Læknablaðið - 15.09.2006, Qupperneq 56
UMRÆÐA & FRÉTTIR / CPME
Starfsemi CPME 2005-2006
Katrín Fjeldsted
Varaforseti CPME
CPME, FASTANEFND EVRÓPSKRA LÆKNA, heldur þrjá
f undi á ári. Eftir stækkun Evrópusambandsins hef ur
aðildarlöndum CPME fjölgað og eru nú orðin 27:
Austurríki, Belgía, Bretland, Danmörk, Eistland,
Finnland, Frakkland, Grikkland, Holland, írland,
ísland, Ítalía, Kýpur, Litháen, Lúxemborg, Malta,
Noregur, Portúgal, Pólland, Slóvakía, Slóvenía,
Spánn, Sviss, Svíþjóð, Tékkland, Ungverjaland
og Þýskaland. Aðild eiga læknafélög hvers lands
fyrir sig og fleiri læknasamtök; samtök heim-
ilislækna (UEMO), sérfræðinga (UEMS), ung-
lækna (PWG), læknanema (EMSA), spítalalækna,
AEMH, CEOM, EANA, FEMS.
Frá 1. janúar 2006 hef ég verið einn af fjórum
varaforsetum samtakanna. Þeir eru kosnir til
tveggja ára en mega sitja tvö slík kjörtímabil, for-
setinn einungis eitt. Núverandi forseti er Daniel
Mart frá Lúxemborg en varaforsetar auk mín þeir
Marco Bitenc frá Slóveníu, Jean-Louis Calloc'h frá
Frakklandi og Manuel Sanchez Garcia frá Spáni.
Nýafstaðinn júnífund í Brussel sóttu rúmlega
100 fulltrúar enda nokkrar sendinefndir fjölmenn-
ar.
Fjórar undirnefndir voru að störfum í Brussel
I. Undirnefnd um forvarnir og umhverfismál
a) Forvarnaráætlun fyrir Evrópu. Vinnuhópur
hefur unnið að undirbúningi fyrir ráðstefnu í
Lúxemborg 2007 í samstarfi við Evrópuráðið.
b) Næring. Sagt frá þátttöku fulltrúa CPME í ESB
starfi.
c) Reykingavarnir og tóbaksauglýsingar.
Evrópuráðið sendi viðvörun til tveggja
Evrópulanda, Þýskalands og Lúxemborgar, í
febrúar 2006 þar sem tilskipun um bann við
tóbaksauglýsingum og fjárstuðning frá tóbaks-
framleiðendum hefur ekki enn orðið að lögum
þar.
CPME mun koma sjónarmiðum lækna á fram-
færi.
• B ) Endurskoðun á vinnutímatilskipuninni.
• C) e-Health. Vinnuhópur hefur fjallað um
stefnumótun um rafræna sjúkraskrá, heilsukort,
trúnað o.fl.
• D) Tími sem varið er í samskipti læknis og
sjúklings.
• E) Samfelld þjónusta við sjúklinga.
• F) Sagt frá auknu samstarfi aðildarlanda ESB
og DG Sanco.
II. Undirnefnd um siðfrœði og fagmennsku
a) Siðfræði (professional codes of ethics). Áfram
rætt um niðurstöður víðtækra spurningalista frá
Póllandi sem lagðar voru fram í mars 2006.
b) Heilbrigðisstarfsmenn sem fara yfir landamæri.
ítrekuð afstaða CPME að ekki skuli koma upp
miðlægum gagnagrunni um lækna.
c) Versnandi heilbrigðisþjónusta á Gaza og
Vesturbakkanum.
d) Afleiðing þess að heilbrigðisstarfsfólk vantar á
heimsvísu.
e) Læknisþjónusta til handa flóttamönnum og
þeirra sem leita eftir hæli sem pólitískir flótta-
menn. Spurning frá danska læknafélaginu um
hvort aðferðir í hverju landi við að heimila
ofangreindum hópum að njóta læknisþjónustu
stangist á við siðfræði lækna.
III. Undirnefnd um kennslu lœknisefna, endur- og
símenntun og gœðaþróun
a) CPME CPD ráðstefna verður haldin í Brussel
14. desember 2006. Ráðstefnan verður að hluta
kostuð af BMJ og unnið er að yfirlýsingu sem
borin verður upp.
b) Fróðlegar upplýsingar um kennslu læknanema í
Kanada
II. Undirnefnd um skipulag heilbrigðisþjónustu,
sjúkratryggingar og heilsuhagfrœði
• A) Eftir margra ára baráttu lækna um: 1. skil-
greiningu á vinnutíma á vöktum, 2. lengri aðlög-
unartíma, 3. að hægt sé að segja sig frá reglum,
4. hvíldartíma eftir vaktir, - hefur ráðherraráð
ESB loksins staðfest að heilbrigðisþjónusta
verði undanskilin í tilskipun um þjónustu. Hins
vegar er í pípunum sérstök tilskipun sem unnið
verður að á næstu mánuðum. Vinnuhópur
Fjármál
Árgjöld hafa ekki verið hækkuð í nokkur ár.
Nokkur halli er á árinu 2005, en róið hefur verið
áfram að því öllum árum að skera niður kostnað.
Þriðjungur af kostnaði sem nemur alls um milljón
evrum fer í að reka skrifstofu í Brussel. Þriðjungur
í baktjaldamakk og önnur slík verkefni og þriðj-
ungur í fundahöld. Á móti kemur að starfið er
markvissara og áhrif samtakanna hafa vaxið mjög.
Til þeirra er leitað þegar mál eru í vinnslu svo
636 Læknablaðið 2006/92