Læknablaðið - 15.07.2007, Side 14
FRÆÐIGREINAR / HERSLISMEIN
Tafla II. Aldur, kynjahlutfall, sjúkdómslengd og fleiri upplýsingar um 24 einstaklinga með herslismein á Islandi. Niðurstöður eru gefnar sem meðaltal ásamt staðatfráviki og dreifibil.
Hlutfall þátttöku 24/29 = 83%
Kynjahlutfall; konur/karlar, 20/4 = 5:1
Meöalaldur í árum 60 ± 15 (34-81)
meðalaldur við sjúkdómsgreiningu 48 ± 14 (5-70)
lengd sjúkdóms í árum talið 15 ± 10 (1-33)
Dreifð eða takmörkuö birting herslísmeins 21/3 = 7/1
Þyngdarstuðull (BMI) 27 ± 5 (19-35)
Hlutfall kvenna komnar í tíðahvörf 17/20 = 85%
Aldur við tíðahvörf 45 ± 6 (34-55)
staðsettur er á Fjórðungssjúkrahúsinu Akureyri.
Pátttaka þessara tveggja sjúklinga var að öðru
leyti ekki frábrugðin.
Gagnasöfmin, tölfrœði og leyfisveitingar
Öllum gögnum var safnað í gagnagrunn í
Excel-skjal. Lýsandi tölfræði var notuð til að
lýsa rannsóknarniðurstöðum. Leyfi frá siðanefnd
LSH (20/2004) og Persónuvernd (S1859/2004 og
2004020124) var fengið fyrir rannsókninni. Þá var
fengið leyfi Geislavarna ríkisins vegna beinþéttni-
mælinganna (8/30/2004). Allir þátttakendur skrif-
uðu undir upplýst samþykki.
Tafla III. Yfirlit yfir efnastyrk ýmissa efna í blóði og þvagi hjá 24 sjúklingum með
herslismein.
Meöaltal ± SD Min - Max Viðmiðunarmörk
Blóörannsóknir
S-Kalsíum 2,3 ±0,1 2,2-2,6 2,15 - 2,60 mmól/L
S-Magnesíum 0,8 ± 0,1 0,6-0,9 0,71-0,94 mmól/L
S-Fosfat 1,2 ± 0,2 0,9-1,4 0,8-1,6 mmól/L
S-Kreatínín 77 ± 20 45 - 156 60 - 90 (karlar 120) |jmól/L
SAIbúmín 43 ± 3 35-51 36,0-50,0 g/L
S-Jóniserað kalsfum 1,2 ±0,1 1,2 - 1,4 1,13-1,33 mmól/L
S-Paratýrín (PTH) 43 ± 25 21 - 135 10,0 - 65,0 pg/ml
S-25-0H Vítamín D 61 ±26 21 - 131 > 50,0 nmól/L*
Þvagrannsóknir
Þ-Kalíum 44 ± 26 3,3 - 99 25 -125 mmól/24 klst
Þ-Kalsíum 2,4 ± 1,7 0,4-5,7 2,50 - 8,0 mmól/24 klst
Þ-Kreatínfn 8,3 ± 3,4 1,3-15,7 4 - 18 mmól/24 klst
Þ-Kreatfnfnúthreinsun 79 ± 33 15 -137 80 -140 ml/mín
Þ-Kalsíum/Þ-Kreatínín 0,28 ± 0,2 0,01 - 0,80 < 0,59 mmol/mmol**
S-25-OH Vítamín-D: skortur < 25 nmol/L; ónógt = 25-50 nmol/L; æskilegt >50.
Öll viðmiðunargildi voru fengin frá Rannsóknarstofu LSH nema fyrir Þ-Kalsíum/Þ-kreatínín gildin, en þau
voru fengin hjá Ólafi Skúla Indriðasyni, nýrnasérfraeöingi**
Niðurstöður
Tuttugu og níu einstaklingar voru greindir með
herslismein hér á landi við upphaf rannsóknar.
Tveir einstaklingar afþökkuðu þátttöku í rann-
sókninni, tveir einstaklingar bjuggu erlendis og
fimmta sjúklinginn tókst ekki að hafa samband
við, því tóku 24 einstaklingar með herslismein þátt
í rannsókninni eða 83% af heildarsjúklingaþýðinu
hér á landi. Konur voru 74% þátttakenda og með-
alaldur hópsins var 60 ± 15 ár. Að meðaltali höfðu
þátttakendur verið veikir í 15 ± 10 ár (1-33). Sjá
nánar upplýsingar um þátttakendur í töflu II.
Þrír þátttakendur höfðu að sögn ættarsögu um
beinþynningu (13%), átta voru með hreyfihömlun
(35%) og fimm voru með sjúkdóm í meltingarfær-
um (22%). Fimm af sextán konum sem komnar
voru í tíðahvörf (31%) höfðu snemmkomin tíða-
hvörf (tíðahvörf fyrir 42 ára aldur). Fjórtán af 24
sjúklingum voru á sykursterameðferð (61%) og
fimm voru á methotrexati (22%).
Tólf einstaklingar höfðu brotnað samtals 18
sinnum. Einn hafði brotnað fjórum sinnum (á
báðum framhandleggjum, öxl og upphandlegg),
einn hafði brotnað þrisvar sinnum (rifbein og
viðbein) og einn hafði brotnað tvívegis (fram-
handlegg og hrygg). Samtals voru átta framhand-
leggsbrot (33%), tvö brot í upphandlegg (8%)
og tvö rifbeinsbrot (8%), þar að auki voru eitt
eftirtalinna brotafótbrot, samfallsbrot í hrygg,
handleggsbrot, brot um olnboga og viðbeinsbrot.
Fjórar konur voru á beinverndandi meðferð með
bisfósfónati (17%).
Neysluvenjur og hreyfing
Neysla mjólkurvara var ígildi tveggja mjólkurglasa
og fjögurra ostsneiða á dag að meðaltali. Atta
einstaklingar tóku auk þess kalktöflur reglulega
og 20 tóku daglega lýsi eða fjölvítamín. Fimmtán
einstaklingar stunduðu reglulega líkamsæfingar
eða aðrar íþróttir að meðaltali fimm sinnum í
viku.
Blóð- og þvagrannsóknir
Blóðrauði (Hb = 139 g/L), fjöldi hvítra blóðkorna
(6,3 x 109/L) og blóðflögur (258 x 109/L) voru
innan eðlilegra marka.
Meðaltalsstyrkur þvag- og blóðgilda hvað
varðar kalsíumbúskap var innan eðlilegra marka
að frátöldu kalsíum í þvagi sem var að meðaltali
2,4 mmól/24 klst og helmingur sjúklinga (56%)
reyndust með umreiknað sólarhringsgildi undir
viðmiðunarmörkum (2,5 - 7,5 mmól/24 klst).
Þegar kalsíumútskilnaður var metinn miðað
við kreatínínúthreinsun (þ-kalsíum/þ-kreatínín),
reyndist eingöngu einn sjúklingur hafa hækkað
kalsíum/kreatínín hlutfall í þvagi (< 0,59 mmol/
538læknablaðið 2007/93