Fréttatíminn - 13.06.2014, Blaðsíða 70
— 2 — 13. júní 2014
Minnka sýklalyfja-
notkun á Norður-
löndum
Gangi tillögur sænska stjórn-
málamannsins Bo Könberg
eftir mun sýklalyfjanotkun á
Norðurlöndunum vera sú minnsta
í Evrópu að fimm árum liðnum.
Í vikunni afhenti hann Kristjáni
Þór Júlíussyni heilbrigðisráðherra
skýrslu sína með tillögum til
norrænna félags- og heilbrigðisráð-
herra um framtíðarsýn og brýnustu
verkefni norræns samstarfs á sviði
heilbrigðismála. Kristján Þór tók við
skýrslunni fyrir hönd Íslands sem
gegnir nú formennsku í Norrænu
ráðherranefndinni.
Tillögurnar fjalla um uppáskriftir
sýklalyfja, mjög sérhæfðar með-
ferðir, sjaldgæfa sjúkdóma,
rannsóknir byggðar á gögnum úr
sjúkraskrám, lýðheilsu, misrétti
í heilbrigðismálum, hreyfanleika
sjúklinga, rafræna heilbrigðisþjón-
ustu og tæknimál, geðlækningar,
viðbúnað í heilbrigðismálum, lyf,
starfsmannaskipti og sérfræðinga í
löndum ESB.
Við afhendinguna sagði Bo Könberg
að brýnasta verkefnið væri að
bregðast á kröftugan hátt við sýkla-
lyfjanotkun og koma þannig í veg
fyrir að þau tapi virkni sinni. „Því
miður er sú þróun þegar hafin. Þó
að notkun sýklalyfja sé ekki mikil
á Norðurlöndum er ástæða til að
við tökum ákvörðun um að draga
úr uppáskriftum fyrir sýklalyfjum
þannig að þær verði fæstar miðað
við önnur Evrópulönd að fimm
árum liðnum.“
Könberg lagði til að Norðurlöndin
myndu beita sér í þessum efnum á
alþjóðavísu og að auðugustu löndin
verji 75 milljörðum sænskra króna
á næstu 5 árum til þróunar á nýjum
sýklalyfjum.
Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300.
Ritstjóri: Höskuldur Daði Magnússon hdm@
frettatiminn.is. Ritstjórnarfulltrúi: Dagný Hulda
Erlendsdóttir dagnyhulda@frettatiminn.is. Fram-
kvæmda- og auglýsingastjóri: Valdimar Birgis-
son valdimar@frettatiminn.is. Útgáfustjóri: Teitur
Jónasson teitur@frettatiminn.is . Líftíminn er gef-
inn út af Morgundegi ehf., prentaður í 85.000
eintökum í Landsprenti og dreift mánaðarlega
með Fréttatímanum og á heilbrigðisstofnanir.
Farsímar
geta minnkað
frjósemi
Karlar sem geyma farsímann í
buxnavasanum gætu með minnkað
líkur á að eignast barn, samkvæmt
niðurstöðum nýrrar rannsóknar
hjá Exeter háskóla og birtar voru
í tímaritinu Environment Inter-
national. Eldri rannsóknir einnig
hafa sýnt fram á að tíðni rafsegul-
geislunar frá slíkum tækjum geti
haft skaðleg áhrif á frjósemi karla.
Fyrir rannsókninni fór dr. Fiona
Mathews og að hennar sögn benda
niðurstöðurnar sterklega til þess
að geislar frá farsíma hafi neikvæð
áhrif á gæði sæðis. „Niðurstöð-
urnar eru sérstaklega mikilvægar
fyrir karla sem eru þegar í áhættu
að glíma við ófrjósemi,“ segir hún.
Flestir karlar í heiminum eiga
farsíma og er talið að um 14 pró-
sent para í hinum vestræna heimi
glími við ófrjósemi.
Dagn ý HulDa Er lEnDsDót tir
S amkvæmt niðurstöðum nýrra bandarískra rannsókna þarf að endur-skoða skammtastærðir lyfja því áhrif þeirra eru ekki þau sömu á kon-ur og karla. Hingað til hafa lyfjarannsóknir að mestu verið gerðar á körlum eða karlkyns tilraunadýrum því það var talið hentugra því
prófanir truflast vegna hormónaflæðis kvenna og kvenkyns tilraunadýra.
Fjallað var um málið í sjónvarpsþættinum 60 Minutes í febrúar síðastliðn-
um. Í þættinum kom fram að í lyfjarannsóknum sé munurinn á milli kynjanna
stórlega vanmetinn og að lyf geti haft gjörólík áhrif á konur og karla. Í fram-
haldi af umfjöllun 60 Minutes tilkynnti Bandaríska matvæla- og lyfjaeftirlitið
að búið væri að minnka ráðlagða skammta af Ambien, algengasta svefnlyfinu
þar í landi, um helming fyrir konur. Lyfið er þekktast undir heitinu Zolpidem.
Rannsóknir höfðu sýnt að karlar og konur vinna á ólíkan hátt úr lyfinu. Að
morgni dags er því meira eftir af lyfinu í líkama kvenna. Afleiðingarnar geta
verið hættulegar og meðal annars þær að hættulegt getur verið fyrir konur
að aka bifreið.
Búist er við því að í ágúst á þessu ári muni Bandaríska matvæla- og lyfja-
eftirlitið senda frá sér aðgerðaáætlun um hvernig betur megi standa að lyfja-
prófunum með tilliti til þessa munar á kynjunum. Í tilkynningu frá stofnun-
inni kemur fram að fyrirséð sé að aðgerðaáætlunin muni hafa veruleg áhrif.
Í þættinum kom fram að afleiðingin gæti orðið sú að framkvæma þurfi á ný
rannsóknir á mörgum lyfjum sem lengi hafa verið á markaðnum.
Endurskoða skammta-
stærðir lyfja eftir kynjum
Lyf hafa ekki sömu
áhrif á karla og konur
og því er þörf að
rannsaka á ný lyf sem
lengi hafa verið á
markaðnum. Hingað
til hafa rannsóknir
á lyfjum að mestu
leyti verið gerðar á
körlum eða karlkyns
tilraunadýrum því
hormónar kvenna
trufla niðurstöður.
Fjallað var um málið
í sjónvarpsþættinum
60 Minutes og í
framhaldinu tilkynnti
Bandaríska matvæla-
og lyfjaeftirlitið að
búið væri að minnka
ráðlagða skammta til
kvenna af algengasta
svefnlyfinu þar í landi.
Lesley Stahl fjallaði um mismunandi áhrif lyfja á kynin í sjónvarpsþættinum
60 Minutes fyrr á árinu. í þættinum kom fram að mismunandi áhrif lyfja á
kynin hafi verið stórlega vanmetin. Ljósmynd/NordicPhoto/GettyImages
Bandaríska matvæla- og lyfja-
eftirlitið hefur nú minnkað ráð-
lagðan skammt af svefnlyfinu
Ambien um helming fyrir konur.
Ljósmynd/NordicPhoto/GettyImages