetta hlýtur að vera konungborinn hrafn, fyrst hann velur sér svona veg­ legan og flottan stað til að verpa á,“ segir Kristín Alma. Innsta byrði laupsins er oftast gert úr mjúku efni á borð við ull eða hrosshár en þar sem ekki er um auðugan garð að gresja innan borgarlandsins af slíkum auðlindum klæddi hrafns­ parið laup sinn með mosa og öðr­ um mjúkum gróðri, að sögn Krist­ ínar Alísu. Hrafnaparið hefur haf­ ið hreiðurgerðina í byrjun apríl og verpt um miðjan mán­ uðinn. Safn­ stjóri Einarssafns segist hafa heyrt fyrsta tístið í ungunum þann 9. maí og samkvæmt því eru þeir fimm vikna gamlir. Að sögn Kristínar Al­ ísu fljúga hrafnsungar úr hreiðrinu um það bil sex vikna gamlir. „Þeir eru þó ótrúlega heimakærir og eru oft lengi í hreiðrinu þótt þeir séu vel orðnir fleygir,“ segir hún. „Þeg­ ar við merktum þá, fyrir tveimur vikum, voru þeir allir fimm í góð­ um holdum og virtust eiga framtíð­ ina fyrir sér. Þeir virtust allir jafn­ frekir, sem er jákvætt, því í þessum heimi gildir lögmálið að sá hæfasti lifir af,“ segir hún. Aukning hefur verið á því að hrafnar verpi í borglandinu. Þeir éta í raun hvað sem er, allt frá skor­ dýrum, eggjum og fuglsungum, í leifar af mat borgarbúa. „Hrafninn er mikill tækifærissinni og étur eiginlega það sem hann kemst í. Sumt fólk held­ ur mikið upp á hrafninn og gefur honum jafnvel reglulega að éta. Við sáum þegar við merktum ungana um daginn að fólkið hér í nágrenn­ inu stendur vörð um ungana. Kona nokkur kom hlaupandi að okkur þegar við fórum í hreiðrið því hún hélt að við værum að fara að gera ungunum mein,“ segir hún. Kristín Alísa telur ólíklegt að hrafnaparið verpi aftur á sama stað að ári. „Hrafnapör makast fyrir lífs­ tíð. Þeir eigna sér svokölluð óðul, sem eru 1­2 ferkílómetrar að stærð, og verpa á nýjum stað innan þess ár hvert. Hluti af tilhugalífinu á vorin er að búa til hreiður. Hver veit nema að þeir byggi sér hreið­ ur í Hallgrímskirkju að ári,“ segir Kristín Alísa. Sigríður Dögg Auðunsdóttir sigridur@frettatíminn.is  Dýralíf rakettuprik, rafmagnssnúra og sprek mynDa HrafnsHreiður Hrafnsungar í laup við Einarssafn við það að fljúga úr heiðrinu Fimm hrafnsungar eru í laup á syllu utan á húsi Safns Einars Jónssonar í Þingholtunum. Þeir skriðu úr eggi í byrjun maí og eru við það að fljúga úr hreiðrinu. Allir eru vel á sig komnir enda hugsa nágrannar vel um ungana sína. 8 fréttir Helgin 13.-15. júní 2014
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.