Læknablaðið - 15.07.2007, Blaðsíða 9
Richard Horton, aðalritstjóri The Lancet, var
fyrirlesari og sérstakur gestur á fyrrnefndu þingi
um heimilislækningar (sjá nánar bls. 564-566+ í
þessu blaði). Fyrirlestur hans bar heitið „The birth
of the meta physician - a vision for good doctoring
in a hi-tech world.” Horton skoraði þar á lækna
að vera virkari sem siðfræðilegir leiðtogar. Auk
þess að sinna einstökum sjúklingum með haldbært
velferðarkerfi í huga, er það hlutverk „meta-lækn-
isins” að viðurkenna þá ábyrgð sem fylgir aukinni
þekkingu á stöðu heimsmálanna. í hnattvæddum
heimi verða læknar að láta sig varða ákvarð-
anir stjórnvalda sem geta haft veruleg áhrif á líf og
heilsu fólks. Þar vísaði hann sérstaklega til stríðs-
átakanna í írak, Afganistan og Palestínu. Eins
og fram hefur komið í fréttum birti the Lancet
nýlega grein um „raunverulegar dánartölur” í
kjölfar innrásar vestrænna þjóða í Irak (8). Sem
ritstjóri blaðsins mætti Horton afar harðri gagn-
rýni við þeirri grein þar sem sagt var að hann hefði
leyft birtingu hennar í pólitískum tilgangi. Svar
Hortons er að það sé einfaldlega fagleg skylda
sín og ábyrgð sem fagmanns að koma á framfæri
hvers konar þekkingu um heilsuvá og dánarorsak-
ir fólks. Það skiptir ekki máli hvort rót vandans er
krabbameinsfruma, veira eða ákvörðun sem tekin
i Hvíta húsinu. „Þegar ég fjalla um þessi mál tala
ég sem læknir en ekki stjórnmálamaður” segir
hann. Þessi orð Hortons endurspegla vel sam-
félagslega ábyrgð lækna og hina mannlegu ásýnd
Iæknisfræðinnar í hátækniheimi.
Höfundar þakka Pétri I. Péturssyni, lækni, að-
stoð við íslenskun hugtaka.
Heimildir
1. http://www.bbc.co.uk/history/historic_figures/beveridge_
william.shtml
(síðast skoðað 20. júní 2007)
2. Westin S. The NHS’s 50th anniversary: A great leap for
humankind? BMJ 1998:317:49-51.
3. Sigurdsson JA, Stavdal A, Getz L. The Nordic Congresses of
General Practice- a gateway to a global treasure? (editorial).
Scand J Prim Health Care 2006;24:196-8.
4. Hart JT. Health care or health trade? A historic moment of
choice. Int J Pealth Serv. 2004; 34:245-54.
5. American Humanist Association, heimasíða: www.
americanhumanist.org/humanism/definitions/htm
(Skoðað síðast 20. júní 2007).
6. Hofmann B. The technological invention of disease - on
disease, technology and values. Thesis. Oslo: University of
Oslo, Faculty of Medicine, 2002.
7. Wackerhausen S. Humanisme, professions identitet og
uddannelse i sundhedsomrádet. Bók: Köbenhavn, Hans
Ritzel, 2002.95s.
8. Burnham G, Lafta R, Doocy S, Roberts L. Mortality after the
2003 invasion of Iraq: a cross-sectional cluster sample survey.
Lancet 2006;368:1421-8.
Læknablaðið 2007/93 533