Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.09.2006, Page 52

Læknablaðið - 15.09.2006, Page 52
UMRÆÐA & FRÉTTIR /SKYNDIHJÁLP Endurskoðun skyndi- hjálparkennslu á íslandi Hjalti Már Björnsson LÆKNIR OG FORMAÐUR Skyndihjálparráðs ÍSLANDS Gunnhildur Sveinsdóttir VERKEFNISSTJÓRI SKYNDIHJÁLPAR HJÁ RAUÐA KROSSI ÍSLANDS Á ÍSLANDI HEFUR ALMENNINGI lengið Staðið til boða ítarleg skyndihjálparnámskeið þar sem fjallað er um algenga bráðasjúkdóma, ýmsa áverka og rétt viðbrögð á neyðarstundu. Hafa námskeiðin náð talsverðri útbreiðslu en samkvæmt upplýs- ingum frá Rauða krossi Islands hafa um 3000- 5000 manns sótt skyndihjálparnámskeið á vegum félagsins árlega. Skyndihjálparkunnátta er mikilvæg eins og allir vita en ekki hefur tekist að fjölga þeim sem sækja námskeið eins og æskilegt væri.Til að stuðla að aukinni útbreiðslu skyndihjálparkunnáttu á landinu hefur Skyndihjálparráð Islands unnið öt- ullega síðustu tvö ár með Rauða krossi Islands að róttækri endurskoðun á áherslum í námsefni og fyrirkomulagi skyndihjálparkennslunnar. I fyrstu var mörkuð sú stefna að í skyndihjálp- arkennslu bæri að leggja áherslu á lífsbjargandi atriði. Það mikilvægasta sem almenningur var tal- inn þurfa að kunna í skyndihjálp var í raun að vita hvenær hringja skyldi í 112 og hvað gera ætti þar til sjúkrabíll kæmi á vettvang. Ný framsetning skyndihjálpar á námskeiðum og í námsefni byggist á skiptingu hennar í þrjá meginhluta: • endurlífgun • slys • bráð veikindi í endurlífgunarhlutanum er fjallað um hvernig greina skuli hjartastopp, minnt á að hringja í 112 og leiðbeint um hjartahnoð og blástur. Einnig er fjallað um hvernig losa á aðskotahluti úr öndunar- vegi. Byggir þessi kennsla á ítarlegum evrópskum leiðbeiningum um grunnendurlífgun sem þýddar voru af Skyndihjálparráði l'yrr á þessu ári og eru aðgengilegar á vef Landlæknis. I slysakaflanum er lögð áhersla á að tryggja öryggi á slysstað, enda getur hæglega gleymst að koma í veg fyrir frekari slys. Kennt er hvernig einfaldast er að stöðva blæðingu og hvernig skuli bregðast við höfuðhöggi, bruna og beinbrotum. Einnig er minnt á að eftir hátt fall eða harðan árekstur verður að flytja alla til læknisskoðunar þar sem leyndir lífshættulegir áverkar geta verið til staðar þó engin einkenni finnist í fyrstu. Þegar fjallað er um bráð veikindi er reynt að skoða ekki sérstaklega tiltekna sjúkdóma, svo sem kransæðastíflu eða astma. í staðinn er gerð grein fyrir helstu einkennum sjúkdóma og farið í hvern- GETUR ÞU HJALPAÐ . ÞEGARÁREYNIR? 3 Beittu strax endurtífgun ef O StÖðvaðu blaeðingu engin viðbrögð eru við ireiti með þvi að þrýsta i og öndun er öeðtileg blxðingarstað ig almenningur getur þekkt og brugðist rétt við til dæmis brjóstverk eða mæði, en sjúkdómsgreining er látin læknum eftir. Við endurskipulagningu skyndihjálparkennsl- unnar hefur verið leitast við að stytta námskeið og gera þau hagnýtari. Útbúið hefur verið nýtt fjögurra klukkutíma grunnnámskeið í skyndihjálp og vonast til að unnt verði að ná verulega aukinni útbreiðslu með því að bjóða upp á svo stutt nám- skeið. Kennslutækni í verklega hluta námskeiðsins hefur einnig verið breytt verulega frá því sem áður var og lögð er áhersla á að veita þátttak- endum sem raunverulegasta þjálfun í að bregðast við í neyð. Framkvæmd hjartahnoðs og öndunar- aðstoðar er kennd, en auk þess er leitast við að veita þátttakendum tækifæri til að upplifa að standa frammi fyrir bráðu vandamáli og að leysa úr því. Það felur venjulega í sér að tryggja öryggi á vettvangi, hringja á hjálp og síðan framkvæma handtökin í réttri röð. Áfram verða hins vegar í boði ítarlegri nám- skeið í skyndihjálp fyrir þá sem hafa áhuga á að læra meira. Á nýja fjögurra tíma grunnnámskeið- inu sem helst allir þyrftu að sitja og rifja upp reglu- lega er að mati ráðsins réttara að fjalla eingöngu um áðurnefnd lífsbjargandi atriði. I endurskoðun á kennsluefni hefur verið leitast við að hafa framsetningu og útlit þess sem líkasta. Má þar nefna að sömu myndirnar og svipaður texti er notaður í fyrirlestrum fjögurra klukkutíma grunnnámskeiðsins og í bæklingnum sem þátttak- endur geta fengið á námskeiðum og á veggspjaldi sem hengja má upp á vinnustað til að minna á 632 Læknablaðið 2006/92

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.