Fréttatíminn - 13.06.2014, Blaðsíða 72
— 4 — 13. júní 2014
Hægt er að þjálfa hunda til að þefa af þvagi og komast
að því hvort fólk sé með blöðruhálskirtilskrabba-
mein, samkvæmt niðurstöðum nýlegrar rannsóknar
sem gerð var á Humanitas Research spítalanum í
Mílanó á Ítalíu.
Við rannsóknina voru tveir hundar sérstaklega
þjálfaðir til að þefa uppi blöðruhálskirtilskrabbamein
og höfðu þeir rétt fyrir sér í 98 prósent tilfella. Notuð
voru þvagsýni úr 677 manns. Þar af voru 320 með
blöðruhálskirtilskrabbamein á mismunandi stigum
en 357 ekki. Meinið gefur frá sér efni og nema
hundar lyktina af því.
Að sögn vísindamanna sem að rannsókninni stóðu
sýna niðurstöðurnar að þefskyn hunda geti komið
að góðum notum við greiningu á blöðruhálskirtils-
krabbameini. Aðferðin kosti lítið og feli ekki í sér
nein inngrip fyrir sjúklinginn.
Dagn ý HulDa Er lEnDsDót tir
S veinn Guðmundsson, doktors-nemi í mannfræði við Háskóla Íslands, leggur nú lokahönd á rannsókn sína á læknum og
hjúkrunarfræðingum sem einnig beita
óhefðbundnum lækningaaðferðum við
störf sín. Niðurstöðurnar gefa til kynna
að hluti hjúkrunarfræðinga og lækna á
Íslandi hafi opinn huga gagnvart sam-
bandi hugar og líkama.
Í BA-verkefni sínu í mannfræði skrif-
aði Sveinn um nýaldarfræði og í MA-
verkefninu tók hann viðtöl við fólk sem
vinnur við óhefðbundnar lækningar.
„Það vakti athygli mína að meðal fólks
sem starfaði við óhefðbundnar lækning-
ar voru nokkrir hjúkrunarfræðingar og
því ákvað ég að doktorsverkefnið yrði
rannsókn á læknum og hjúkrunarfræð-
ingum sem nota einnig óhefðbundnar
aðferðir,“ segir hann.
Niðurstöður rannsóknarinnar sýna
að hjúkrunarfræðingar eru óhrædd-
ari við gagnrýni á aðferðir sínar en
læknarnir. Árið 2010 var til að mynda
stofnuð fagdeild um viðbótarmeðferð í
hjúkrun sem stuðlar að notkun annars
konar meðferða sem rannsóknir hafa
sýnt fram á að geta gagnast til viðbótar
við hefðbundnar, til dæmis fyrir krabba-
meinssjúklinga. „Margir læknanna ótt-
ast að fá á sig þann stimpil að
vera óvísindalegir og halda sig því
alltaf innan ákveðins ramma. Þeir
studdust því frekar við niðurstöður
vísindalegra rannsókna í viðtölunum.“
Sveinn segir að fólkið í geirunum tveim-
ur, óhefðbundnum og hefðbundnum
lækningum, sé oft að ræða um sömu
hlutina þó það noti sitt hvort tungumál-
ið. Það sé hluti af ágreiningnum þó til
staðar sé sameiginlegur grunnur. „Mig
langar að skilja báða hópana. Það er
ekki þannig að annar hafi rétt fyrir sér
en hinn rangt. Þetta er miklu flóknara
en svo.“
Læknarnir sem Sveinn ræddi við
voru óviljugir að ávísa sjúklingum lyfj-
um þegar þeir vissu fyrir víst að aðrar
aðferðir væru betri til langframa, eins
og til dæmis lífsstílsbreytingar. „Til
að koma óhefðbundnu aðferðunum að
þurfa læknarnir að ná góðum tengslum
við skjólstæðinga sína og það getur
tekið tíma. Þeir þurfa að fá fólk til að
skynja að þeir séu með þeim í þessu.
Oft er mannekla á heilbrigðisstofnunum
og frammi bíða margir svo ekki er alltaf
tími til að mynda þessi tengsl.“
Stefna á vinnustaðnum, yfirmenn og
viðhorf ræður því hvernig læknum og
hjúkrunarfræðingum gengur að inn-
leiða óhefðbundnar lækningaaðferðir.
Margir hjúkrunarfræðinganna vinna
við óhefðbundnar lækningar í hluta-
starfi og eru með sína eigin stofu.
