Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.09.2006, Síða 29

Læknablaðið - 15.09.2006, Síða 29
FRÆÐIGREINAR / OFVIRKNI íslensk börn með ofvirkniröskun - lýsing á nokkrum þáttum í meðgöngu og fæðingu Margrét Valdimarsdóttir BARNA- OG UNGLINGA- GEÐLÆKNIR Agnes Huld Hrafnsdóttir SÉRFRÆÐINGUR f KLÍNÍSKRI SÁLFRÆÐI Páll Magnússon SÁLFRÆÐINGUR Ólafur Ó. Guðmundsson YFIRLÆKNIR Höfundar starfa allir á Barna- og unglingageðdeild Landspítala. Fyrirspurnir og bréfaskipti: Margrét Valdimarsdóttir, Barna- og unglingageðdeild Landspítala. Sími 543-4300, 543-1519. Netfang: margval@lsh.is Lykilorð: ojvirkniröskun, ofvirkni, meðganga, fœðing, börn. Ágrip Tilgangur: Ofvirkniröskun (athyglisbrestur með ofvirkni) er vel þekkt klínískt heilkenni athygl- isbrests, hreyfiofvirkni og hvatvísi. Einkenni heilkennisins koma fram á barnsaldri og geta haldist fram á fullorðinsár. Rannsóknir benda til að um samspil ýmissa orsakaþátta sé að ræða en að erfðaþátturinn vegi þyngst. Markmið þessarar rannsóknar var að kanna tengsl vissra þátta á með- göngu og í fæðingu við ofvirkniröskun hjá börnum og unglingum á íslandi. Um er að ræða lýsandi, afturvirka rannsókn. Efniviður og aðferðir: Upplýsingar voru fengnar úr sjúkraskrám þeirra barna sem komu til greiningar vegna gruns um ofvirkni á göngudeild Barna- og unglingageðdeildar Landspítala (BUGL) 1998 og 1999. í rannsóknarhópnum voru 196 börn sem fengu ofvirknigreiningu samkvæmt greining- arkerfunum ICD-10 eða DSM-IV. Foreldrar fylltu út spurningalista þar sem rneðal annars var spurt um heilsufar barnsins, meðgöngu og fæðingu og byggjast niðurstöðurnar á upplýsingum úr þessum listum. Niðurstöður: Fram komu marktæk tengsl milli ofvirkniröskunar hjá barni og þáttanna: aldur móður innan við tvítugt við fæðingu barns, að barnið hafi verið fyrirburi eða hafi verið tekið með keisaraskurði eða töngum. Einnig voru þættirnir: fæðingarþyngd barns, áfengisnotkun, reykingar, lyfjanotkun og sogklukkufæðingar athugaðir en ekki var hægt að sýna fram á marktæk tengsl þessa við ofvirkniröskun. Ályktanir: Niðurstöðurnar eru áþekkar niðurstöð- um nokkurra erlendra rannsókna og benda til þess að tengsl séu milli nokkrurra þátta á meðgöngu og í fæðingu og þess að börn greinist rneð ofvirkni- röskun. Um er að ræða lýsandi rannsókn en enn eru ekki nægar forsendur til staðar til að draga ályktanir um orsakasamhengi áhættuþátta. ENGLISH SUMMARY Valdimarsdóttir M, Hrafnsdóttir AH, Magnússon P, Guðmundsson ÓÓ The frequency of some factors in pregnancy and delivery for lcelandic children with ADHD Læknablaðið 2006; 92: 609-614 Objective: ADHD is a well known psychiatric disorder that begins in childhood and frequently persists into adulthood. In the last decade numerous studies have shown the importance of genetic factors in the etiology of ADHD. However other etiological factors seem to be involved. The aim of this study was to examine the frequency of some possible etiological factors for ADHD in lcelandic children diagnosed with ADHD. The study is descriptive. Materials and methods: The participants were 196 children referred for suspected ADHD to the outpatient unit of the Department of Child and Adolescent Psychiatry, Landspitali University Hospital during a 2 year period 1998-1999. The participants had either ICD-10 or DSM-IV hyperkinetic disorder and/or ADHD and the information was obtained from patient case. Information provided by parents in a questionnaire concerning health in pregnancy and the perinatal period was retrospectively analysed. Results: The main results show statistically significant increased risk for ADHÐ associated with several factors such as low birthweight, young age of the mother at the time of the child’s birth and Caesarian section, compared with reference groups such as mean values in all of the community. Other factors such as birthweight, alcohol or tobacco use in pregnancy, use of medication in pregnancy or vacuum extration did not show statistically significant association with ADHD. Conclusion: The results indicate as some studies from other countries have suggested that an association exists between a number of factors in pregnancy, delivery and perinatal period and ADHD, even though there is still not enough evidence to confirm definite etiological factors. Keywords: ADHD, Attention deficit-hyperactivity disorder, Hyperkinetic disorder, pregnancy, lcelandic children. Correspondance: Margrét Valdimarsdóttir, margval@lsh.is Læknablaðið 2006/92 609

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.