Læknablaðið - 15.09.2006, Page 49
UMRÆÐA & FRETTIR / LÆKNANEMAR
Gott að læra í Danmörku
Ragnheiður Valdimarsdóttir er á þriðja ári
í læknisfræðinámi við Syddansk Universitet í
Óðinsvéum á Fjóni í Danmörku og hefur nám
nú í september á sjöttu önn námsins. Hún segist
upphaflega hafa sótt um námið í Danmörku „til
vara” og ætlað sér að sækja um líka í læknadeild
HÍ. „Ég sendi umsóknina í mars og var boðuð út
til Óðinsvéa í viðtal og inntökupróf í maí en alls
sóttu 1250 manns um inngöngu og af þeim voru
300 boðaðir í viðtal. Viku eftir viðtalið sem fór
fram á dönsku var mér boðið pláss í deildinni og
þar sem mér hafði litist svo ljómandi vel á allar
aðstæður þarna þá ákvað ég að þiggja boðið og
aldrei varð neitt af því að ég sótti um í HÍ.” Því
má svo bæta við að Ragnheiður var ein af 125 sem
fengu inngöngu í læknadeild Syddansk Universitet
eftir viðtölin svo ekki þarf að efast um að hún
hafi staðið sig vel á inntökuprófinu. En kunni hún
meira í dönsku en gengur og gerist meðal íslenskra
stúdenta.
„Nei, í rauninni ekki. Grunnurinn minn var
menntaskóladanskan en ég æfði mig talsvert áður
en ég fór í viðtalið og það dugði.” Fyrirlestrar og
próf fara fram á dönsku og bækurnar eru ýmist á
dönsku eða ensku. „Það er ætlast til þess að nem-
endur skrifi og tali dönsku. Annað gengur ekki.”
Ætlar að starfa á íslandi
Hún segist hafa haft góðar spurnir af skólanum í
gegnum aðra íslenska stúdenta. „Það eru um 30
íslendingar í læknadeildinni í Óðinsvéum og svo
eru talsvert margir í Kaupmannahöfn og Árósum.”
Samtals eru íslenskir læknanemar í Danmörku
ríflega 100 og eru þá ótaldir þeir sem stunda fram-
haldsnám í sérgreinum en þeir eru eflaust nokkrir.
Hún segir námið byggt upp á mjög svipaðan
máta og við læknadeild HI. „Frá og með haustinu
verður námið hér byggt upp sem blokkakerfi eins
og í HÍ svo þetta er mjög hliðstætt. Fyrri hluti míns
náms byggðist upp á stórum prófum í einstökum
greinum en nú er ég komin á seinni hluta námsins
og fer inn í blokkakerfið, 3-6 vikur í senn. í stórum
dráttum er þetta því svipað þó einstakar áherslur
séu mismunandi. Ég get nefnt sem dæmi að lyfja-
fræðin er meira kennd hér samhliða kúrsum en
heima er stór kúrs í lyfjafræði á þriðja ári.”
Ragnheiður segist njóta námsins og búset-
unnar í Óðinsvéum út í ystu æsar. „Þetta er mjög
skemmtilegt nám og andinn í skólanum og meðal
íslendinganna er mjög góður.”
Ragnheiður
Valdimarsdóttir lœkna-
nemi í Óðinsvéum.
Aðspurð hvort hún stefni á að starfa sem læknir
í Danmörku segist hún alltaf hafa hugsað sér að
koma heim að loknu námi og starfa á Islandi. „En
þetta gefur þann möguleika að starfa í Danmörku,
að kunna dönsku og þekkja danska heilbrigð-
iskerfið eftir námið hér. Ræturnar eru engu að
síður á íslandi og margir íslensku læknastúdent-
anna hafa tekið hluta af verklega náminu heima
á íslandi til að kynnast íslensku sjúkrahúsunum
og hvernig hlutirnir ganga fyrir sig þar. Það er
mjög gagnlegt. Ég sé líka fyrir mér að fara eitt-
hvað annað í sérnám síðar til að stækka sjóndeild-
arhringinn og öðlast fjölbreyttari reynslu.”
Læknablaðið 2006/92 629