Fréttatíminn - 13.06.2014, Side 74
13. júní 2014
Hrotu-Baninn heldur efri öndunarvegi opnum og þannig eiga hroturnar að
minnka eða hverfa alveg. Þú ættir að finna mun strax eftir fyrstu nóttina.
Leiðbeiningar fylgja bæði á íslensku og ensku.
Þú getur skilað Hrotu-Bananum innan 45 daga frá afhendingu ef þér finnst
hann ekki standa undir væntingum og fengið endurgreitt.
(Að frádregnum pökkunar- og sendingarkostnaði).
Eftirtalin apótek og www.heilsubudin.is selja Hrotu-Banann: Akureyrarapótek, Kaupangi
Lyfjaver, Suðurlandsbraut 22 - Borgarapótek, Borgartúni 28 - Garðsapótek, Sogavegi 108
Urðarapótek, Grafarholti - Árbæjarapótek, Hraunbæ 115 - Apótek Garðabæjar, Litlatúni 3
Reykjavíkurapótek, Seljavegi 2 - Apótek Hafnarfjarðar, Tjarnarvöllum 11.
Nærandi, orkugefandi og eykur lífsgæði
Spírandi ofurfæði
Útsölustaðir: Bónus um allt land.
Aðrir: Fjarðarkaup, Græni hlekkurinn, Hagkaup, Krónan,
Lifandi Markaður, Melabúðin, Nettó og Nóatún.www.ecospira.is
Sölustaðir Höfuðborgarsvæðið: Fjarðarkaup, Græni Hlekkurinn, Hagkaup, Lifandi Markaður
og Melabúðin. Um land allt: Bónus, Krónan, Nóatún, Kaskó, Nettó, Samkaup Úrval og Strax.
Heyrnartól fyrir snjalltækin og hægt
er að tengja þau við iPhone, iPad og
iPod. Tækin eru svo fíngerð að þau
sjást varla þegar þau eru komin á bak
við eyrun. Heyrnartækin frá ReSound
eru fáanleg hjá Heyrn og þar eru
einnig allar gerðir af heyrnartækjum
sem henta mismunandi heyrnartapi
og lífsstíl.
Ellisif Katrín Björnsdóttir er
löggiltur heyrnarfræðingur og
starfar hjá Heyrn sem er einkarekin
heyrnarþjónusta, stofnuð árið 2007.
Að hennar sögn minnkar heyrnar-
skerðing lífsgæði og getu til að sinna
vinnu og námi. „Þegar möguleikinn
á því að eiga snurðulaus samskipti er
skertur getur það valdið félagslegri
einangrun. Algengt er að fólk hætti að
vinna og að taka þátt í öðru sem það
hefur gaman að þegar heyrnin tapast,“
segir hún. Margir halda að allir aðrir
séu farnir að tala hratt og óskýrt, en
í raun og veru er það visst tíðnisvið
sem tapast úr heyrninni og því greinir
fólk tal illa. „Það getur gerst að fólk
viti ekki af því að það sé farið að tapa
heyrn. Þegar sagt er við okkur að við
séum farin að hvá, er rétt að bregðast
við og fara í heyrnargreiningu. Ekki
þarf tilvísun til að koma til okkar.“
Þegar nýr Apple búnaður kemur á
markað stendur fólk í löngum röðum
til að tryggja sér eintak en þegar
kemur að því að kaupa heyrnartæki
Hljómgæði með hæstu einkunn
Dönsku heyrnartækin LiNX frá
ReSound tengjast þráðlaust við
iPhone, iPad og iPod. Í óháðri
rannsókn gaf hópur heyrnartæk-
janotenda þeim hæstu einkunn.
dregur fólk það árum saman, jafnvel
þó það viti að slík tæki geti aukið lífs-
gæðin til muna. „Rannsóknir sýna að
fólk bíður í um sjö ár að meðaltali frá
því það grunar að það sé farið að heyra
illa þangað til það gerir eitthvað í mál-
unum og fær sér heyrnartæki. Það er
einhver feimni ríkjandi gagnvart því
að fá sér heyrnartæki,“ segir Ellisif.