Óhefðbundnu aðferðirnar sem lækn-
arnir og hjúkrunarfræðingarnir beita
eru af ýmsum toga, til dæmis nálar-
stungur, dáleiðsla, slökunarnudd og
samtal um lífssöguna. „Sumir viðmæl-
endanna ræddu einnig um að streita
hafi áhrif á vöðvabólgu og öllum var
þeim samband hugar og líkama hug-
leikið. Nokkrir þeirra ráðleggja fólki
að kynna sér jóga og hugleiðslu. Einn
læknirinn ráðleggur stundum að lesa
ákveðnar sjálfshjálparbækur til að ná
stjórn á lífinu og breyta hegðunar-
mynstri.“
Sveinn segir breyttar áherslur þeirra
lækna og hjúkrunarfræðinga sem hann
ræddi við í takti við viðhorfsbreytingar
almennt hér á Íslandi. „Með aukinni
áherslu á heilbrigðan lífsstíl, jóga og
hugleiðslu eru óhefðbundnar lækningar
ekki eins langt úti á jaðrinum og áður.
Það talar enginn lengur um fólk sem
stundar jóga sem nýaldarhippa. Það er
almennt talið hið eðlilegasta mál.“
Yfirleitt er orðið óhefðbundnar lækn-
ingar notað yfir hugtakið sem Sveinn
rannsakar en hann segir marga ósátta
við það heiti því það sé mjög ónákvæmt
og nái yfir margar mjög ólíkar með-
ferðir. „Aðferðirnar eru óhefðbundnar
miðað við það sem viðurkennt er í dag.
Þó komu jurtalækningar fram á undan
læknavísindunum. Það er því skilgrein-
ingaratriði hvað er óhefðbundið og hvað
ekki. Í Gíneu-Bissá er þetta til dæmis öf-
ugt. Grasa- og andalækningar eru álitn-
ar hefðbundnar en hitt óhefðbundið.“
Hundar finna blöðruhálskirtilskrabbamein
Sveinn Guðmundsson, doktorsnemi í mannfræði, hefur tekið viðtöl við sextán lækna og sextán hjúkrunarfræðinga sem einnig
beita óhefðbundnum lækningaaðferðum í störfum sínum. Ljósmynd/Hari
Rannsakar óhefðbundnar
lækningaaðferðir
Doktorsnemi í mannfræði rannsakar hjúkrunarfræðinga og lækna sem einnig beita óhefðbundnum
lækningaaðferðum. Læknarnir óttast frekar en hjúkrunarfræðingarnir að vera álitnir óvísindalegir og
halda sig því innan ákveðins ramma.
Einn læknir-
inn ráð-
leggur lestur
á ákveðnum
sjálfshjálp-
arbókum til
að ná stjórn
á lífinu og
breyta hegð-
unarmynstri.
Meiri líkur eru á að fólki
takist að hætta að reykja
noti það rafrettur en
aðrar aðferðir, sam-
kvæmt niðurstöðum
rannsóknar sem gerð
var í University College í
London. Niðurstöðurnar
voru birtar á dögunum
í tímaritinu Addiction
og sýndu að 20 prósent
þátttakenda tókst að
hætta að reykja með því
að nota rafrettur í stað
hefðbundinna sígarettna.
10,1 prósent þeirra sem
notuðu nikótín-vörur
eins og plástra, tókst að
hætta en 15,4 prósent
tókst að hætta með
viljastyrkinn einan að
vopni. Í rannsókninni
var fylgst með tæplega
6000 reykingamönnum
á árunum 2009 til 2014
og reyndu allir þátt-
takendur að hætta án
faglegrar hjálpar eða
lyfseðilsskyldra lyfja.
Að sögn vísindamanna
benda niðurstöðurnar
til þess að rafrettur séu
hentug lausn til hjálpa
fólki að hætta að reykja.
Þær innihalda nikótín
sem fólk andar að sér í
gegnum vatnsgufu en
ekki reyk.
Góður árangur með
rafrettum
100% náttúruleg vara unnin úr
macarót. Rannsóknir sýna að
Femmenessence getur bætt líðan
kvenna á breytingaskeiði.
Femmenessence styður við hormóna-
framleiðslu líkamans.
Finnur þú fyrir
breytingaskeiðseinkennum?
Fæðubótarefni úr macarót � 100% náttúruleg vara með lífræna vottun
Við erum á facebook
Inniheldur hvorki soja (ísó�avóna), mulin hörfræ né hormóna
www.facebook.com/Femmenessence.is
www.facebook.Revolution-Macalibrium
www.vistor.is
AHC samtökin óska eftir
styrkjum til að vinna að grunn-
rannsóknum á Alternating Hemi-
plegia of Childhood auk þess að
stuðla að kynningu á þessum
sjaldgæfa sjúkdómi.
Reikningsnúmer samtakanna er
0319-13-300200 kt. 5905091590
Upplýsingar um AHC er að
finna á heimasíðu AHC sam-
takanna www.ahc.is
Hamarshöfði 4 - sími 587-1960 - www.mosaik.is
Vönduð vinna
Stofnað 1952
Mikið úrval af
fylgihlutum
Steinsmiðjan Mosaik
Legsteinar