Læknablaðið - 15.09.2006, Qupperneq 47
UMRÆÐA & FRÉTTIR / LÆKNANEMAR
Læknanám í Árósum
Þeir Örn Hauksteinn Ingólfsson og Halldór
Bjarki Einarsson eru báðir við læknanám í
Árósum. Örn er á 4. ári en Halldór Bjarki á 3. ári
Þeir segjast báðir hafa farið í Numerus Clausus við
læknadeild HÍ en ekki komist inn og því sótt um
inngöngu í læknadeildina í Árósum sem er ein af
þremur læknadeildum í Danmörku, hinar tvær eru
í Óðinsvéum og Kaupmannahöfn.
Þeir urðu góðfúslega við þeirri beiðni að lýsa
náminu svo samanburður við læknanámið heima
á íslandi væri mögulegur en varla þarf þó að taka
fram að námið er fyllilega sambærilegt og veitir
sömu réttindi.
Tilhögun námsins í Árósum
„Náminu er skipt upp í tvo hluta. Fyrsti hlut-
inn samanstendur af líffærafræði og vefjafræði,
erfðafræði, sálarfræði og verknámi á 3. önn. Á
öðru námsári hefjast heilsárskúrsar í ólífrænni og
lífrænni efnafræði, sem og læknisfræðilegri eðlis-
fræði og lífeðlisfræði. Fyrsta hlutanum lýkur með
prófum í ónæmis- og örveirufræði, faraldsfræði og
umhverfis- og vinnutengdri læknisfræði.
Annar hluti læknisfræðinnar í Árósum hefst
með kúrsum í lyfja- og meinafræði ásamt smærri
kúrsum í sálarfræði og heimspeki. Fjórða árinu
lýkur með einnar annar verknámi í lyf- og
skurðlækningum. Á fimmta ári eru kenndar háls,-
nef- og eyrnalækningar, og húð- og kynsjúkdóma-
fræði, ásamt augnlæknisfræði. Níundu önninni
lýkur síðan með sex vikna rannsóknarverkefni.
Nemendur sem tekið hafa rannsóknarár, sem er
í boði fyrir þá sem hafa sérstakan áhuga á rann-
sóknum, fá kúrsinn metinn standist þeir rannsókn-
arárið. Á seinni hluta fimmta ársins, fara nemend-
ur aftur á spítala í verknám, í almenna læknisfræði,
taugalæknisfræði og taugaskurðlækningar. Einnig
er kennd fræðileg æxlafræði.
Verknámið heldur svo áfram á fæðinga- og
kvensjúkdómadeild og lýkur með barnalækn-
isfræði. Sjötta árið hefst með klínískri erfðafræði,
myndgreiningu, geislalæknisfræði og klínískri
lyfjafræði, öldrunarlæknisfræði og geðlæknisfræði.
Einnig er kennd réttarlæknisfræði og gigtarlækn-
isfræði.
Elleftu önn lýkur með kúrs í fæðingar- og kven-
sjúkdómalæknisfræði. Á tólftu önn, sem og jafn-
framt er sú síðasta, undirbúa nemendur sig fyrir
kandídatspróf í lyf- og skurðlækningum. Námið
endar svo með skriflegu prófi í barnalæknisfræði.
Turnus, eða kandídatsárið í Danmörku, er 1 og Vi
ár, ein önn á lyflækningadeild, ein á skurðdeild og
ein á heilsugæslu.”
Ein af byggingum
lœknadeiidar háskólans
í Árósum.
Félag íslenskra læknanema
Þeir Örn og Halldór benda á að námið er ekki eins
byggt upp í öllum þremur deildunum í Danmörku
en niðurstaðan er að sjálfsögðu sú sama.
Loks má nefna að fyrir íslenska stúdenta
í Danmörku eru skólagjöld engin og námið
því ódýrara en víðast hvar annars staðar utan
Norðurlandanna.
Aðspurðir um framhaldsnám segist Halldór
horfa til Bandaríkjanna en hann tók rannsóknarár
í Bandaríkjunum og hyggst fara aftur þangað eftir
kandídatsárið sitt. „Dvölin vestanhafs reyndist
vera lærdómsrík og bauð uppá mikla möguleika.”
Örn kveðst óráðinn ennþá en honum þykir líklegt
að fyrir valinu verði eitt af Norðurlöndunum.
Þess má svo geta að læknastúdentar í Danmörku
hafa með sér félag sem starfrækir heimasíðuna
http://www.fild.dk. Félagið hefur sex manna stjórn,
skipaða tveimur fulltrúum frá hverjum skóla. Á
hverjum stað er svo sjálfstæð starfsemi undirfélaga
FÍLD. Hlutverk félagsins er að gæta hagsmuna
félagsmanna, efla félagsleg tengsl, miðla upplýs-
ingum nemenda á milli, taka á móti nýnemum og
kynna félagið.
Læknablaðið 2006/92 627