Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.09.2006, Blaðsíða 44

Læknablaðið - 15.09.2006, Blaðsíða 44
UMRÆÐA & FRÉTTIR / LÆKNANEMAR Læknanemar í Ungverjalandi Islenska nýlendan í Debrecan Útrás nýnema í læknanám erlendis er ekki beinlínis ný bóla en fjöldinn hefur þó farið vaxandi undanfarin ár og nú er verulegur fjöldi íslenskra læknanema í grunnnámi læknisfræði við erlenda háskóla. Lauslega áætlað er fjöldi þeirra nálægt 200, þar af um 100 í Danmörku og ríflega 40 í Debrecan í Ungverjalandi. Síðan eru læknanemar dreifðir á háskóla í Svíþjóð, Þýskalandi og víðar þó ekki hafi Læknablaðið lagst í rannsóknir á því. Við Alþjóðlega læknaháskólann í Debrecan í Ungverjalandi hefur á örfáum árum orðið til eins konar nýlenda íslenskra læknanema en þar stund- uðu 34 nemendur nám í læknisfræði síðastliðinn vetur og í haust bætast allnokkrir nýnemar við svo heildarfjöldinn fer væntanlega vel yfir 40 sem hefur þar nám í haust. Nokkrir læknar hafa þegar útskrifast með kandídatspróf frá Debrecan og hafið störf hér heima enda er námið fyllilega sambærilegt og stenst allar kröfur sem gerðar eru hérlendis um nám í læknisfræði. Daði Jónsson og Björg Jónsdóttir eru bæði á lokaspretti læknanámsins í Debrecan og stefna á útskrift á næsta ári. „Ég fór tvisvar í klásus hér heima og fékk þokkalega háar einkunnir þó ég kæmist ekki inn en svo fór mig líka að langa til að fara út og byrjaði á því að athuga með nám í Danmörku og rakst þá á upplýsingar um námið í Debrecan. Mér leist ekkert sérstaklega á þetta í fyrstu en þegar ég fór að athuga það betur leist mér æ betur á og það varð úr að ég sótti um og komst inn. Eitt af því sem sannfærði mig var að ég sá að þessi skóli fékk háa einkunn hjá Bandaríkjamönnnum en þeir hafa flokkað skóla sem kenna á ensku utan Bandaríkjanna,” segir Daði. Hávar Sigurjónsson Allt námið á ensku Að sögn Daða skiptist læknadeildin í Debrecan í rauninni í tvennt, annars vegar ungverska deild og hins vegar alþjóðlega deild þar sem öll kennsla fer fram á ensku. Daði segir að þrátt fyrir að öll kennslan sé á ensku og hægt sé að fara í gegnum námið án þess að læra ungversku að nokkru ráði þá sé kunnátta í henni nauðsynleg til að geta nýtt sér klíníska hluta námsins. Undir þetta tekur Björg og bætir því við að læknanemarnir þurfi að taka próf í ungversku í lok þriðja ársins, einmitt áður en klíníski hluti námsins hefst, til þess að þeir geti tekið viðtöl við sjúklinga og kynnt sér sjúkrasögu þeirra. Þau segja bæði að kunnátta þeirra í ungversku sé á vissan hátt tak- mörkuð við læknisfræði. „Ég get tekið viðtal við sjúkling og skráð sögu hans en ég ætti í erfiðleik- um með að ræða stjórnmál við Ungverja,” segir Björg hlæjandi. „En ungverska er tungumál sem ekki líkist neinu öðru í Evrópu nema sumir segja að það sé skylt finnsku. Það er þó mjög langsóttur skyldleiki, eða álíka mikill og er á milli íslensku og grísku sagði mér finnskur málvísindamaður,” segir Daði og bætir því við að Finnarnir eigi ekk- ert auðveldara en aðrir með að læra ungverskuna nema ef vera skyldi að þeir væru fljótari að ná framburðinum. Læknanámið í Debrecan er að sögn þeirra Bjargar og Daða byggt upp á þann hátt að fyrstu tvö árin eru algjörlega pre-klínísk, þriðja árið er blanda af pre-klíník og klíník, fjórða og fimmta árið eru algjörlega klínísk og sjötta árið er eins konar blanda af klíník og kandídatsárinu eins og tíðkast í læknanáminu við HI. „Þetta er því í rauninni ári styttra ef kandítdatsárið er talið með í íslenska náminu og við megum taka hluta af sjötta árinu heima á Islandi og þannig getur maður stytt viðveruna í Ungverjalandi enn frekar. Ég gat þar að auki skipt algjörlega á fimmta árinu og hef verið við læknadeildina í HI í vetur og er nú að fara út til að byrja sjötta og síðasta árið,“ segir Daði. Ætlaði í framhaldsnám í líffræði Björg segist hafa dottið inn í læknanámið í Debrecan fyrir hálfgerða tilviljun. „Ég tók BS próf í líffræði fyrir allmörgum árum í HÍ og starfaði síðan hjá Islenskri erfðagreiningu í tvö ár við rann- sóknir á því sviði. Síðan langaði mig til að breyta til og niðurstaðan varð sú að ég fór til Debrecan í mastersnám í líffræði. Þegar þangað var komið leist mér hins vegar svo vel á læknanámið að ég breytti um stefnu og hóf nám við læknadeildina og er nú komin á sjötta og síðasta árið í því námi. Ég sé alls ekki eftir því. Þetta var kannski ekki algjör tilviljun því ég var alltaf mest heilluð af því sem sneri að mannslíkamanum í líffræðinni. Ég fékk líka ákveðnar greinar í líffræðináminu metnar og fór beint inn á annað árið.” 624 Læknablaðið 2006/92
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.