Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.09.2006, Síða 57

Læknablaðið - 15.09.2006, Síða 57
UMRÆÐA & FRÉTTIR / CPME læknar koma nú að ákvarðanatöku og stefnumót- un langt umfram það sem áður var. Ályktanir Fjórar ályktanir frá WMA voru kynntar, Tókýó- ályktunin þar sem fram koma leiðbeiningar til lækna vegna pyndinga og annarrar grimmrar, ómannúðlegrar eða niðurlægjandi meðferðar eða refsingar í varðhaldi eða fangelsum, reglur frá WMA sem gilda um stríðsástand, yfirlýsing um fuglaflensu og Genfarheitið frá september 1948 endurvakið. Mér finnst að það ætti að birtast í sér- hverju tölublaði Læknablaðsins til þess að minna okkur á hvernig læknastéttin á ávallt að hegða sér. Frábært plagg. Síðasta verk júnífundar CPME 2006 var að samþykkja samhljóða ályktun sem hljóðar svo: „í ljósi þess hve heilbrigðisþjónustu hrakaði á Gazaströnd og Vesturbakkanum, að hluta til í kjölfar þess að ESB dró til baka fjárstuðning sinn, fagna Samtök evrópskra lækna nýlegri tilkynningu um að ESB ætti að taka á ný upp stuðning og auka hann. Samtökin telja að takmörkun á fjárhagsleg- um stuðningi megi ekki valda íbúum viðkomandi landa heilsutjóni og hvetja ESB til að tryggja að lyf og lækningatæki verði undanþegin hömlum sem löndum eru settar.“ Þá var samþykkt ályktun um faglegt sjálfstæði lækna að beiðni hollenska læknafélagsins en þar í landi hefur tryggingafélag boðið heimilislæknum umtalsvert fé ef þeir fylgja klínískum leiðbein- ingum út í æsar og ef 75-95% af lyfseðlum þeirra vegna ákveðinna lyfja eru stílaðir á samheitalyf. í ályktun CPME segir m.a. að faglegt sjálfstæði tákni að læknir geti vikið frá klínískum leiðbein- ingum þegar hann telur nauðsynlegt. Þegar um mis- munandi valkosti sé að ræða þurfi læknar að huga að kostnaði og árangri af meðferð en ávallt ganga út frá því sem læknisfræðilega er best fýrir sjúkling- inn. CPME mælir með því að læknar haldi sig frá því sem brotið gæti í bága við faglega ábyrgð. Fyrir því reyndist ekki hljómgrunnur að taka EUMASS inn í samtökin (European Union of Medicine in Assurance and Social Security) þar sem það bryti í bága við lög samtakanna. Meðlimir EUMASS eru sumir starfandi á vegum yfirvalda en lagagreinin gerir ráð fyrir faglegu sjálfstæði sem EUMASS telst ekki búa við. Að lokum í mörgum löndum Evrópu standa læknar í ströngu: • Læknar við 100 sjúkrahús í Póllandi eru í verk- falli. • Læknar í Þýskalandi eru gerðir persónulega ábyrgir fyrir kostnaði vegna lyfseðilsskyldra lyfja ef þeir fara fram úr fjárhagsáætlun. • Tryggingafélag í Hollandi hefur boðið heim- ilislæknum fjárhagslegan ábata af því að skrifa upp á samheitalyf eða ódýrari lyf. • Mikill áhugi er meðal lækna í löndum Austur- Evrópu að flytjast til V-Evrópu og um 168 hafa nú þegar hafið störf í Frakklandi. Brain drain fyrir heimalandið. • Svissneskir heimilislæknar eiga í útistöðum við yfirvöld sem virðast vilja stytta framhaldsnám þeirra úr 5 árum í 2-3. 16.000 læknar mættu á útifundi og um 300.000 manns hafa undirritað skjal máli þeirra til stuðnings • I Austurríki eru ýmis vandamál tengd notkun e-card eftir 6 mánaða reynslutíma. Sjúklingum finnst þeir geti farið til hvaða læknis sem er, til sérfræðings án tilvísunar, fengið lyfseðla hér og þar o.s.frv. Stjórnvöld höfðu ekki séð þetta fyrir. Sjálf hef ég beitt mér fyrir umræðu um sjálfstæði, ábyrgð og lagalega stöðu lækna. I heilbrigðislöggjöf margra aðildarlanda hefur orðið LÆKNIR vikið fyrir orðinu HEILBRIGÐISSTARFSMAÐUR. Þetta hefur víða gerst þegjandi og hljóðalaust með þeim afleiðingum, að því er ég tel, að ábyrgð lækna gagnvart greiningu og meðferð sjúklinga þynnist út, hverfur úr lagamáli og það getur varla verið sjúklingum til hagsbóta. Það hljóta að vera réttindi þeirra að ábyrgð lækna sé skýr. Þá hef ég komið af stað umræðu um erfðabreytt matvæli og áhrif þeirra á heilsu manna. Því er haldið fram að ekkert hafi komið fram sem sýni að þau séu skaðleg heilsunni. Sé dæminu snúið við má segja að rannsóknir sem sanni hollustu þeirra hafi ekki verið gerðar. Viss ástæða er til að ætla að þrýstingur sé á ESB að hleypa erfðabreyttum matvælum frá Bandaríkjunum (sem framleiða 2/3 allra slíkra matvæla í heiminum) inn á markaði í Evrópu. Ný stjórn Félags íslenskra barnalækna Á aðalfundi Félags íslenskra barnalækna sem haldinn var 31. maí 2006 gengu úr stjórn Lúther Sigurðsson ritari og Gylfi Óskarsson gjaldkeri. Kosin voru í þeirra stað Hörður Snævar Harðarsson rit- ari og Ragnheiður Elísdóttir gjaldkeri. Sigurveig Þ. Sigurðardóttir formaður situr áfram. - Netföng stjórnarmanna eru eftirfarandi: Sigurveig: veiga@landspitali.is - Hörður: hordursh@landspitali.is - Ragnheiður: ragnheidur.elisdottir@hr.is Læknablaðið 2006/92 637

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.