Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.09.2006, Side 49

Læknablaðið - 15.09.2006, Side 49
UMRÆÐA & FRETTIR / LÆKNANEMAR Gott að læra í Danmörku Ragnheiður Valdimarsdóttir er á þriðja ári í læknisfræðinámi við Syddansk Universitet í Óðinsvéum á Fjóni í Danmörku og hefur nám nú í september á sjöttu önn námsins. Hún segist upphaflega hafa sótt um námið í Danmörku „til vara” og ætlað sér að sækja um líka í læknadeild HÍ. „Ég sendi umsóknina í mars og var boðuð út til Óðinsvéa í viðtal og inntökupróf í maí en alls sóttu 1250 manns um inngöngu og af þeim voru 300 boðaðir í viðtal. Viku eftir viðtalið sem fór fram á dönsku var mér boðið pláss í deildinni og þar sem mér hafði litist svo ljómandi vel á allar aðstæður þarna þá ákvað ég að þiggja boðið og aldrei varð neitt af því að ég sótti um í HÍ.” Því má svo bæta við að Ragnheiður var ein af 125 sem fengu inngöngu í læknadeild Syddansk Universitet eftir viðtölin svo ekki þarf að efast um að hún hafi staðið sig vel á inntökuprófinu. En kunni hún meira í dönsku en gengur og gerist meðal íslenskra stúdenta. „Nei, í rauninni ekki. Grunnurinn minn var menntaskóladanskan en ég æfði mig talsvert áður en ég fór í viðtalið og það dugði.” Fyrirlestrar og próf fara fram á dönsku og bækurnar eru ýmist á dönsku eða ensku. „Það er ætlast til þess að nem- endur skrifi og tali dönsku. Annað gengur ekki.” Ætlar að starfa á íslandi Hún segist hafa haft góðar spurnir af skólanum í gegnum aðra íslenska stúdenta. „Það eru um 30 íslendingar í læknadeildinni í Óðinsvéum og svo eru talsvert margir í Kaupmannahöfn og Árósum.” Samtals eru íslenskir læknanemar í Danmörku ríflega 100 og eru þá ótaldir þeir sem stunda fram- haldsnám í sérgreinum en þeir eru eflaust nokkrir. Hún segir námið byggt upp á mjög svipaðan máta og við læknadeild HI. „Frá og með haustinu verður námið hér byggt upp sem blokkakerfi eins og í HÍ svo þetta er mjög hliðstætt. Fyrri hluti míns náms byggðist upp á stórum prófum í einstökum greinum en nú er ég komin á seinni hluta námsins og fer inn í blokkakerfið, 3-6 vikur í senn. í stórum dráttum er þetta því svipað þó einstakar áherslur séu mismunandi. Ég get nefnt sem dæmi að lyfja- fræðin er meira kennd hér samhliða kúrsum en heima er stór kúrs í lyfjafræði á þriðja ári.” Ragnheiður segist njóta námsins og búset- unnar í Óðinsvéum út í ystu æsar. „Þetta er mjög skemmtilegt nám og andinn í skólanum og meðal íslendinganna er mjög góður.” Ragnheiður Valdimarsdóttir lœkna- nemi í Óðinsvéum. Aðspurð hvort hún stefni á að starfa sem læknir í Danmörku segist hún alltaf hafa hugsað sér að koma heim að loknu námi og starfa á Islandi. „En þetta gefur þann möguleika að starfa í Danmörku, að kunna dönsku og þekkja danska heilbrigð- iskerfið eftir námið hér. Ræturnar eru engu að síður á íslandi og margir íslensku læknastúdent- anna hafa tekið hluta af verklega náminu heima á íslandi til að kynnast íslensku sjúkrahúsunum og hvernig hlutirnir ganga fyrir sig þar. Það er mjög gagnlegt. Ég sé líka fyrir mér að fara eitt- hvað annað í sérnám síðar til að stækka sjóndeild- arhringinn og öðlast fjölbreyttari reynslu.” Læknablaðið 2006/92 629

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.