Fréttatíminn


Fréttatíminn - 13.06.2014, Page 78

Fréttatíminn - 13.06.2014, Page 78
— 10 — 13. júní 2014 Rau ðagerði 25 · 108 Reykjavík · Sími 440 1800 · www.kaelitaekni.is Okkar þekking nýtist þér • Mylur alla ávexti, grænmeti klaka og nánast hvað sem er • Hnoðar deig • Býr til heita súpu og ís • Uppskriftarbók og DVD diskur fylgja með Lífstíðareign! Tilboðsverð kr. 106.900 Með fylgir Vitamix sleif drykkjarmál og svunta Fullt verð kr. 125.765 Meira en bara blandari! G angi fyrirætlanir eftir mun hönnun sjúkrahótels við Landspítala ljúka í mars á næsta ári. Gert er ráð fyrir að framkvæmdir við bygg- inguna kosti um einn og hálfan milljarð en séu hönnun og lóðarframkvæmdir taldar með er kostnaðurinn tæpir tveir milljarðar. Sjúkra- hótelið verður tæplega 4.000 fermetrar. Nýja sjúkrahótelið mun standa vestan megin við elstu byggingu Landspítala, ná- lægt fæðingardeild, barnaspítala og krabba- meinsdeild. Að sögn Guðlaugar Rakelar Guð- jónsdóttur, framkvæmdastjóra bráðasviðs Landspítala, mun skipta miklu fyrir öryggi sjúklinga að sjúkrahótelið sé staðsett í næsta nágrenni við spítalann. „Flestir gestir hótels- ins þiggja þjónustu Landspítala. Náin tengsl sjúkrahússins og sjúkrahótelsins eru því for- senda þess að hótelið styðji við flæði og ferla sjúkrahússins og stuðli þannig að öryggi og hagkvæmni í rekstri. Á nýju sjúkrahóteli Landspítala verður hugað sérstaklega að því að bæta aðstöðu fyrir barnafjölskyldur.“ Þeir sem nýta sér þjónustu sjúkrahótels falla einkum í tvo hópa, að sögn Guðlaugar. Í fyrsta lagi er um að ræða einstaklinga sem hafa dvalið á sjúkrahúsi en geta ekki snúið til síns heima fyrr en þeir hafa náð frekari bata og endurhæfingu. „Í öðru lagi einstaklingar sem heilsu sinnar eða aðstandenda vegna geta ekki verið heima eða eru fjarri heima- byggð vegna rannsókna og meðferðar.“ Auk almennrar hótelþjónustu er gestum veittur aðgangur að ráðgjöf, eftirliti og þjónustu hjúkrunarfræðinga vegna heilsufarsvanda. „Þannig er sjúkrahótelið mikilvægt fyrir þá sem þurfa tímabundið frekari hjúkrunarþjón- ustu,“ segir hún. Áður var sjúkrahótel Landspítala við Rauð- arárstíg en í kjölfar útboðs á vegum Land- spítala og Sjúkratrygginga Íslands var gerður samningur um hótelrekstur við Sinnum ehf. og tók hann gildi í mars 2011 og fluttist rekst- ur sjúkrahótelsins þá í Ármúla 9, á Park Inn hótel. Samningurinn tekur ekki til hjúkrunar- þjónustu sem er á ábyrgð Landspítala. Nú í júní verður opnað fyrir tilboð þeirra fimm aðila sem metnir voru hæfir til að bjóða í fullnaðarhönnun sjúkrahótelsins. Útborðs- gögnin voru afhent í maí síðastliðnum. Að sögn Ingólfs Þórissonar, framkvæmdastjóra rekstrarsviðs Landspítala, verður væntanlega gerður samningur um hönnunina í fyrri hluta júlímánaðar. Hönnuninni verður svo skilað um miðjan mars á næsta ári og í framhald- inu verður byggingarframkvæmdin boðin út. Aðspurður um fjármögnun byggingar- innar segir Ingólfur að nú sé til fjármagn til hönnunarinnar. „Við gerum okkur vonir um að með fjárlögum í haust verði ákveðið að fara í byggingarframkvæmdina af fullum krafti.“ Bætt aðstaða fyrir barnafjölskyldur á nýju sjúkrahóteli Stefnt er að því að hönnun sjúkrahótels við Landspítala ljúki í mars á næsta ári. Sjúkrahótelið verður staðsett vestan við elstu byggingu spítalans. Sérstök áhersla verður lögð á að bæta aðbúnað barnafjölskyldna. Sjúkrahótel Stærðir: 1. Áfangi – 77 herbergi (jafnvel færri) 44 einstaklingherbergi 23 fjölskylduherbergi 10 tveggja manna herbergi 3.990 m² Sjúkrahótel Forsendur 2 Meðferðarkjarni Gamli spítali Rannsókna- stofur HÍ Gestir:  Nýútskrifaðir sjúklingar  Sjúklingar í læknismeðferð – göngudeildar  Aðstandendur sjúklinga  Almennir gestir Sjúkrahótelið verður staðsett nálægt barnaspít- ala, fæðingardeild og krabbameins- deild. Að sögn Guðlaugar Rakelar Guðjónsdóttur, framkvæmda- stjóra bráðasviðs Landspítala, skiptir miklu fyrir öryggi sjúklinga að sjúkrahótelið sé í næsta nágrenni spítalans. Nú er sjúkrahótel Land- spítala við Ármúla.

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.