Læknablaðið - 15.09.2006, Blaðsíða 57
UMRÆÐA & FRÉTTIR / CPME
læknar koma nú að ákvarðanatöku og stefnumót-
un langt umfram það sem áður var.
Ályktanir
Fjórar ályktanir frá WMA voru kynntar, Tókýó-
ályktunin þar sem fram koma leiðbeiningar til
lækna vegna pyndinga og annarrar grimmrar,
ómannúðlegrar eða niðurlægjandi meðferðar eða
refsingar í varðhaldi eða fangelsum, reglur frá
WMA sem gilda um stríðsástand, yfirlýsing um
fuglaflensu og Genfarheitið frá september 1948
endurvakið. Mér finnst að það ætti að birtast í sér-
hverju tölublaði Læknablaðsins til þess að minna
okkur á hvernig læknastéttin á ávallt að hegða sér.
Frábært plagg.
Síðasta verk júnífundar CPME 2006 var að
samþykkja samhljóða ályktun sem hljóðar svo:
„í ljósi þess hve heilbrigðisþjónustu hrakaði
á Gazaströnd og Vesturbakkanum, að hluta til í
kjölfar þess að ESB dró til baka fjárstuðning sinn,
fagna Samtök evrópskra lækna nýlegri tilkynningu
um að ESB ætti að taka á ný upp stuðning og auka
hann. Samtökin telja að takmörkun á fjárhagsleg-
um stuðningi megi ekki valda íbúum viðkomandi
landa heilsutjóni og hvetja ESB til að tryggja að lyf
og lækningatæki verði undanþegin hömlum sem
löndum eru settar.“
Þá var samþykkt ályktun um faglegt sjálfstæði
lækna að beiðni hollenska læknafélagsins en þar í
landi hefur tryggingafélag boðið heimilislæknum
umtalsvert fé ef þeir fylgja klínískum leiðbein-
ingum út í æsar og ef 75-95% af lyfseðlum þeirra
vegna ákveðinna lyfja eru stílaðir á samheitalyf.
í ályktun CPME segir m.a. að faglegt sjálfstæði
tákni að læknir geti vikið frá klínískum leiðbein-
ingum þegar hann telur nauðsynlegt. Þegar um mis-
munandi valkosti sé að ræða þurfi læknar að huga
að kostnaði og árangri af meðferð en ávallt ganga
út frá því sem læknisfræðilega er best fýrir sjúkling-
inn. CPME mælir með því að læknar haldi sig frá
því sem brotið gæti í bága við faglega ábyrgð.
Fyrir því reyndist ekki hljómgrunnur að taka
EUMASS inn í samtökin (European Union of
Medicine in Assurance and Social Security) þar
sem það bryti í bága við lög samtakanna. Meðlimir
EUMASS eru sumir starfandi á vegum yfirvalda
en lagagreinin gerir ráð fyrir faglegu sjálfstæði sem
EUMASS telst ekki búa við.
Að lokum
í mörgum löndum Evrópu standa læknar í
ströngu:
• Læknar við 100 sjúkrahús í Póllandi eru í verk-
falli.
• Læknar í Þýskalandi eru gerðir persónulega
ábyrgir fyrir kostnaði vegna lyfseðilsskyldra
lyfja ef þeir fara fram úr fjárhagsáætlun.
• Tryggingafélag í Hollandi hefur boðið heim-
ilislæknum fjárhagslegan ábata af því að skrifa
upp á samheitalyf eða ódýrari lyf.
• Mikill áhugi er meðal lækna í löndum Austur-
Evrópu að flytjast til V-Evrópu og um 168 hafa
nú þegar hafið störf í Frakklandi. Brain drain
fyrir heimalandið.
• Svissneskir heimilislæknar eiga í útistöðum við
yfirvöld sem virðast vilja stytta framhaldsnám
þeirra úr 5 árum í 2-3. 16.000 læknar mættu á
útifundi og um 300.000 manns hafa undirritað
skjal máli þeirra til stuðnings
• I Austurríki eru ýmis vandamál tengd notkun
e-card eftir 6 mánaða reynslutíma. Sjúklingum
finnst þeir geti farið til hvaða læknis sem er, til
sérfræðings án tilvísunar, fengið lyfseðla hér
og þar o.s.frv. Stjórnvöld höfðu ekki séð þetta
fyrir.
Sjálf hef ég beitt mér fyrir umræðu um sjálfstæði,
ábyrgð og lagalega stöðu lækna. I heilbrigðislöggjöf
margra aðildarlanda hefur orðið LÆKNIR vikið
fyrir orðinu HEILBRIGÐISSTARFSMAÐUR.
Þetta hefur víða gerst þegjandi og hljóðalaust með
þeim afleiðingum, að því er ég tel, að ábyrgð lækna
gagnvart greiningu og meðferð sjúklinga þynnist
út, hverfur úr lagamáli og það getur varla verið
sjúklingum til hagsbóta. Það hljóta að vera réttindi
þeirra að ábyrgð lækna sé skýr.
Þá hef ég komið af stað umræðu um erfðabreytt
matvæli og áhrif þeirra á heilsu manna. Því er
haldið fram að ekkert hafi komið fram sem sýni
að þau séu skaðleg heilsunni. Sé dæminu snúið við
má segja að rannsóknir sem sanni hollustu þeirra
hafi ekki verið gerðar. Viss ástæða er til að ætla
að þrýstingur sé á ESB að hleypa erfðabreyttum
matvælum frá Bandaríkjunum (sem framleiða 2/3
allra slíkra matvæla í heiminum) inn á markaði í
Evrópu.
Ný stjórn Félags íslenskra barnalækna
Á aðalfundi Félags íslenskra barnalækna sem haldinn var 31. maí
2006 gengu úr stjórn Lúther Sigurðsson ritari og Gylfi Óskarsson
gjaldkeri. Kosin voru í þeirra stað Hörður Snævar Harðarsson rit-
ari og Ragnheiður Elísdóttir gjaldkeri. Sigurveig Þ. Sigurðardóttir
formaður situr áfram. - Netföng stjórnarmanna eru eftirfarandi:
Sigurveig: veiga@landspitali.is - Hörður: hordursh@landspitali.is -
Ragnheiður: ragnheidur.elisdottir@hr.is
Læknablaðið 2006/92 637