LiNX heyrnartækin er búin Surro-
und Sound by ReSound sem er einstök
kringnæm hljóðvinnsla sem hermir
eftir vinnslu mannseyrans. Með ReSo-
und heyrnartækjum verður heyrnin
notaleg og áreynslulaus og öll hljóð
eru mjög greinileg og eðlileg. Þess
vegna er talmál ætíð skýrt með góðum
styrk sem auðvelt er að skilja. „Tilfinn-
ing fyrir umhverfinu breytist þegar
maður tekur betur eftir og heyrir
eðlilega á ný.“
Ef LiNX heyrnartæki týnist er hægt
að nota tenginguna við iPhone til að
finna það. Síminn getur staðsett tækin
með GPS tækni. Ljós á símanum
verður skærara eftir því sem hann er
nær tækinu.
Hjá Heyrn getur fólk komið í grein-
ingu og fengið lánuð tæki til reynslu.
Nánari upplýsingar má nálgast á
síðunni www.heyrn.is og á Facebook-
síðunni Heyrn.
Heyrnartækin frá ReSound er svo fíngerð að þau sjást varla þegar þau eru komin á bak við eyrun. Tækin eru fáanleg hjá Heyrn sem er einkarekin heyrnarþjónusta.
UNNið Í SamviNNU við
Heyrn
Konur sem eru að komast á breyt-
ingaskeiðið hafa meira magn en aðrar
af ákveðnu próteini í heila sem tengt
hefur verið við þunglyndi, að því er
kemur fram á vefnum Science Daily.
Rannsókn sem gerð var af vísinda-
mönnum hjá Centre for Addiction
and Mental Health leiddi þetta í
ljós og voru niðurstöðurnar birtar í
tímaritinu JAMA Psychiatry.
Niðurstöðurnar þykja skýra hvers
vegna hátt hlutfall kvenna fær í
fyrsta sinn á ævinni þunglyndi rétt
fyrir breytingaskeiðið. „Þetta er í
fyrsta sinn sem uppgötvuð hefur
verið líffræðileg breyting, tengd
þunglyndi, í heila kvenna rétt fyrir
breytingaskeiðið,“ segir dr. Jeffrey
Meyer, vísindamaður hjá teyminu
sem að rannsókninni vann. Hjá
konum á aldrinum 41 til 51 árs
fannst mun meira magn af efninu
mónóamín oxidasa-A, sem skamm-
stafað er MAO-A.
Rétt fyrir breytingaskeiðið er algengt
að konur finni fyrir skapsveiflum og
gráti oftar en vanalega. Þá er þekkt
að hjá konum á þessum aldri fái 16
til 17 prósent alvarlegt þunglyndi í
fyrsta sinn á ævinni. Svipað hlutfall
fær vægt þunglyndi. MAO-A er ensím
sem brýtur niður efni eins og sero-
tónín, norepinephrine og dópamín
sem stuðla að jafnvægi í skapi.
Þegar verið var að rannsaka hvort
mikið magn MAO-A gæti útskýrt
skapsveiflur rétt fyrir breytingaskeið-
ið voru teknar sneiðmyndir af heila
þátttakenda í þremur hópum. Einn
hópurinn var á barneignaraldri, annar
rétt undir aldri breytingaskeiðsins og
sá þriðji á breytingaskeiðinu. Að með-
altali var 34 prósent meira af MAO-A
í konum rétt fyrir breytingaskeiðið
en hjá konum á barneignaraldri. Um
16 prósent meira af MAO-A var hjá
konum rétt fyrir breytingaskeiðið en
hjá konum á breytingaskeiðinu.
Þunglyndi algengt rétt fyrir
breytingaskeiðið
— 6 —