Fréttatíminn


Fréttatíminn - 13.06.2014, Qupperneq 73

Fréttatíminn - 13.06.2014, Qupperneq 73
13. júní 2014 — 5 — Þetta er barnið þeirra og fæð- ingin er hluti af sorgar- ferlinu. Fáðu þetta heyrnartæki lánað í 7 daga - án skuldbindinga Bókaðu tíma í fría heyrnarmælingu og fáðu Alta til prufu í vikutíma Sími 568 6880 Prófaðu ALTA frá Oticon Glæsibæ | Álfheimum 74 | 104 Reykjavík | Þjónusta á landsbyggðinni | Sími 568 6880 | www.heyrnartækni.is | Góð heyrn er okkur öllum mikilvæg. ALTA eru ný hágæða heyrnartæki frá Oticon sem gera þér kleift að heyra skýrt og áreynslulaust í öllum aðstæðum. ALTA heyrnartækin eru alveg sjálfvirk og hægt er að fá þau í mörgum útfærslum. Dagn ý HulDa Er lEnDsDót tir Þ egar börn deyja burðarmálsdauða er hægt að fá svör við orsökinni í tveimur þriðju tilfella og segir Ragnheiður Ingibjörg Bjarnadóttir, fæðinga- og kvensjúkdómalæknir á Kvenna- og barnasviði Landspítalans, það miklu skipta fyrir foreldra. „Árið 1995 fékkst svar í helmingi tilfella en núna í tveimur þriðju hluta. Við leggjum mikla áherslu á að komast að ástæðunum, sér- staklega fyrir næstu meðgöngu,“ segir hún. Helstu rannsóknirnar eru sýklarækt- anir, blóðprufur, fylgjurannsókn og krufning en sýni eru send til íslensks meinafræðings í Flórída, Þóru Steffen- sen, sem er með sérhæfða menntun á sínu sviði og rannsakar andvana fædd börn og fóstur. „Við fáum oft mjög ná- kvæm svör við ástæðu dauðsfallsins frá henni,“ segir Ragnheiður. Þegar börn deyja í móðurkviði fyrir tuttugustu og aðra viku meðgöngu er talað um fósturlát en þegar börn fæðast andvana eftir þann tíma eða deyja á fyrstu viku er talað um burðarmáls- dauða. Hér á landi deyja um fimmtán til tuttugu börn á ári eða þrjú til fjögur af hverjum þúsund fæddum börn sem er með því lægsta sem gerist í heim- inum. Ýmsar ástæður geta verið fyrir því að barn deyr. Undir- liggjandi ástæður geta verið hjá barninu, móðurinni eða umhverfinu en oft eru það ýmsir samverkandi þættir. Með fósturgreiningum hefur börnum sem deyja vegna með- fæddra galla fækkað en Ragnheiður segir þá ákvörðun að rjúfa meðgöngu vegna fósturgalla líka vera mikinn missi og sorg. Móðir getur verið með undirliggjandi alvarlega sjúkdóma sem geta leitt til andvana fæðingar eða með leg- hálsbilun sem veldur því að fæðingin fer að stað löngu fyrir tímann og barnið deyr þá vegna mikils vanþroska. Ýmsir sjúkdómar sem geta komið upp hjá áður hraustri konu svo sem meðgöngueitrun geta leitt til andvana fæðingar og auk þess geta vandamál með fylgju eða naflastreng orðið til þess að barnið deyr án fyrirboða. Einstaka sinnum verða ófyrirséð áföll í fæðingunni sem valda því að barn deyr, eins og rof á legi, naflastrengsframfall eða axlar- klemma en Ragnheiður segir það sem betur fer afar fátítt. Þegar börn látast í móðurkviði er yfirleitt mælt með fæðingu um leggöng en algengt er að fyrstu viðbrögð for- eldra séu að þeir vilji að barnið sé tekið með keisaraskurði. Ragnheiður segir að í flestum tilfellum sé eðlileg fæðing betri kostur. „Því fylgir minni áhætta fyrir móðurina, hún verður fljótari að jafna sig líkamlega og kemst fyrr heim. Hún fær góðan stuðning í fæðingunni og eftir hana. Í næstu meðgöngu er líka betra að vera ekki með ör í leginu eftir keisaraskurð. Eftir á eru flestir foreldrar sáttir við eðlilega fæðingu. Þetta er barnið þeirra og fæðingin er hluti af sorgarferlinu.“ Lögð er áhersla á að fylgja foreldrum eftir og fylgjast með líkamlegri og andlegri heilsu og veita ráðgjöf fyrir næstu þungun. „Annað barn kemur aldrei í staðinn fyrir það sem lést en það er samt mikilvægt að finna að lífið heldur áfram.“ Andvana fæðing er líka áfall fyrir heil- brigðisstarfsfólk og segir Ragnheiður lækna og ljósmæður vinna þétt saman og styðja hvert annað. Þá er djákni og sálfræðingur á deildinni sem starfsfólki stendur til boða að ræða við. „Við sækjumst sérstaklega eftir því að fá að fylgja þessum foreldrum eftir á næstu meðgöngu. Það er mikilvægt fyrir okkur að fá líka að gleðjast með þessum fjölskyldum.“ Mikilvægt fyrir foreldra að fá svar Þegar börn deyja á meðgöngu eða í fæðingu er boðið upp á nákvæmar rann- sóknir svo foreldrar fá í flestum tilvikum svör við ástæðu andlátsins. Sýni eru send til íslensks meinafræðins í Flórída sem hefur sérhæfingu í rannsóknum á andvana fæddum börnum og fóstrum. Árið 1995 fékkst svar í helmingi tilfella en núna í tveimur þriðju hluta. Ragnheiður Ingi- björg Bjarnadóttir, fæðinga- og kven- sjúkdómalæknir á Kvenna- og barnasviði Land- spítalans. Ýmsar ástæður geta verið fyrir andvana fæðingu. Undirliggjandi ástæður geta verið hjá barninu, móðurinni eða í um- hverfinu en oft eru það ýmsir samverkandi þættir. Ljósmynd/NordicPhoto/GettyImages
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.